Morgunblaðið - 28.07.2008, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 2008 29
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Heilsa
Léttist um 22 kg á aðeins
6 mánuðum
LR-kúrinn er ótrúlega einfaldur og
auðveldur. Engin örvandi efni. Uppl.
Dóra 869-2024, www.dietkur.is
Húsgögn
Sjónvarpssamst./ hillusamstæða
til sölu úr Hirslunni. Kirsuberjaviður.
4 hillur fylgja með, hægt að tengja
saman. Mjög vel með farið, selst á
frábæru verði! 35 þús. saman.
Uppl. í s: 840-7066 / 557-8151.Atvinnuhúsnæði
Leiga Dugguvogi 6
Skrifstofuhúsnæði ca. 60 fm, 2. hæð.
Góð bílastæði og góð aðkoma.
Uppl. 693 7815.
Sumarhús
Rotþrær, heildarlausn (“kit”)
á hagstæðu verði. Sérboruð siturrör,
fráveiturör og tengistykki.
Einangrunarplast og takkamottur.
Borgarplast, Seltjarnarnesi, sími
561 2211. Heimasíða:
www.borgarplast.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Tölvur
Vantar þig hjálp með tölvur?
Bjóðum upp á trausta og góða
tölvuþjónustu fyrir lítinn pening.
Tökum að okkur öll verk. Tökum ekk-
ert gjald ef lausn á vandanum finnst
ekki. Gunnlaugur, 698-8886.
Til sölu
Tékkneskar og slóvenskar
handslípaðar kristal- ljósakrónur.
Mikið úrval. Frábært verð.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Léttir og þægilegir dömuskór úr
leðri, skinnfóðraðir.
Verð: 6.550.- og 6.885.-
TILBOÐ
Léttir sumarskór fyrir dömur
Verð: 1.500.-
Misty skór,
Laugavegi 178, sími: 551 2070
opið mán-fös 10-18
Ath. lokað á laugardögum í sumar
Góð þjónusta, fagleg ráðgjöf
Viðskipti
Skelltu þér á námskeið í
netviðskiptum!
Notaðu áhugasvið þitt og sérþekk-
ingu til að búa þér til góðar tekjur á
netinu. Við kennum þér nákvæmlega
hvernig! Skoðaðu www.kennsla.com
og kynntu þér málið.
Þjónusta
Hitaveitur/vatnsveitur
Þýskir rennslismælar fyrir heitt og
kalt vatn.
Boltís sf.,
símar 567 1130 og 893 6270.
Ýmislegt
Teg. Pina Colada - flottur bh í
D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 5.990,-
buxur í S,M,L,XL kr. 3.990,-
Teg. Raspberry - hnýttur haldari í
D,DD,E skálum á kr. 5.275,- pilsið við
í S,M,L kr. 4.985,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán-fös 10-18,
Lokað á laugardögum.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Málningarvinna
Þaulvanur málari ætlar að bæta við
sig verkefnum í sumar. Inni og úti.
Vönduð og öguð vinnubrögð. Sann-
gjarnt verð. Uppl. í síma 897 2318.
Bílar
Mercedes Benz árg. '99
ek. 96 þús. km
CLK allur sem nýr, leður, topplúga,
sjálfsk., silfurgrár, góð spólvörn, spar-
neytinn, vel með farinn konubíll,
ásett verð 2.300.000, tilb. 1.990.000,
uppl. 893 8744.
DODGE GRAND CARAVAN SXT,
árg. 2007 ekinn 57 þús. Stow n’Go.
Með öllum fylgihlutum nema leðri og
dvd. Upplýsingar í síma 894 3095.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, FWD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla
- akstursmat - kennsla fatlaðra
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
Nýr BMW 116i ´07.
Bifhjólakennsla.
8921451/5574975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Kær vinkona okkar,
Jónína Friðfinnsdótt-
ir, er látin fyrir aldur
fram, aðeins 68 ára að
aldri.
Það setur mann alltaf hljóðan þeg-
ar frétt af andláti berst manni, við
fengum fréttir af andláti Jónínu í
miðju meistaramóti í golfi, við féll-
umst í faðma og tár vættu vanga af
söknuði.
Þrátt fyrir mikil veikindi lét hún
það ekki aftra sér í daglegu amstri.
Hún var sterkur persónuleiki,
hjartahlý og vinur vina sinna. Jónína
var okkur öllum mjög kær, við urð-
um henni samferða í golfinu þar sem
hún lék af fingrum fram. Jónína var
yndisleg vinkona og áttum við með
henni góðar stundir bæði í golfi og
utan golfvallar, hún var hrókur alls
fagnaðar og vildi öllum vel.
Jónína var liðsstjóri okkar í sveita-
keppnum, áður en keppni hófst sett-
ist hún alltaf niður með okkur og gaf
okkur góð ráð. Það var ekki æsingn-
um fyrir að fara hjá Jónínu, hún var
alltaf sallaróleg, viðkvæðið hjá henni
var alltaf: „Stelpur mínar, þið gerið
ykkar besta, ég get ekki farið fram á
meira,“ síðan læddi hún að okkur
þurrkuðum ávöxtum, sem hún var
búin að pakka með mikilli umhyggju
handa okkur fyrir hringinn og
strauk á okkur bakið þegar við hver
og ein héldum af stað út á völl. Allan
hringinn gekk hún á milli okkar til að
aðgæta hvernig gengi, hvort okkur
vanhagaði um eitthvað, og gaf okkur
klapp á bakið með góðum orðum.
Við viljum þakka Jónínu fyrir
Jónína Friðfinnsdóttir
✝ Jónína Frið-finnsdóttir
fæddist í Reykjavík
8. desember 1940.
