Morgunblaðið - 28.07.2008, Page 18

Morgunblaðið - 28.07.2008, Page 18
18 MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Ólafur Þ. Stephensen. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Ætlunin erað verja160 milljónum króna til þess að rann- saka hvort olíu geti verið að finna á hinu svokallaða Drekasvæði á milli Jan Mayen og Íslands. Í fréttaskýringu Arnþórs Helgasonar blaðamanns í Morgunblaðinu í dag kemur fram að margt er líkt með hafsbotninum á Drekasvæð- inu og botninum á norska landgrunninu. Rannsóknarskipið Árni Friðriksson er nýkomið úr leiðangri þar sem rúmlega tíu þúsund ferkílómetra svæði á hafsbotninum nyrst á Dreka- svæðinu var kortlagt og nú liggja því fyrir mun nákvæm- ari upplýsingar um það en áð- ur. „Meðal þess sem við mæld- um voru holur um 15 m djúp- ar og allt að 700 m í þvermál. Slíkar holur í setlögum hafa mikið verið rannsakaðar því að þær hafa víða fundist á ol- íuvinnslusvæðum eins og í Norðursjónum,“ segir Guð- rún Helgadóttir, jarðfræð- ingur hjá Hafrannsókna- stofnun, sem stýrði leiðangrinum. Olían hefur breytt norskum efnahag. Nú eru bundnar vonir við að olía finnist við Grænland. Bandarískir vís- indamenn sögðu nýlega frá því að miklar olíulindir gæti verið að finna á norðurpólnum. Það verður hins vegar að segjast að fréttir af nýjum olíusvæðum hljóma um þessar mundir eins og tilkynning um lengingu á gálgafresti til þess að leita nýrra leiða til að upp- fylla orkuþarfir mannkyns. Rannsóknirnar á Dreka- svæðinu lúta að undirbúningi útgáfu sérleyfa til leitar, rannsókna og vinnslu á olíu og gasi þar. Líklegt er að olíu- félög muni sýna þessu svæði áhuga. Eftir því sem olíuverð hækkar verða þau tilbúin til að leggja í meiri kostnað og setja erfiðar aðstæður síður fyrir sig. Ef olía finnst gæti það reynst búhnykkur fyrir Ís- lendinga. Það er hins vegar fullkomlega ótímabært að binda miklar vonir við olíu. Hins vegar er full ástæða til þess að leggja aukinn kraft í þróun vistvænnar orku. Allar forsendur eru fyrir hendi til þess að gera Ísland óháð olíu. Þróunin í framleiðslu vist- hæfra ökutækja er hröð. Enn er vitaskuld deilt um það hvaða leið eigi að fara og engin leið að sjá hvort metan, vetni, rafmagn eða aðrir kost- ir verða ofan á. Þótt olía gæti – tímabundið – orðið íslensk útflutningsvara á að leggja áherslu á að finna leiðir til að losna úr viðjum olíunnar. Allar forsendur eru fyrir hendi til þess að gera Ísland óháð olíu.} Orka og olía Jörðin titrarundir Gordon Brown, forsætis- ráðherra Bret- lands. Pundið lækkar, matur hækkar í verði og bensín sömuleiðis og óánægja Breta magnast. Sigur skoska þjóð- arflokksins í aukakosningum á fimmtudag í austurhluta Glasgow, þar sem Verka- mannaflokkurinn hefur átt öruggt vígi, þykir reiðarslag. Kröfur hafa verið settar fram um að hann segi af sér og deilt er um hver eigi að fylgja í fótspor hans. Árum saman var Brown í skugga Tonys Blairs, en sviðsljósið hefur ekki verið honum gott. Gagnrýnendur Browns eru flestir tregir til að koma fram undir nafni, en tíðindum þyk- ir sæta að Paul Kenny, leið- togi eins stærsta stétt- arfélags landsins, hefur opinberlega sagt að Brown eigi í haust að láta endurkjósa sig til forustu. Telja flestir að þetta sé lítt dulbúin yfirlýsing um að tími Browns sé úti. Hins vegar verður að telja ólíklegt að til þess komi og eigi að þvinga hann til þess þarf fimmt- ungur þingmanna flokksins að knýja á um það. Þegar eru líka hafnar um- ræður um hver eigi að taka við af honum. Nafn Jacks Straws, sem nú gegnir emb- ætti dómsmálaráðherra, hef- ur verið nefnt og sömuleiðis nöfn Davids Milibands utan- ríkisráðherra og Alans John- sons heilbrigðisráðherra. Staða Browns og baktalið um hann er vatn á myllu Íhaldsflokksins, sem undir stjórn Davids Camerons hef- ur náð vopnum sínum eftir langa eyðimerkurgöngu. Cameron hagnast á for- ustuleysi Browns. Ef úrslitin í Skotlandi eru einhver vís- bending um það sem koma skal á Verkamannaflokkurinn yfir höfði sér rækilega útreið hjá kjósendum í næstu kos- ingum. Allt bendir til þess að landslagið í breskri pólitík muni taka miklum breyt- ingum á næstu misserum. Staða Gordons Browns veikist hratt.