Morgunblaðið - 28.07.2008, Blaðsíða 17
Aðrir drykkir eru mögulegir eins
og vatnið úr krananum sem kostar
þig ekki neitt en er bæði hollt og
gott.“
„Mamma!“
„Allt í lagi. Þú getur þá skoðað
aðra möguleika eins og hvort verð á
kókflöskum sé mismunandi eftir
verslunum og keypt það þar sem
það er ódýrast.“
„Kostar það ekki alls staðar svip-
að?“
„Við skulum bara fara í rann-
sóknarleiðangur og kanna málið.
Ertu til?“
„Vá, mamma, þú ert svo svöl!“
Eftir leiðangurinn:
„Ég trúi því varla að það sé 86
kr. munur á ódýrustu og dýrustu
flöskunni. Þetta er magnað. Ég get
næstum því keypt tvær fyrir eina.
Ég hef sko aldrei spáð í þetta,“
sagði unglingurinn.
„Já, það skiptir máli að sýna
fyrirhyggju og jafnvel kaupa fyrir
viku í einu á ódýrasta staðnum í
stað þess að kaupa tvær á dag á
dýrasta staðnum. Kaupmáttarrýrn-
unin verður ekki eins mikil. Það
borgar sig að bera saman verð á
sömu hlutunum á mismunandi stöð-
um. En ég bendi þér enn á breyt-
ingu á neysluvenjum. Ég hef gert
töflu yfir hvað það kostar að drekka
mismunandi margar kók á dag á
hverju ári og fyrir ungling eins og
þig og jafnvel fullorðna þá eru
þetta ansi háar tölur. Það væri
hægt að gera margt skemmtilegt
fyrir mismuninn á þessum fjár-
munum eins og að fara í utanlands-
ferð, safna sér fyrir bíl eða ein-
hverju öðru sem maður hefði
mikinn áhuga á.“
,,Mamma, getum við gert samn-
ing?“ spyr unglingurinn eftir að
hafa skoðað töfluna.
„Ja, það fer eftir því hvers konar
samning …“
,,Mig langar ekki að hætta að
drekka kók en ég er ætla bara að
drekka eina ½ líters kókflösku á
dag framvegis og vatn inn á milli.
Þannig bæði spara ég og tek upp
heilbrigðari lifnaðarhætti. Má ég
vera samferða þér í ódýrustu búð-
ina einu sinni í viku og kaupa birgð-
ir fyrir vikuna?“
,,Mín væri ánægjan,“ segir
mamman brosandi um leið og hún
velti fyrir sér hversu lengi samn-
ingurinn muni endast. En er á með-
an er. uhj@mbl.is
!!
!
"
#
$
%
$
& '
(
'
"
#$
%$
%$
&$
)
*
## $
'" &$
%( $
%( $
%# )&$
& %% '#(
") $$(
( '$(
( '$(
& &$(
+, "" %'$
'& ) $
)( %&$
)( %&$
" % $
-! Í HNOTSKURN
»Samkvæmt landskönnunsem Lýðheilsustöð gerði á
mataræði Íslendinga árið 2002
drekka strákar á aldrinum
15–19 ára tæpan lítra af gosi á
dag.
»Stúlkur drekka minna afgosi eða hálfan lítra á dag
að jafnaði en meira af vatni og
sódavatni.
»Samdráttur í efnahagslíf-inu getur gefið fólki tæki-
færi til þess að skoða neyslu-
mynstur sitt. Oft má slá tvær
flugur í einu höggi, spara pen-
inga og taka upp heilbrigðari
lífshætti.
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 2008 17
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
42
36
1
05
/0
8
Jarðfræði
í Elliðaárdal Þriðjudagskvöldið29. júlí verður faringöngu- og fræðslu-
ferð í Elliðaárdal undir leiðsögn Einars Gunnlaugssonar
jarðfræðings. Jarðfræði Elliðaárdals er stórkostleg. Í dalnum má
t.d. finna jökulrákaðar grágrýtisklappir, hraun frá nútíma, sjávar-
hjalla og merkileg setlög. Gangan hefst við Minjasafnið
í Elliðaárdal kl. 19.30. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir.
