Morgunblaðið - 28.07.2008, Side 10
10 MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Ég skil bara ekki HAARDE minn þetta væl í lýðnum eins og þetta eru góðar og billegar
bollur.
VEÐUR
Það er komið bakslag í þróun hinsfrjálsa hagkerfis. Menn hafa
misst þrótt og kjark til að halda
áfram. Það á bæði við um fólk í at-
vinnulífinu og stjórnmálamenn. Nú
á að halla sér meira að hinu op-
inbera.
Byltingin, semhófst með
Thatcher og
Reagan og hófst
af alvöru á Ís-
landi í upphafi tí-
unda áratugar
síðustu aldar hef-
ur verið stoppuð.
Blaðamaðurinn Bob Davis á Wall
Street Journal segir sterkar vís-
bendingar um að áhrifum Reagans-
tímabilsins sé lokið. Krafa um aukna
íhlutun ríkisins í mörgum geirum
atvinnulífsins bendi til þess. Nið-
urstaðan verði að öll þjónusta hækki
í verði og lífskjör almennings
versni.
Dick Armey, fyrrverandi leiðtogirepúblikana í fulltrúadeild
bandaríska þingsins, tekur í svip-
aðan streng. Í grein í Wall Street Jo-
urnal á föstudag segir hann björg-
unarleiðangur stjórnmálamanna í
Washington DC vegna vandræða
íbúðalánasjóðanna Fannie Mae og
Freddie Mac vera hneyksli. Peninga
skattgreiðenda eigi að nota til að
skera óábyrga stjórnendur fjár-
málafyrirtækja úr snöru, sem þeir
hnýttu sjálfir. Látið sé undan þrýst-
ingi hagsmunahópa sem krefjist
þess að ríkisstjórnir „geri eitthvað“.
Á Íslandi er þróunin í sömu átt.
Krafan um opinberar aðgerðir er
hávær. Stutt er síðan krafan var sú
að ríkisvaldið héldi sig sem lengst í
burtu. Menn treystu á eigið ágæti.
Ekki lengur.
Það er skammsýni að treysta umof á aðgerðir ríkisins vegna erf-
iðleika á alþjóðlegum mörkuðum.
Mörg ár tekur að vinda ofan af op-
inberum afskiptum af atvinnulífinu.
Stjórnendur fyrirtækja og almenn-
ingur þurfa hafa þrótt til að þola
mótvindinn. Og missa ekki kjarkinn.
STAKSTEINAR
Margaret Thatcher
Bakslag
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!"#
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
$ $ $
$
$
$
$ $
*$BC
! " #
*!
$$B *!
%&
'
("
(&
("
# !") !
<2
<! <2
<! <2
%#"' (* +,(- !.
C2D
<
$ % &% # ' ( # )' "
$ % &% # ' ( # )' "
62
$ % &% # ' ( # )' "
/0 ((!11 !"( (2
! !(* +
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
FRÉTTIR
„HLAUPIÐ tókst ótrúlega vel og
allir þátttakendurnir voru himinlif-
andi,“ segir Þorsteinn Hymer,
landfræðingur í Vatnajök-
ulsþjóðgarði og einn skipuleggj-
enda Jökulsárhlaupsins. „Sem bet-
ur fer vorum við með tvöfalt magn
af vatnsbirgðum því hitinn var
rosalegur. Það var nánast ekkert
vatn eftir, alveg ótrúlegt hvað
menn innbyrtu.“
Alls voru 166 skráðir til þátttöku
sem er metfjöldi og luku allir
keppni. Þrjár vegalengdir voru í
boði; 32,7 km, 21,2 km og 13,2 km.
Fremsti maðurinn í lengsta hlaup-
inu var Guðmundur Sigurðsson á
tímanum 2:30:22 en fyrst kvenna í
mark var Inga Dagmar Karlsdóttir
á tímanum 3:11:04. Af þátttakend-
unum 166 var sá elsti fæddur 1951
en þeir yngstu 1996. ylfa@mbl.is
Hlaupið í
24°C hita
Innbyrtu ótrúlega
Ljósmynd/Friðrik Þór Óskarsson
Eftir Jón Sigurðsson
Blönduós | Á miðvikudaginn hófust
framkvæmdir við nýja útisundlaug á
Blönduósi. Það er fyrirtækið Ósverk
á Blönduósi sem sér um uppgröft
fyrir grunni en tilboð í uppsteypu
sundlaugar verða opnuð á mánudag-
inn kemur. Ágúst Þór Bragason,
umsjónarmaður tæknideildar
Blönduóss, sagði að stefnt væri að
því að sundlaugin yrði komin í gagn-
ið næsta sumar. Það er meira í spil-
unum en 25 metra sundlaug því hér
er um sundlaugagarð að ræða með
heitum pottum og vaðlaug. Þessi
nýja sundlaug sem nú er verið að
byggja leysir af hólmi tæplega 40
ára gamla innisundlaug.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Sundlaug Ósverk á Blönduósi er lagt af stað með grunn að 25 metra útilaug.
Framkvæmdir við
nýja sundlaug hafnar
Í HNOTSKURN
»Bygging sundlaugarinnarer meðal stærstu fram-
kvæmda Blönduósbæjar hin
síðari ár.
»Nýja sundlaugin verðurlíklega opnuð almenningi
að ári.
Eftir Atli Vigfússon
Þingeyjarsveit | Mikið hefur verið um að vera á sænskum dögum á Húsa-
vík enda margt gert til þess að styrkja tengslin við Svíþjóð af því tilefni.
Sendiherrann á Íslandi, Madeleine Ströje-Wilkens, hefur dvalist þessa
vikuna í bænum en jafnframt ferðast um nágrennið til þess að kynnast
héraðinu. Hún fór m.a. í sveitaheimsókn og hitti þá heimalninginn Emil
sem að sjálfsögðu ber nafn hinnar frægu sögupersónu Emils í Kattholti
eftir sænska rithöfundinn Astrid Lindgren og það kunni Madeleine vel
að meta. Hún sagðist hafa heillast af því sem hún sá og kynntist í sveita-
ferðinni.
Sendiherra Svíþjóðar
heillaðist af Emil
Morgunblaðið/Atli Vigfússon.
Heimalingur Madeleine Ströje–Wilkens var hrifin af heimalingnum Emil.