Morgunblaðið - 05.06.2008, Side 48
FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 157. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Um 700 fjár undir hnífinn
Riða greindist á Brautarholti í
Hrútafirði og verður öllu fé á bæn-
um, alls um 700, slátrað. Riða hefur
ekki áður fundist á svæðinu. » 2
Ekki talin hætta á hruni
Jarðskjálftasprungan frá Suður-
landsskjálftanum sést frá Völlum í
Ölfusi og norður eftir Reykjafjalli.
Jarðfræðingur telur ekki hættu á
stóru hruni úr fjallinu. » 2
Reynt að svæfa birnina
Á Nýfundnalandi er reynt að beita
deyfilyfjum á hvítabirni sem koma
nærri byggð og flytja þá burt. Á
Svalbarða er reynt að fæla birni frá
byggð áður en þeir eru felldir. » 6
Þungur róður framundan
Kjaraviðræður útvegsmanna og
sjómanna verða líklega erfiðar. Ein
ástæðan er að kjör sjómanna ráðast
m.a. af olíuverði en það hefur hækk-
að mikið undanfarið. » 8
SKOÐANIR»
Staksteinar: Er ekki nóg komið?
Forystugreinar: Hvítabirni útrýmt
Stöng og aðrir staðir
Ljósvaki: Óeðlilegt lýtaleysi
UMRÆÐAN»
Gazagettóið og sjónarmið síonistans
Hugarafl fagnar 5 ára afmæli
Hver hugsar um dýrin okkar?
Nei! Við erum ekki reiðubúin …
Innherji: Verðmæt ríkisbréf
Seðlabankinn þrengir að vörnum …
Ekki kreppa í endurskoðun
Hafa trú á íslenska markaðnum
VIÐSKIPTI »
! "#$
%&'(
)*++,-.
/0-+.1231)
&,1,),)*++,-.
)41& &-51,
1*-& &-51,
61& &-51,
7.1! 8-,1&.
9,2,1&/ 901
)-
07-,
01.7./,+,
Heitast 18°C | Kaldast 8°C
Suðaustan og austan
5-10 m/s. Skýjað með
köflum sunnan og vest-
an til. Stöku skúrir.
Léttskýjað fyrir norðan. » 10
Ný plata Barða Jó-
hannssonar fær lof-
samlega dóma; fer
nærri því að fá fullt
hús. Flest laganna
eru í moll. » 45
TÓNLIST»
Sagt fyrsta
flokks popp
KVIKMYNDIR»
Friðrik Þór segist alltaf
vera í sigurliðinu. » 38
Lýður Árnason
vinnur að sjónvarps-
myndinni Eitur í
æðum. Meðal leik-
ara verður kunnur
frændi hans. » 45
SJÓNVARP»
Frændur
fyrir vestan
LEIKHÚS»
Leikritið Love – The
Musical frumsýnt. » 47
TÓNLIST»
Innblásturinn er
auðfenginn. » 38
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Andlát: Kristján Kristjánsson …
2. Ekki „bjarga“ fuglsungum
3. Unnu leikinn 54:1
4. Hjálmlaus með heyrnartól
Íslenska krónan veiktist um 0,9%
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
„Í RAUN þýðir ekkert að hugsa
þetta of langt. Við ætlum einfald-
lega að gera þetta og svo fer bara
sem fer. Við reynum að undirbúa
okkur eins og við getum en það
verða engin sérstök kort höfð við
hönd. Við stígum bara upp í bílinn
og keyrum út í óvissuna,“ segir
Arnar Freyr Vilmundarson en hann
hyggst, ásamt Christopher Friel,
skoskum félaga sínum, leggja land
undir fót í sumar með heldur
óvenjulegum hætti. Þeir eru meðal
keppenda í kappakstri sem ræstur
verður frá miðborg Lundúna 19.
júlí.
Markmið akstursins er að ná til
Ulan Bator, höfuðborgar Mongólíu,
á undan öðrum keppendum og
vegalengdin er um 15.000 kílómetr-
ar. Reglur kappakstursins vekja
nokkra athygli en þær eru einungis
þrjár. Í fyrsta lagi bera keppendur
sjálfir ábyrgð á eigin lífi og limum. Í
öðru lagi verða þeir að safna 1.000
pundum sem renna til góðgerðar-
starfa í Mongólíu og í þriðja lagi er
bannað að notast við ökutæki sem
búa yfir stærri vél en 1.000 cc.