Hún lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut 11. júlí síðast-
liðinn og fór útför
hennar fram frá
Fossvogskirkju 17.
júlí.
samfylgdina og vinátt-
una og biðjum góðan
Guð að styrkja Hall-
grím og fjölskyldu á
þessari sorgarstundu
og sendum þeim okkar
innilegu samúðar-
kveðjur.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm
stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta
blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta
skalt.
(V.Briem.)
F.h. kvennasveita Golfklúbbsins
Odds,
Jenetta Bárðardóttir.
Ég man hvað það
var skemmtilegt að
heimsækja þig á Vall-
arbrautina sem lítill krakki, enda var
stutt að fara þar sem ég átti heima
rétt hjá þér. Við kíktum stundum til
þín, ég og Reynir frændi, og þú gafst
okkur möffins og mjólk með. Þegar
við ætluðum út að leika reyndir þú að
Vigdís Matthíasdóttir
✝ Vigdís Ragn-heiður Matthías-
dóttir fæddist í
Hamarsbæli við
Steingrímsfjörð 5.
nóvember 1930.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Akraness 16.
júlí síðastliðinn og
fór útför hennar
fram frá Akra-
neskirkju 25. júlí.
dúða okkur upp, enda
vildir þú ekki að strák-
unum þínum yrði kalt.
Ég man hvað það var
gaman að fara á jóla-
dag til þín í kaffi og
kökur, allt eldhús-
borðið hlaðið kökum
og kræsingum. Nú á
síðari árum voru heim-
sóknirnar til þín færri,
en alltaf jafn ánægju-
legar. Við sátum inni í
eldhúsi, drukkum kaffi
og spjölluðum um dag-
inn og veginn.
Elsku amma Dísa mín, takk fyrir
allar góðu stundirnar, og það er ein
setning sem þú sagðir alltaf, sem ég
mun aldrei gleyma: „Já, það er nú
líkast til.“
Guðjón Þór Grétarsson.
Elskuleg tengda-
móðir mín er farin í
ljósið.
Ég veit að það er þér léttir að fá að
fara, núna ertu laus við kvalir og
komin til Tomma (tengdapabba) sem
þú ert búin að sakna frá því að hann
kvaddi þennan heim fyrir 3 árum.
Sterk og gjöful persóna hefur lok-
ið sínu ævistarfi, snert mörg hjörtu
Sigríður Kristín
Pálsdóttir
✝ Sigríður KristínPálsdóttir fædd-
ist í Stóru-Sandvík í
Árnessýslu, 5. febr-
úar 1930. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurlands 16. júlí
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Selfosskirkju 24.
júlí.
til góðs og gefið mikið
til samferðafólksins
með umhyggju og
kærleik.
Það var aldrei kom-
ið til Siggu án þess að
maður fengi rausnar-
legar kræsingar.
Stúlkurnar okkar
Magga sóttu alltaf í að
fara til ömmu í Sand-
vík og ekki ósjaldan
byrjað á að spyrja
hvort hún vildi kanski
spila smá og alltaf
hafði hún amma Sigga tíma fyrir
stelpurnar sem og annað smáfólk og
fósturbörnin okkar sóttu líka í
ömmu. Hún átti alltaf til hlýju og
tíma til handa þeim.
Elsku Sigga, takk fyrir samfylgd-
ina, hlýjuna og traustið sem ég fann
alltaf hjá þér frá því er ég kom fyrst
18 ára horaður táningurinn og var
mjög fljótt flutt til þín.
Megi almættið vaka yfir sálum
ykkar Tomma, hafðu þökk fyrir þitt
fagra ævistarf. Þú verður með okkur
í sálum okkar.
Kveðja,
Líney.
Elsku amma, þetta voru mjög
miklar sorgarfréttar þegar ég frétti
að þú værir farin frá okkur en samt
léttir líka að þurfa ekki að hugsa um
þig lengur liggja og þjást, ég held að
þetta hafi verið þér fyrir bestu og
það sem þú vildir.
Elsku amma, ég bið fyrir þér á
hverju kvöldi og vona að þú hafir það
gott þarna uppi hjá afa, hann hefur
verið ánægður að fá þig til sín. Ég
vona að þú getir séð allt sem skeður
hjá okkur, þó ég viti nú að þú sért
ekki sátt við allt en vonandi flest.
Þó þung séu oft sporin á lífsins leið,
og ljósið svo skelfing lítið,
skaltu eiga þér von, sem þinn vin í neyð,
það virkar, en virðist skrýtið.
Því vonin hún vinnur gegn myrkri og
kvíða,
og veitir þér styrk sinn í stormi og byl.
Sjá ljósið mun stækka, og þess skammt er
að bíða,
að sólskinið sjáir, ég veit það er til.
(SHL.)
Þitt elskandi barnabarn
Veiga Dögg M.
frá ömustelpunum þínum:
Kæra vina, ég sakna þín,
ég vildi að þú kæmist aftur til mín.
En þú ert umvafin ljósi þar,
eins og þú varst reyndar alls staðar.
Sárt er að horfa á eftir þér,
en ég veit að þú munt muna eftir mér.
Því þitt hreina hjarta og bjarta sál,
munu þerra okkar tregatár.
(Sigríður Vigdís Þórðardóttir.)
Ólöf Huld, Veiga Dögg
og Tinna Björk.
HINSTA KVEÐJA
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Lengd | Minningargreinar séu ekki
lengri en 3.000 slög (stafir með bil-
um - mælt í Tools/Word Count).
Ekki er unnt að senda lengri grein.
Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og
votta þeim sem kvaddur er virðingu
sína án þess að það sé gert með
langri grein. Ekki er unnt að tengja
viðhengi við síðuna.
Minningargreinar