} Pólitískur skjálfti á Bretlandi Þ að er gott að vera Reykvíkingur. Þó er ég viss um að það er líka gott vera Dalvíkingur eða Súg- firðingur. Það er gott að vera Reykvíkingur, jafnvel þótt stund- um andi einkennilega köldu frá einstaka íbúa landsbyggðarinnar. Nýlega heyrði ég skoðun landsbyggðarmanns sem sagði í tengslum við virkjanamál á landsbyggðinni, að borgarsam- félagið hirti mikinn meirihluta af þjóðartekj- unum, meðan landsbyggðin sæti á hakanum. Á spýtunni hékk auðvitað það, að velferð landsbyggðarinnar á 21. öld væri ekki borgið nema með því að virkja, sem væri að verða erfitt vegna umhverfisfasistanna í Reykjavík! Hverju svarar maður svona fullyrðingu? Ja, Reykjavík er nú einu sinni höfuðborgin, þar er jú stjórnsýslan, stórar stofnanir, skólar, þjón- usta og við höfum skoðanir á landi okkar og þjóð rétt eins og aðrir; eitthvað á þann veginn reynir maður að malda í móinn þegar samfélag okkar Reykvíkinga er vænt um að vera skoðanakúgandi afæta á þeim sem á landsbyggðinni búa. Ég spyr mig hvort ég eigi að leyfa samviskubitinu, sem meðvitað eða ómeðvitað er verið að sá í hugi Reyk- víkinga, að skjóta rótum – hér hef ég þó kosið að búa. Nei! Það ætla ég ekki að gera. Ég ætla heldur ekki að segja að slík skoðun sé „landsbyggðarvæll“, mér finnst hún einfaldlega ósanngjörn og ráðast af biturð og beisk- um kenndum. Ég get vel unnt – ja, segjum Kópa- skersbúum, að geta ekið á góðum vegi heiman og heim, þótt ég eigi ekki oft leið þar um. Það kostar mig peninga í skattfé, en þá peninga greiðir maður auðvitað með glöðu geði ef maður á annað borð vill lifa í samfélagi við fólk. Ég er líka fullkomlega hlynnt því að sveitarfélögum sem eiga í vök að verjast vegna samdráttar í afla sé komið til aðstoðar með fjármunum svo þau geti fundið sér nýjar leiðir til velfarnaðar. Það er eðlilegt í samfélagi fólks. En jafnvel þótt ég sé Reykvíkingur, mun ég ekki afsala mér skoðun á því, sem gert er á landsbyggð- inni, og síst af öllu á því sem gert er við landið mitt og hefur í för með sér langvarandi eyði- leggingu, jafnvel þótt aðgerðirnar kunni að metta munna um sinn. Það vandamál er mun auðveldara að leysa en afdrifarík landspjöll með tilheyrandi mengun. Landsbyggðin hefur forskot. Það felst í næstum tvöföldu vægi hvers einstaklings og atkvæðis hans í þingkosningum á við Reykvíking. Meðal Reykvík- inga virðist þetta ekki hitamál, því fáa heyri ég hreyfa þeirri umræðu að þörf sé á að breyta kjördæmaskipan í landinu og gera það að einu kjördæmi, svo engum sé mis- munað. Einhvern veginn efast ég þó um að landsbyggð- armanninum þætti það góð hugmynd, þótt mér finnist hún sanngirnismál. Sem betur fer er gróska og góður andi víðast hvar í landinu okkar og því fer víðs fjarri að bölmóðurinn gagnvart höfuðborginni sé almennur. Þeg- ar hann skýtur upp kollinum er þó rétt að minna á, að Reykvíkingar byggja líka þetta land. begga@mbl.is Bergþóra Jónsdóttir Pistill Til varnar Reykvíkingum Ódýrari starfskraftur gætir hverfanna FRÉTTASKÝRING Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is M iðað við þá miklu um- ræðu sem hefur spunnist um einka- rekna hverfagæslu á síðustu vikum mætti halda að um umfangsmikla starfsemi væri að ræða. Svo er þó ekki því eina sveitarfélagið sem hefur samið um hverfagæslu er Seltjarnarnes. Það er þó hugsanlegt að umfangið aukist því bæjaryfirvöld í Kópavogi ákváðu ný- lega að fylgja fordæmi Seltirninga og þá hefur bæjarstjóranum í Mos- fellsbæ verið falið að kanna hvort bærinn eigi að bjóða út hverfagæslu. Þótt sumir sveitarstjórnarmenn telji þörf á hverfagæslu og bendi á að hún geti dregið