Morgunblaðið - 28.07.2008, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 28.07.2008, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 2008 11 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 50-80% afsláttur LAGERSALA OUTLET LAUGAVEGI 51 3 DAGAR EFTIR 60-90% AFSL. Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is Í MAÍ síðastliðnum gengu kýr frá þremur búum inn í nýtt og glæsilegt hátæknifjós á Refsstöðum í Hálsa- sveit. Þar tók við nokkurra daga að- lögun þar sem þeim var kennt að láta tvo fullkomna mjaltaþjóna mjólka sig. Það gekk svo vel að í júní voru mjólkaðir tæplega 40.000 lítrar og meðalnytin er um 18 kg á dag. Eigandi Refsstaðabúsins er Jón Kjartansson, sem áður átti búið á Stóra Kroppi í Reykholtsdal. Eins og margir minnast átti Jón í deilum við vegagerðina um vegarstæði og þótt málstaður hans næði fram að ganga árið 1999, seldi hann Stóra Kropp ár- ið 2000. Þá var helst að skilja að hann væri hættur mjólkurframleiðslu. Þegar Jón sýnir blaðamanni nýja fjósið sitt segir hann að svo hafi ekki verið. „Á sínum tíma var búið að teikna nýtt fjós á Stóra Kroppi. En málin æxluðust þannig að eftir fimm ára deilur um vegarstæðið voru allir orðnir lúnir og við ákváðum að hætta þessu, í bili. Ég var þó staðráðinn í því að byggja stórt kúabú. Þegar Haukagil í Hvítársíðu, hér beint norðan við Hvítá, var til sölu og Refs- staðir í kjölfarið, ákvað ég að kaupa jarðirnar og samnýta þær.“ Jón segir að fjósið hafi risið á Refs- stöðum því þangað liggi malbikaður vegur, þar sé þriggja fasa rafmagn, hitaveita og ræktunarmöguleikarnir séu nánast ótæmandi. Á Haukagili séu ekki sömu ræktunarmöguleikar en það sé grasgefin jörð með góða beit. „Þessar tvær jarðir eiga að standa undir heyþörfinni eftir tvö ár,“ segir Jón en það var ráðist í miklar jarðvegsframkvæmdir í fyrra til að undirbúa það. Þangað til hefur hann tryggt sér hey hjá nágrönnum og víðar, auk 1.300 rúllna á Nýjabæ undir Eyjafjöllum, sem hann á. Tölvan vakir yfir skepnunum Fyrir mann sem hafði í æsku reynslu af hefðbundnu fjósi, þar sem handmjólkað var, er ævintýralegt að skoða hátæknifjós af fullkomnustu gerð. Innst í fjósinu er á annar tug kálfa og „kálfafóstran“, mjólk- unarbúnaður sem skammtar hverjum kálfi sex lítra á dag. Kálfar sem kýr hafa tölukubb á hálsólinni þannig að tækin þekki hvaða skepna á í hlut. Þar eru þrjár sjúkrastíur, mjólk- urhús er ekkert, heldur bara stór geymir sem hinir fullkomnu mjalta- þjónar, eða róbótar, dæla þeirri mjólk inn í sem þeir telja fyrsta flokks. Mjaltaþjónarnir þvo júgrin, koma mjaltabúnaðinum sjálfvirkt fyrir á spenunum og mjólka. Að mjöltum loknum er búnaðurinn sótthreins- aður. Kýrin étur á meðan fóðurbæti sem henni er skammtaður – en ef hún drollar að mjöltum loknum fær hún smárafstuð til að koma henni frá. Kýrnar hafa síðan 123 bása og mikið rými til að ganga um, þar sem þær geta gengið í grænfóður, brynning- artæki – og að stórum burstum sem snúast og klóra og njóta greinilega mikilla vinsælda. Í litlu herbergi með útsýni yfir fjósið er tölvan sem segir til um það hvernig hver kýr hefur það, hvað hún hreyfir sig, hvað hún jórtrar oft á dag, hvað hún er þung og hvernig hún mjólkar. Þar er líka veð- urstöðin sem stillir glugga og hita eft- ir veðri. Þennan dag eru allar dyr þó upp á gátt og sér til jökla í sólinni. Undir fjósinu er svokallað kanalkerfi, um 200 metra langt, þar sem eins- konar skipsskrúfa heldur mykjunni á hreyfingu. Úr því kerfi er henni síðan dælt í haughús. „Þetta er svo ótrúleg tæknivæðing, að maður trúir því varla,“ viðurkennir Jón. „Þetta hefur allt tekist afskaplega vel. Skepnunum virðist líða afskaplega vel. Hver þeirra hefur um átta fer- metra. Það eru um 150 gripir hér inni og það er eins og við séum á mál- verkasýningu – það heyrist ekki baul,“ segir hann og hlær. Þótt tölvan vaki yfir skepnunum vekur það athygli að kýrnar hafa allar sín hefðbundnu nöfn; Rák, Harpa, Gella, Hetja – ein heitir þó Vísitala. Jón brosir bara þegar hann er spurður að því hvort það vísi í fyrri starfsvett- vang hans í bankageiranum í Sviss og hér heima. Mistök að loka Borgarnesbúinu Jón segir Refsstaðabúið vera ein- hvers staðar á bilinu þrjú til tíu yfir stærstu kúabú landsins, það séu til stærri félagsbú en hann standi einn í þessu. Þá kemur upp úr dúrnum að í framtíðinni hefur hann hug á að koma upp öðru jafn stóru fjósi. Hann segir vinnuna við bú sem þetta fyrst og fremst eftirlitsstörf, en gert sé ráð fyr- ir fjórum stöðum við búið. Mjólkinni er ekið til Reykjavíkur. „Já, því miður er ekkert mjólkurbú í Borgarnesi lengur,“ segir hann. Ég held að það hafi verið mistök að leggja nýjasta mjólkurbú landsins niður. All- ur þessi samruni veldur byggða- röskun. Það er landsbyggðinni til góðs ef iðnfyrirtæki starfa á svæðinu og þjónustan er betri.