Morgunblaðið - 28.07.2008, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 2008 13
ERLENT
Eftir Sigrúnu Hlín Sigurðardóttur
sigrunhlin@mbl.is
INDVERSK yfirvöld hafa hand-
tekið 30 manns grunaða um aðild að
sprengingum í indversku borginni
Ahmadabad í ríkinu Gujarat.
Hryðjuverkahópur sem kallar sig
Mujahideen sendi indverskum sjón-
varpsstöðvum tölvupóst á laug-
ardagskvöld þar sem sagði að eftir
fimm mínútur yrði hefnt fyrir Guj-
arat, en óeirðir í ríkinu árið 2002
urðu 1.000 manns að bana, flestum
þeirra múslimum. Að nokkrum mín-
útum liðnum byrjuðu sprengjur að
springa víðs vegar um borgina. Alls
sprungu sextán sprengjur í borginni
og aðeins fáeinar mínútur liðu á
milli sprenginga. Lögreglu tókst að
finna eina sprengju sem enn hafði
ekki sprungið og aftengja hana.
Daginn áður, á laugardag, létust
tveir í sjö minni háttar sprengingum
í borginni Bangalore í ríkinu Karna-
taka. Að auki fannst í farmi bíls í
borginni Surat, um 250 km sunnan
við Ahmadabad, sprengiþráður og
vökvi sem lögreglu grunaði að væri
ammoníumnítrat, efni sem oft er
notað í sprengjur.
Árásirnar mögulega
stjórnmálalegs eðlis
Í tölvupóstskeytinu sem Mujahi-
deen-hópurinn sendi var ekki
minnst á sprengingarnar í Banga-
lore og enn er ekki ljóst hvort árás-
irnar tengjast. Báðar borgirnar,
Bangalore og Ahmadabad, eru í
ríkjum þar sem flokkur þjóðern-
issinnaðra hindúa, Bharatiya Ja-
nata, er við völd. Mögulegt er því að
ætlunin hafi verið að senda pólitísk
skilaboð, ekki síst ef sömu aðilar
voru að baki báðum árásunum.
Orðið mujahideen þýðir „her-
menn í heilögu stríði.“ Hópurinn
sem kallar sig þetta lýsti einnig á
hendur sér sprengjuárásum sem
urðu 63 að bana í borginni Jaipur í
fylkinu Rajasthan í maí. Í Rajasthan
er þessi sami flokkur þjóðernissinn-
aðra og í Gujarat og Karnataka við
völd.
Hryðjuverkaárásir verða sífellt
algengari í Indlandi. Sjaldgæft er að
hryðjuverkamenn lýsi árásum á
hendur sér líkt og Mujahideen-
hópurinn hefur gert. Árásirnar eru
þó oft bendlaðar við múslimska
öfgahópa og eru þeir sakaðir um að
reyna að koma af stað átökum milli
hindúa og múslima á Indlandi, en
þeir fyrrnefndu eru í meirihluta. Því
miður á ótti við slík átök við rök að
styðjast eins og fyrrnefnd átök í
Gujarat árið 2002 bera vitni um.
Hryðjuverk á Indlandi
45 manns látnir og 160 slasaðir eftir 16
sprengingar víðs vegar um Ahmadabad
Reuters
Sorg Ættingjar fórnarlamba sprengjuárása í Ahmadabad syrgja í athöfn
þeim til minningar. Alls eru 45 látnir og að minnsta kosti 160 slasaðir.
RANNSÓKN á orsökum þess að gat
kom á þotu ástralska flugfélagsins
Qantas í flugi á föstudag beinist nú
að því hvort súrefniskútur hafi
sprungið. Tveir súrefniskútar eiga
að vera staðsettir á svipuðum stað og
þar sem gatið kom á flugvélarbolinn.
Þotan er af gerðinni Boeing 747-
400. Við athugun eftir slysið fannst
aðeins annar kútanna, en þeir eru á
stærð við súrefniskút kafara. Kútur-
inn sem átti að innihalda aukabirgðir
af súrefni ef neyðartilfelli kæmi upp
var horfinn. Til öryggis verða allir
slíkir súrefniskútar og búnaður
tengdur þeim yfirfarinn í öðrum þot-
um af sömu gerð sem eru í eigu Qan-
tas, alls 34 vélum, fyrir vikulok.
Þetta er áfall fyrir flugfélagið, sem
hefur til þessa gert mikið úr góðu
orðspori sínu í öryggismálum. For-
stjóri flugfélagsins hefur þegar til-
kynnt að hann muni segja af sér eftir
næsta stjórnarfund.
Gat vegna þrýstings að innan
Talsmaður flugöryggismála í
Ástralíu, Peter Gibson, fullyrti að
ekki hefði verið um ryðskemmdir að
ræða eins og menn gátu sér til um í
upphafi. Hins vegar sé ljóst að gatið
hafi orðið vegna þrýstings að innan
og því verði möguleikinn á að súrefn-
iskúturinn hafi valdi slíkum þrýst-
ingi rannsakaður ofan í kjölinn
næstu daga. Ef rannsóknin staðfest-
ir að það hafi verið raunin segir Gib-
son að það verði vísbending um að
betur þurfi að fara ofan í saumana á
öryggi Boeing 747-flota Qantas-flug-
félagsins og líklega fleiri slíkra véla
um heim allan.
