Morgunblaðið - 28.07.2008, Síða 32

Morgunblaðið - 28.07.2008, Síða 32
32 MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Jóhann A. Kristjánsson jak@ismennt.is FJÓRÐU umferð Íslandsmeist- aramótsins í rallakstri, Skagafjarð- arrallinu, sem fram fór á laugardag, lauk með sigri Sigurðar Braga Guð- mundssonar og Ísaks Guðjónssonar á Mitsubishi Lancer Evo 7 eftir harða og jafna keppni. Með sigri sín- um taka Sigurður og Ísak forystuna í Íslandsmeistaramótinu en þeir eru nú með eins stigs forskot á Pétur S. Pétursson og Heimi S. Jónsson á Mitsubishi Lancer Evo 6. Pétur og Heimir leiddu Íslands- meistarakeppnina fyrir Skagafjarð- arrallið og var staða þeirra vænleg þar sem þeim dugði þriðja sætið í keppnunum, sem eftir voru, til að ná titlinum. En þótt sólin skini við Skagafirði á laugardaginn, brosti hún og gæfan ekki við Pétri og Heimi. Rallið hófst á því að þeir mættu of seint í ræsingu á fyrstu sérleið og fengu þar á sig einnar mín- útu refsingu. Ekki jókst lán þeirra á fyrstu sérleiðinni því þeir óku út af og sprengdu dekk. Töpuðu þeir tölu- verðum tíma við að skipta um það og náðu ekki að vinna sig út úr því það sem eftir var rallsins. Það er því ljóst að Pétur og Heimir verða að taka verulega á í Alþjóðarallinu og Haust- rallinu ef þeir ætla að endurheimta forystuna og ná að landa Íslands- meistaratitli á sínu fyrsta ári í grúppu N. Óku hraðast Jón Bjarni Hrólfsson og Borgar Ólafsson voru að aka hraðast allra í Skagafirðinum en þeir fengu að kynnast því að Mælifellsdalurinn er vægðarlaus og refsar mönnum illi- lega, verði þeim á. Á þriðju sérleið gættu þeir félagar sín ekki nógu vel og misstu Mitsubishi Lancer Evo 7 út af með þeim afleiðingum að þeir sprengdu dekk. Þetta var í upphafi leiðarinnar og þá ákváðu þeir að skipta um sprungna dekkið, minn- ugir þess er þeir duttu út úr Reykja- nesrallinu eftir að hafa ekið megnið af Djúpavatninu á sprungnu og stór- skemmt stýrisganginn í bílnum. Tímatap þeirra við dekkjaskiptin nálgaðist fjórar mínútur og þrátt fyr- ir hörkuakstur tókst þeim einungis að vinna upp um tvær mínútur. Sigurður Bragi og Ísak óku af mikilli skynsemi. Þeir eru reynslu- mestir þessara áhafna og þekkja Mælifellsdalinn vel að góðu og illu. Þeir gættu þess að halda forystunni án þess að taka óþarfaáhættu en með því lönduðu þeir sigrinum sem fyrr sagði. Fyrsti sigur Focus-bræðranna Í eindrifsflokki sigruðu bræðurnir Gunnar og Jóhann Hafsteinssynir en þeir aka Ford Focus og eru á sínu fyrsta keppnisári í rallinu. Í fyrri keppnum sumarsins hefur lánið ekki leikið við þá en að þessu sinni snerist það við og þeir óku Mælifellsdalinn klakklaust og af öryggi. Meistarakokkurinn mætir aftur Í jeppaflokki sigruðu Hilmar B. Þráinsson og Kristinn B. Sveinsson en þeir óku Jeep Grand Cherokee- jeppa sínum af miklum hraða og ör- yggi um Mælifellsdalinn. Helstu keppinautar þeirra voru gömlu jaxl- arnir Sighvatur Sigurðsson og meist- arakokkurinn Úlfar Eysteinsson en þeir Sighvatur og Úlfar eru komnir með nýjan jeppa, Mitsubishi Pajero Sport, eftir að hafa tekið sér þriggja ára hlé frá rallinu. Sigurður Bragi og Ísak taka forystuna Fjórum umferðum í Íslandsmeist- aramótinu í rallakstri lokið Ljósmyndir/Jóhann A. Kristjánsson Sigruðu Sigurður Bragi Guðmundsson og Ísak Guðjónsson á fullri ferð í