“ Jón segir þróunina vera þá að kúabúin verði að stækka til að þetta borgi sig. „Aðstæðurnar sem við búum við núna, með þessari miklu hækkun á aðföngum, olíu, áburði og kjarnfóðri, hraða þeirri þróun frekar en hitt. Þetta kemur illa við alla en sérstaklega smærri einingarnar, þar sem fasti kostnaðurinn er jafn mikill. Ef ekkert breytist kæmi mér ekki á óvart ef kúa- bændur hættu í stórum stíl á næstu ár- um.“ Málglaður mjaltaþjónn Bústjórarnir Violetta Heiðbrá Hauksdóttir og Árni Þorsteinsson fluttu að Refsstöðum er búið tók til starfa, með fimm börn. Hún segir að vissulega hafi þau þurft að læra á alla þessa tækni. „En þetta er snilld,“ bætir Violetta við. „Tölvan hefur upplýsingar um allar kýrnar og segir okkur hvert ástandið er. Við hreinsum og fylgjumst með. Það var mikil törn fyrst, að venja kýrnar við, en það er farið að skila sér. Kýrnar koma greinilega frá góðum bú- um, eru rólegar og líður vel. Það hefur auðveldað aðlögunina.“ Árni bætir brosandi við að mjalta- þjónarnir séu góðir samverkamenn, þeir pirri sig aldrei yfir neinu, þótt kýrnar kunni að vera lengi að skilja hvernig hlutirnir eiga að ganga fyrir sig. Þá hringir sími Árna og hann hlustar. Snýr sér svo að öðrum mjalta- þjóninum og segir að það hafi verið hann sem hringdi; kýrin sem er verið að mjólka þarfnast aðstoðar. „Róbótinn getur verið svolítið mál- glaður,“ segir Árni, „hann er alltaf að spjalla við okkur. En hann veit hvað hann syngur.“ „Eins og á málverkasýningu“ Morgunblaðið/Einar Falur Tæknilegt „Þetta er svo ótrúleg tæknivæðing, að maður trúir því varla,“ segir Jón Kjartansson. Kýr frá þremur bú- um komu saman á Refsstöðum í maí og hefur aðlögunin gengið framar vonum. Meðalnytin er um 18 kg á dag. Morgunblaðið/Einar Falur Refsstaðafjósið Fagurt útsýni.  Jón Kjartansson hefur byggt hátæknifjós fyrir 123 mjólkurkýr á Refsstöðum í Hálsasveit  Eitt af stærstu kúabúum landsins  Segir matvælaframleiðslu mikilvæga hverri sjálfstæðri þjóð JÓN Kjartansson segist ekki skilja þá stjórnmálamenn sem ekki vilja skoða mögulega þátttöku í Evrópusam- bandinu af alvöru. Nú sé nauðsynlegt að huga að þeim málum. „Við getum ekki búið við þessar sveiflur í efna- hagslífinu,“ segir hann. „Bændur eiga að búa sig undir aukna samkeppni við innfluttar vörur og vera óhræddir við það. Íslenskar landbúnaðarafurðir ættu að hafa ver- ið fáanlegar á evrópskum mörkuðum síðustu tuttugu árin. Íslenskar mjólkurafurðir eru þær bestu í þessum heimshluta. Við eigum nóg af vatni, hreint loft og nóg af ónýttu landrými til að framleiða matvæli, fyrir okkur sjálf og til útflutnings. Ég held að menn átti sig ekki almennilega á því hvað við eigum gífurlega mikla möguleika á því að standast þá samkeppni. Það er algjör tímaskekkja að vera undir verndarvæng hins opinbera. Við eigum að byggja búin upp af þeirri stærðargráðu að við getum keppt við hvern sem er. Þrátt fyrir að það séu erfiðir tímar núna, með gríðarlegri hækkun á aðföngum, áburði, olíu og fóðurbæti eiga menn ekki að einblína á það og detta í einhverja svartsýni. Við eigum þvert á móti að snúast til varnar, byggja búin upp og gera þær ráðstafanir sem eru nauðsynlegar til að lifa við þetta. Matvælafram- leiðsla er hverri þjóð nauðsynleg ef hún ætlar að halda sjálfstæði sínu.“ Höfum lifað við matvælaskort Jón segir það umhugsunarvert að á sama tíma og mat- vælaverð í heiminum hefur snarhækkað sé verið að taka bújarðir á Íslandi undir starfsemi sem gerir ekki lengur kleift að framleiða á þeim matvæli. „Það er alvarlegt mál. Við Íslendingar megum ekki gleyma því að við höfum lifað við matvælaskort og eig- um að varðveita allt land þar sem matvælaframleiðsla er möguleg. Það getur til að mynda komið að því að við verðum að vera sjálfum okkur næg í kornrækt. Gömlu jarðalögin voru ekki góð en ég held að nýju lögin séu verri, ef eitthvað er. Það hefur enginn neitt um það að segja hvað verður um jarðirnar. Það á til að mynda ekki að dreifa sumarhúsum um allar jarðir eins og sveppum. Það heftir mögulega framtíðarþróun í land- búnaði.“ Íslenskar mjólkurafurðir þær bestu í þessum heimshluta Í nýja fjósinu á Refs- stöðum í Hálsasveit eru básar fyrir 123 mjólkandi kýr. Framleiðslurétturinn er 540.000 mjólkurlítrar. Miðað við meðalnyt er hægt að mjólka allt að 800.000 lítra árlega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.