Gatið á flugvélinni, sem var á leið
frá Hong Kong til Melbourne orsak-
aði þrýstingsfall í farþegarýminu
sem varð til þess að lenda þurfti vél-
inni í snatri í Maníla á Filippseyjum.
sigrunhlin@mbl.is
Reuters
Gat Þriggja metra gat á þotunni,
sem er af gerðinni Boeing 747.
Gat á þotu
rannsakað
ÁLL sem lifir í leðjutjörnum í Vest-
ur-Afríku hefur orðið vísindamönn-
um varnarmálaráðuneytis Banda-
ríkjanna, Pentagon, innblástur að
byltingarkenndu efni í herklæði.
Állinn er kallaður „risaeðluáll“
vegna þess að hann er svokallaður
lifandi steingervingur, þ.e. hefur
lítið þróast í 96 milljónir ára.
Hreistur hans hefur fjögur lög sem
verja álinn árásum.
Fyrst dreifa hreisturplöturnar
orku höggsins sem állinn verður
fyrir, koma síðan í veg fyrir að
nokkuð komist inn að mjúkum vefj-
um undir hreistrinu, og takmarka
síðan skaðann á hreistrinu sem
höggvið var í. Úr efni með þessa
eiginleika væri kjörið að gera létt
herklæði sem þyldu byssuskot og
sprengjur. sigrunhlin@mbl.is
Herklæði úr
risaeðluáli?
SLÖKKVILIÐ á grísku eyjunni Ródos glímir enn
við skógarelda sem hafa geisað þar síðustu viku.
Myndin sýnir skaðbrunnin tré, en 5.000 hektarar
skóglendis á suðurhluta eyjarinnar eru þegar í
rúst. Óttast er um áhrif eldanna á ferðaþjónustu,
mikilvægan atvinnuveg á eyjunni. Sextugur
maður kveikti eldinn fyrir slysni og hans bíður
fangelsisvist í fjögur ár. Yfirvöld eru gagnrýnd
fyrir hæg viðbrögð og ókipulegt slökkvistarf.
Reuters
Enn barist við skógarelda á Ródos
Eftir Sigrúnu Hlín Sigurðardóttur
sigrunhlin@mbl.is
GORDON Brown, forsætisráðherra
Breta, á ekki sjö dagana sæla.
Verkamannaflokkurinn tapaði auka-
kosningum í kjördæminu Glasgow
East, og skoðanakönnun dagblaðs-
ins Independent gaf enn til kynna
dalandi fylgi flokksins. Fjórðungur
sagðist styðja hann, en tæpur helm-
ingur sagðist styðja Íhaldsflokkinn.
Þá hafa Independent og Guardian
ásamt fleiri breskum blöðum slegið
því föstu að flokksbræður Brown
vilji bola honum burt sem fyrst til að
óvinsældir hans skaði ekki gengi
flokksins í næstu kosningum árið
2010. Að sögn er mikill þrýstingur á
Jack Straw, dómsmálaráðherra, og
Geoff Koon, þingflokksformann, að
biðja Gordon Brown að segja af sér,
eða leiða uppreisn gegn honum ella.
Barack Obama, forsetaframbjóð-
andi demókrata í Bandaríkjunum,
heimsótti Brown í London á laugar-
dag. Þeir tóku sér gönguferð saman
og Obama reyndi að hughreysta
Brown: „Suma mánuði er ég sagður
snillingur, aðra mánuði hálfviti.“
Taldir gera sig líklega
til að bola Brown burt
Gordon Brown óvinsæll meðal almennings – og flokksbræðra
Í HNOTSKURN
»Breski Verkamannaflokk-urinn kemur sífellt verr út
úr könnunum og vinsældir
Gordons Brown fara dalandi.
»Flokksbræður hans erutaldir líta á Brown sem lík-
legan flöskuháls í kosningum
árið 2010 og þrýsta á Jack
Straw og Geoff Koon að hvetja
Brown til að láta af embætti.
TYRKNESK yfirvöld telja hryðju-
verkamenn að baki tveimur spreng-
ingum í Istanbúl í gærkvöld. Tíu
mínútur liðu milli sprenginganna, en
þær urðu að minnsta kosti fimmtán
manns að bana og um 150 slösuðust.
Sprengingarnar áttu sér stað á
torgi í hverfinu Gungoren. Fyrri
sprengingin var í símaklefa og fjöldi
manns safnaðist að torginu til að
huga að þeim slösuðu. Þá reið öflugri
sprenging yfir 40 metrum frá síma-
klefanum og margir þeirra sem drif-
ið hafði að vegna fyrri sprengingar-
innar slösuðust.
Ríkisstjórinn Muammer Guler
sagðist ekki efast um að um hryðju-
verkaárás væri að ræða. Lögregla
sagði málið vera í rannsókn og ekki
ljóst hverjir væru á ferð. Að und-
anförnu hafa vopnaðir öfgahópar
Kúrda, vinstrimanna og múslima
staðið fyrir sprengingum í borginni.
Torgið þar sem sprengingin varð
er í hverfi þar sem íbúarnir eru að
mestu í verkalýðsstétt. Ekki er opið
fyrir umferð bíla á torginu og íbúar
hverfisins vanir að koma þar saman
á kvöldin. sigrunhlin@mbl.is
Sprenging-
ar í Istanbúl