úr afbrotum, hefur enginn gefið í skyn að einkareknu hverfagæslunni sé ætlað að koma í stað löggæslu. Það er heldur ekki að furða því um er að ræða tvo mjög ólíka hluti, jafnvel þótt starfssvið þessara stétta geti stundum skarast. Engar aukavaldheimildir Í fyrsta lagi hafa öryggisverðir, sem sinna hverfagæslunni, engar valdheimildir umfram venjulegan borgara. Þeir mega því ekki bera kylf- ur, handjárn eða önnur slík tæki sem lögregla ber á sér við störf sín. Örygg- isverðir eru nefnilega ekki löggæslu- menn. Þeirra hlutverk er fyrst og fremst að fylgjast með og fæla óprúttna menn og konur frá því að brjóta af sér en eins og kunnugt er vill misindisfólk yfirleitt stunda sína iðju án þess að aðrir sjái. Að því sögðu má minna á að örygg- isverðir, rétt eins og venjulegir borg- arar, hafa rétt á að handtaka mann, að því gefnu að þeir standi hann að broti sem sætt getur opinberri ákæru og getur varðað fangelsi. Þetta er svo- nefnd borgaraleg handtaka. Örygg- isvörðum er hins vegar uppálagt að koma sér aldrei í aðstæður sem ógnað geta öryggi þeirra og það er því afar ólíklegt og í flestum tilvikum afar varasamt fyrir öryggisvörð að reyna slíkar æfingar. Nægir þá að benda á að lögreglumenn þurfa oft að beita öll- um sínum styrk og kunnáttu í sjálfs- vörn og lögreglutökum til að koma mönnum í handjárn og ljóst að þeir væru illa settir gætu þeir ekki gripið til járnanna, atvinnutækis sem örygg- isverðir ráða ekki yfir. Hér er þá komið að öðru atriði sem skilur öryggisvörð frá lögreglumanni; þjálfuninni. Til þess að gerast lög- reglumaður þarf að ljúka 12 mánaða fullu námi í lögregluskólanum. Til þess að gerast öryggisvörður hjá Sec- uritas þarf tveggja daga námskeið og síðan að sækja námskeið í skyndihjálp og viðbrögðum við bruna sem samtals taka 20 klukkustundir. Ódýrari starfskraftur Í þriðja lagi má benda á starfsrétt- indi og kjör lögreglumanna annars vegar og öryggisvarða hins vegar. Byrjunarlaun lögreglumanns í dag- vinnu eru 182.202 krónur og með næt- urvinnu og 38 stunda yfirvinnu getur nýútskrifaður lögreglumaður vonast til að fá 383.864 krónur í heildarlaun. Launakjör öryggisvarða eru slakari. Byrjunarlaun þeirra eru á bilinu 146- 160.000 krónur og samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins eru með- alheildarlaun öryggisvarða, nýliða sem annarra, um 300.000 krónur. Þar að auki eru tryggingaréttur þeirra og eftirlaunakjör ekki eins góð og bún- aður þeirra ekki nándar nærri eins dýr og hjá lögreglu. Öryggisverðir eru sem sagt mun ódýrari starfskraftur. Samningur Seltjarnarness við Sec- uritas varpar líka ljósi á þetta. Bærinn áætlar að kostnaður við samninginn verði 4,5 milljónir á ári eða 12.328 krónur á dag. Það er líklega ódýrara en að fá lögreglumann en þjónustan er heldur ekkisambærileg. . /   0 ,     /  , 112 113 11 41 31 51 21 61 71 81 1 1 1           9! 113115112  ! " !     # $   ! " !     # $   ! " !   *   +   , -. / Á SAMA sama tíma og mikið er rætt um einkarekna hverfagæslu í sveitarfélögum á höfuðborg- arsvæðinu, þá hefur innbrotum á þessu sama svæði fækkað verulega frá í fyrra. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglu höfuðborgarsvæðisins voru voru framin 361 innbrot í heimili á fyrstu sex mánuðum ársins 2007 en á sama tímabili á þessu ári voru innbrotin 254. Þetta er um 30% samdráttur í innbrotum. Þá segir Rannveig Þórisdóttir, félagsfræðingur hjá lögreglustjór- anum á höfuðborgarsvæðinu, að tíðni innbrota hafi nánast haldist óbreytt síðustu ár og að brotist hafi verið inn á tæplega 1% heimila á ársgrundvelli og eru þá geymslur og nýbyggingar talin með. Erfitt er að segja til um ástæður fyrir sveiflum í innbrotum, hvort sem er tímabundna fækkun eða fjölgun. Ljóst er þó að einstaka af- kastamikill innbrotsþjófur getur haft veruleg áhrif á tölfræðina. MUN FÆRRI INNBROT ››

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.