Mælifellsdal. Í loftinu Mikill hraði einkenndi akstur Hilmars B. Þráinssonar og Kristins B. Sveinssonar.Steinaflug Bræðurnir Gunnar og Jóhann Hafsteinssynir sigruðu í eindrifsflokki. Keppendur Ökutæki Flokkur 1 Sigurður Bragi Guðmundsson - Ísak Guðjónsson Mitsubishi Lancer Evo 7 Grúppa N 2 Jón Bjarni Hrólfsson - Borgar Ólafsson Mitsubishi Lancer Evo 7 Grúppa N 3 Fylkir A. Jónsson - Elvar Jónsson Subaru Impreza WRX Grúppa N 4 Valdimar Jón Sveinsson - Ingi Már Jónsson Subaru Impreza GT Grúppa N 5 Páll Harðarson - Aðalsteinn Símonarson Subaru Impreza STI Grúppa N 6 Pétur S. Pétursson - Heimir S. Jónsson Mitsubishi Lancer Evo 6 Grúppa N 7 Jóhannes V. Gunnarsson - Björgvin Benediktsson Mitsubishi Lancer Evo 5 Grúppa N 8 Hilmar B. Þráinsson - Kristinn V. Sveinsson Jeep Cherokee 9 Gunnar F. Hafsteinsson - Jóhann H. Hafsteinsson Ford Focus STI 170R 2000 10 Ólafur Ingi Ólafsson - Sigurður R. Guðlaugsson Toyota Corolla 1600 11 Sighvatur Sigurðsson - Úlfar Eysteinsson MMC Pajero Sport J 12 Kjartan M. Kjartansson - Ólafur Þór Ólafsson Toyota Corolla 1600 13 Ásta Sigurðardóttir - Steinunn Gústafsdóttir Jeep Grand Cherokee Jeppafl. 14 Magnús Þórðarson - Þórður Bragason Toyota Corolla 1600 15 Óskar Þór Gunnarsson - Benedikt Helgason Jeep Cherokee J 16 Einar Hafsteinn Árnason - Kristján Karl Meekosha Nissan Sunny 1600 Eftir Birki Fanndal Haraldsson Mývatnssveit | St. Basil- karlakórinn frá Moskvu undir stjórn Sergei Krivobo- kov flutti rússneska tónlist, bæði andleg og veraldleg verk, í Reykjahlíðarkirkju á laugardagskvöldið við mikla hrifningu gesta. Setið var á hverju tré í kirkjunni og var augljóst að sá rússneski hljómur sem kórinn vekur hrærir mjög við íslenskum hjörtum. Söngmennirnir eru aðeins 14 en styrkur raddanna slíkur að einskis er vant. Það snerti streng hjá öldn- um Mývetningi að heyra sönginn um Stenku Rasin en Karlakór Mývatnssveitar og Þráinn Þórisson fluttu það lag fyrir löngu. Láta mun nærri að meiri- hluti kórfélaganna hafi sungið einsöng í einhverju lagi og sumir í fleiri en einu. Nokkuð óvænt var það að óperusöngkona söng ein- söng í nokkrum lögum. Söngur hennar var skraut- fjöður á fjölbreyttri dag- skránni. Kórinn var kall- aður upp í lokin og söng þá tvö aukalög og endaði með Nótt í Moskvu. Kór St. Basil-kirkjunnar söng Söngur Kór St. Basil dómkirkjunnar söng í Reykjahlíðarkirkju. Eftir Gunnar Kristjánsson Grundarfjörður | Góð þátttaka var í öllum dag- skrárliðum og frábært veður „Á góðri stund í Grundarfirði“. Mikill fjöldi gesta sótti „Á góðri stund í Grundarfirði“ um helgina en hátíðin var nú haldin 10. árið í röð. Fullt var á öllum tjald- svæðum og í flestum húsagörðum mátti sjá tjöld og tjaldvagna. Veðrið lék við hátíðargesti og að sögn framkvæmdastjóra hátíðarinnar, þeirra Baldurs Orra Rafnssonar og Jónasar Guðmundssonar, var góð og almenn þátttaka í öllum dagskrárliðum. Bærinn var að venju mikið skreyttur eftir litakerfinu gulur, rauður, grænn og blár og mátti víða sjá býsna frum- lega skreytilist. Bæjarhátíðinni lauk um miðj- an dag í gær, sunnudag. Mikill fjöldi gesta í góðu veðri á bæjarhátíð Grundfirðinga Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Dorgveiði Mikill fjöldi tók þátt í keppninni sem fram fór fyrir hádegi á laugardag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.