• OR ætlar að knýja meirihluta bílaflota síns með vistvænum eldsneytisgjöfum árið 2013. www.or.is
Þótt orðabókarskilgreining áorðunum „nerd“ og „geek“sé lúði er það frekar úrelt
þýðing og færa má rök fyrir því að
nördar séu litnir jákvæðari augum í
dag. Nördar eru ekki bara sveitt
fólk með þykk gleraugu og meira
að segja gulrótarbuxurnar þeirra
eru tískuvara í dag. Nördar, eða
tæknilega sinnað og afburðagáfað
fólk [ný þýðing blaðanörds], hafa
líka fágaðan smekk og það sést best
á nýjustu úrahönnun heimsins sem
birtist á technabob.com.
1. Úrvalsúrið (Superior Watch)
lítur út eins og mínimalískt arm-
band með ljóstvistum (LED) en er
að sjálfsögðu lúmskt úr. Efri línan
sýnir klukkustundir og neðri röðin
mínútur. Úrvalsúrin eru sérsmíðuð,
rándýr og kannski of flókin fyrir
hinn venjulega Homo Sapien sem
notar oftast bara klukkuna í far-
símanum sínum.
2. EleeNo Cyber-úrið er grófara
en úrvalsúrið en minnir helst á seri-
al-tengi með ljósum. Fyrir þá sem
vilja alls ekki vita hvað klukkan er
gæti EleeNo Cyber verið góður
kostur. Hægt er að fá úrið með
rauðum eða grænum ljósum og leið-
beiningarnar eru skrifaðar með ky-
rillískum stöfum, gangi ykkur vel.
3. Nooka-úrið segir þér hvað tím-
anum líður með stafrænum stöng-
um. Efsta stöngin sýnir klukkutíma
frá 1-6, sú næsta 7-12, þriðja stöng-
in sýnir mínútur og sú neðsta sek-
úndur. Ef fólk ruglast bara við það
að lesa um úrið ætti það sennilega
ekki að kaupa sér slíkt því það er
ekki ódýrt. Nooka fæst í mörgum
útfærslum og litum.
4. Spegla-ljóstvistaúrið frá Dies-
el er heldur dramatískt í útliti en
spegillinn og ljóstvistarnir gera það
að framúrstefnulegum valkosti fyr-
ir bæði hefðbundna nörda og al-
menna úrsjúklinga. Ljóstvistarnir
sjást á bak við skínandi rafhúðað
ytra byrði úrsins og hægt er að for-
rita úrið þannig að það sýni skila-
boð að eigin vali, allt að 20 stafi.
5. Nekura-úrið frá TokyoFlash er
sannkölluð himnasending fyrir fólk
sem haldið er valkvíða. Hægt er að
stilla litinn á skjánum að vild, hvort
sem er eftir skapi eða fatastíl. Tvær
gerðir úr burstuðu stáli eru í boði:
hringlaga eða í stangastíl sem
greinilega er vinsæll í nörda-
heimum.
6. Tvöfalda úrið frá Penguin clot-
hing er ætlað þeim sem þurfa að
fylgjast með tímanum á tveimur
stöðum í einu, hvort sem tíminn er í
öðru tímabelti eða annarri vídd
(maður veit aldrei). Flytjist maður
skyndilega milli vídda eða tíma-
belta snýr maður úrinu einfaldlega
við. Vatnshelt stál, þolir sundferðir
og tímaflakk.
7. Matrix M6001-úrið er örugg-
lega sniðugt fyrir nördanýliða. Það
lítur út fyrir að vera flókið en er í
raun mjög einfalt. Stangirnar góðu
eru til staðar en sú efri gefur
klukkustundir til kynna og sú neðri
mínútur með 5 mínútna millibili.