Svokallað „crapmobile“
„Hugmyndin hjá okkur er að
komast til Ulan Bator á 24 dögum
en svo er aldrei að vita hvort eða
hvenær bíllinn gefst upp. Þetta er
kallað „crapmobile“ enda eitt höf-
uðskilyrði keppninnar að vera á
druslu.“
Á heimasíðu kappakstursins er
honum lýst sem kjörnu tækifæri
fyrir þá sem vilja lenda í ævintýrum
við að kanna hið óþekkta. Þá aukist
skemmtanagildi hans í samræmi við
óhöpp, bilanir og óvæntar uppá-
komur sem keppendur upplifa á leið
sinni. Aðspurður hvort þeir fé-
lagarnir bindi miklar vonir við að
allt fari í handaskolum á Bjarma-
landsför þeirra austur svarar Arnar
hlæjandi: „Auðvitað vonar maður að
allt gangi vel en það væri hins veg-
ar ekkert gaman ef ferðin yrði alveg
tíðindalaus. Maður þarf að eiga ein-
hverjar sögur handa barnabörn-
unum.“
Á methraða til Mongólíu
Íslendingur meðal
keppenda í óvenju-
legum kappakstri
Morgunblaðið/Frikki
Ævintýri „Við ætlum einfaldlega að gera þetta og svo fer sem fer,“ segir Arnar Freyr Vilmundarson.
Í HNOTSKURN
» Fararskjótinn í rallinu erSuzuki SJ árgerð 1988,
einnig þekktur sem Suzuki
Samurai og er vélin 970 cc.
» Jeppann keyptu þeir fé-lagar á uppboðssíðunni
e-bay fyrir 1.020 pund.
SUMARTÓNLEIKARÖÐUM og -hátíðum hefur
fjölgað mjög á síðustu árum. Samkvæmt óform-
legri könnun voru rúmlega 20 slíkir viðburðir á
landinu sumarið 2003 en í ár eru þeir tæplega
50. Fjölgun slíkra viðburða er því um 100% á
fimm árum.
Tónlistarhátíðirnar hefjast æ fyrr og segja má
að tónlistarsumarið hefjist um páska og því ljúki
á haustin. Elstir eru Sumartónleikar í Skálholti
sem hófu göngu sína árið 1975 en þær tónlistar-
hátíðir sem hefja göngu sína í sumar eru Kamm-
ertónlistarhátíð á Kjarvalsstöðum um páska,
Sumartónleikar í Hóladómkirkju, Djass- og
blúshátíð í Kópavogi og Tónlistarhátíð unga
fólksins. Sumartónleikar eru þó ekki einungis
bundnir við landsbyggðina heldur eru rótgrónar
hátíðir í Reykjavík. | 18
Tónlistarsumarið
tvöfaldast
GESTASTOFA Tónlistar- og ráðstefnuhússins í
Reykjavík verður opnuð í júlí, áhugasömum um
húsið og framkvæmdirnar við það og nágrenni
þess til upplýsingar. Gestastofa þessi verður á
efstu hæð svonefnds Strætóhúss við Lækjartorg
sem búið er að mála kolsvart.
Á Gestastofunni verður stór útsýnisgluggi sem
snýr út að Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu. Í þess-
ari upplýsingamiðstöð verða m.a. til sýnis líkön,
bæði smíðuð og í tölvuformi, teikningar af húsinu
og byggingarreitnum og boðið verður upp á ýmsa
fræðandi viðburði í tengslum við þessa miklu
framkvæmd.
Búið er að ráða framkvæmdastjóra rekstrar-
félagsins Ago ehf. sem sér um markaðsmál og
daglegan rekstur Tónlistar- og ráðstefnuhússins,
Theódór S. Halldórsson. | 19
Húsið fær nýtt hlutverk
Gestastofa Tónlistarhússins á efstu hæð Strætóhússins
Morgunblaðið/Golli
Svart Strætóhúsið svartmálað. Á efstu hæð
verður Gestastofa Tónlistar- og ráðstefnuhúss.