Loks eru neðri stangirnar í bútum
sem sýna einstakar mínútur. Hljóm-
ar flóknara en það er í raun.
8. Endurkastsúrið (Reflection
Red LED watch) er góð gjöf handa
nördinum sem á allt. Ljóstvistar
sem sýna tímann eru í felum á bak
við spegil og birtast bara þegar ýtt
er á takka. Ómissandi þegar matur
er fastur í tönnunum.
liljath@mbl.is
Nýtískuleg
nördaúr
7.
4.
2. 5.
1.
6.
3.
8.
VERSLUNAREIGENDUR treysta oftar en ekki á
hvatvísi kaupenda. Vefmiðill MSNBC greinir frá því að
ýmsum aðferðum sé beitt til að tæla grunlausa neyt-
endur til að draga fram pyngjuna og rannsóknir sýni að
fólk taki oft óskynsamlegar ákvarðanir í búðum.
Uppstilling Ein rannsóknanna sýnir að ánægja kaup-
enda með vöru ræðst af því hvernig sambærilegum
vörum er stillt upp í búðinni. Ef vörunni er stillt upp með
ósamhverfum hætti þar sem hún trónir greinilega yfir
sambærilegum vörum, eru meiri líkur á að kaupandinn
verði ánægður með vöruna, jafnvel þótt hún sé svipuð að
gæðum.
Útsölur Önnur leið til að fá neytendur til að draga
fram veskið er að setja hluti á útsölu. Rannsóknir sýna
að vara sem er merkt með 50% afslætti laðar að sér
kaupendur jafnvel þótt þeir viti ekki upprunalegt verð
vörunnar eða hvert sanngjarnt verð fyrir hana sé. Það
sem merkilegra er, þá kunna margir ekki að reikna pró-
sentur og ruglast sérstaklega í ríminu þegar reikna á af-
slátt af fyrri afslætti.
Spurningar sölumannsins Þriðja leiðin til að villa
um fyrir kaupendum er ekki eins augljós og þær fyrri.
Snjall sölumaður getur haft áhrif á viðskiptavin sem
hyggst ekki kaupa sér neitt í búðinni, með því að spyrja
viðskiptavininn réttra spurninga. Spyrji sölumaðurinn
t.d. hvaða ákveðinn hlut af mörgum kaupandinn kjósi
fram yfir aðra hluti, er hann svo lítið beri á búinn að
breyta hugarfari viðskiptavinarins frá „ætti ég að
kaupa?“ yfir í „hvort ætti ég að kaupa?“ Eftir þessa ein-
földu spurningu hneigist fólk frekar til að festa kaup á
einhverju sem það ætlaði alls ekki að gera áður.
Hvað vill viðskiptavinurinn? Fjórða atriðið sem
sölumaðurinn getur haft í huga til að liðka fyrir sölu er
að þekkja óskir viðskiptavinarins. Enn ein rannsókn á
viðskiptaháttum sýnir að hægt er að fá fólk til að versla
meira með því að bjóða því í svokallað tryggðarkerfi. Þá
er viðskiptavini lofað afslætti og verðlaunum en þarf í
staðinn að versla fyrir ákveðna upphæð.
Hópi fólks sem er hrifið af sushi var boðið í tryggð-
arkerfi þar sem það þurfti að kaupa 10 samlokur. Öðrum
hópi sushi-aðdáenda var boðið í tryggðarkerfi þar sem
það þurfti að kaupa 10 samlokur og 10 skammta af sushi.
Fólk í seinni hópnum var líklegra til að þiggja boðið,
jafnvel þótt það fengi enga frekari afslætti en fyrri hóp-
urinn og þyrfti auk þess að eyða meiri pening í allt sushi-
ið.
Reuters
Kaupa, kaupa, kaupa Það getur verið auðvelt að falla í þá freistni að eyða um efni fram.
Bellibrögð búðareigenda