Morgunblaðið - 28.07.2008, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 2008 35
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.is
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
ar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
Þú færð 5 %
endurgreitt
í SmárabíóSími 564 0000
Hancock kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 12 ára
Meet Dave kl. 3:45 B.i. 7 ára
Kung Fu Panda ísl.tal kl. 3:45 D LEYFÐ
The Strangers kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára
Hellboy 2 kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Mamma Mia kl. 5:30 D - 8 D - 10:30 D LEYFÐ
Mamma Mia kl. 5:30 D - 8 D - 10:30 D LÚXUS LEYFÐ
SÝND Í SMÁRABÍÓI M. ÍSL. TALI
eeee
24 stundir
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
Sýnd kl. 3:30, 5:50, 8 og 10:15 Sýnd kl. 4 m/ ísl. tal.
eeee
- Ó.H.T, Rás 2
eee
- T.V. - Kvikmyndir.is
eee
- L.I.B, Topp5.is/FBL
SÝND SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
eeee
Yfirburða snilldarleg bresk- bandarísk
gaman-, söng- og dansræma byggð á
svellandi ABBA-lögum, frábærlega fjörug,
fyndin, fjölskrúðug og kynþokkafull.
- Ó.H.T, Rás 2
eee
“Hressir leikarar, skemmtilegur fílingur
og meiriháttar tónlist!”
- T.V. - Kvikmyndir.is
eee
- L.I.B, Topp5.is/FBL
Sýnd kl. 5:40, 8 og 10:15
FRÁ VERÐLAUNA-LEIKSTJÓRA
PAN´S LABYRINTH.
SÝND SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
eee
- Tommi - kvikmyndir.is
eee
- Tommi - kvikmyndir.is
eeee
- V.J.V./TOPP5.is/FBL
eeee
- V.J.V./TOPP5.is/FBL
"ÞETTA ER BESTA BATMAN-MYNDIN,
BESTA MYNDASÖGUMYNDIN OG
JAFNFRAMT EIN BEST
MYND ÁRSINS..."
-L.I.B.TOPP5.IS
Sýnd kl. 4, 7 og 10
-bara lúxus
Sími 553 2075
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
SÍÐUSTU misseri hafa verið allgóð
fyrir unnendur góðra myndasagna.
Bráðskemmtilegt ofbeldi og skörp
þjóðfélagsádeila koma í stríðum
straumum frá helstu útgefendum og
hefur lesendum ekki leiðst í sumar.
Blaðamaður sló á þráðinn til Þór-
halls Björgvinssonar myndasögu-
sérfræðings með meiru til að spjalla
um þróunina.
Gestir úr öðrum miðlum
Það sem mér finnst hvað mest
áberandi og skemmtilegt að sjá er
aðkoma höfunda úr öðlum miðlum í
myndasögubransann,“ segir Þór-
hallur um það sem hefur verið að
rata í hillurnar upp á síðkastið.
„Hvað jákvæðast við þetta er að með
þessum höfundum fylgja oft nýir les-
endur sem ekki hafa áður sótt í
myndasöguformið, en hafa áhuga á
að lesa um uppáhaldshetjuna sína
eða skrif uppáhaldshöfundar.“
Prýðisdæmi um þetta er fyrsta
teiknimyndasagan um vampírub-
anann Buffy „The Long Way
Home“. Ekki er nóg með að sögu-
hetjurnar séu þær sömu í athöfnum
og innræti heldur hafa teiknararnir
fengið að láni ásjónu leikaranna sem
gerðu það gott í þáttunum. En sagan
tekur breytingum og Buffy er orðin
heldur betur opinská um hvað hún
er þjökuð af kynlífsleysi.
Sakleysið út um gluggann
Og rétt eins og Buffy hefur glatað
sakleysinu eru hinar göfugu og
hjartahreinu ofurhetjur fyrri tíma
hvergi sjáanlegar í sögum Garth
Ennis, The Boys. Fyrsta bókin kom
út í febrúar og sú næsta í mars og
eru söguhetjurnar harðsvíruð klíka
misklikkaðra einstaklinga sem
leggja sig fram við að klekkja á ofur-
hetjunum. Hetjurnar eiga það líka
innilega skilið að á þeim sé lumbrað
enda orðnar í meira lagi siðspilltar.
„Ef ofurhetjur væru til, væru þær
þá endilega gott fólk?“ spyr Þórhall-
ur.
Bandarísk endurreisn
Einnig er áhugavert að sjá hvern-
ig bandarískir myndasöguhöfundar
eru að eflast. Jason Aaron galdrar
fram úr pennanum Scalped, sögu um
samfélag á griðasvæði indjána sem
er gegnsósa af kynlífi og ofbeldi.
Brian Wood slengir svo framan í les-
endur bókinni DMZ þar sem Man-
hattan er orðin eitt allsherjar stríðs-
svæði og Brian K. Vaughan sendi frá
sér í júlí 10. og síðustu bókina í
flokknum Y: The Last man.
Þórhallur talar um bresku innrás-
ina fyrir 20 árum. „Bresku höfund-
arnir færðu markaðinn upp á annað
plan. Ef við skoðum þróunina frá því
Frank Miller gerði Dark Knight
Returns hafa afskaplega fáir Am-
eríkanar gert nokkuð gagngert fyrir
eldri lesendur.“
Ádeilan eiturskörp
Hvað ætli valdi? Er það sam-
félagsleg sálarkrísa sem laðar fram
þessar nýju og mergjuðu amerísku
teiknimyndasögur? Bæði Y: The
Last Man og DMZ eru hálfgerðar
heimsendasögur og krítískar á
valdastofnanir og samfélags-
uppbyggingu nútímans. Gagnrýnin
á hernaðarbrölt er algjör í DMZ:
„Bókin yfirfærir utanríkisstefnu
Bandaríkjamanna á eigið land.
Fréttaflutningur á stríðstímum er
tekinn fyrir og raunveruleikinn á
átakasvæðum borinn saman við
fréttirnar sem við fáum af þeim.
Manhattan í DMZ gæti eins verið
Gasa-ströndin,“ segir Þórhallur
Björgvinsson um upplifun sína af
verkinu.
Kjaftshögg, klám og krítík
Aukin harka er hlaupin í teiknimyndasögur Höfundar úr öðlum miðlum að
verða áberandi í myndasögugerð Hörð ádeila á ýmis samfélagsmein
Nýtt sjónarhorn Bækurnar The
Boys snúa hetjuímynd ofurmenna á
haus; reynt er að klekkja á þeim.
Mannleg Buffy er heldur betur
hispurslaus í myndasöguformi.
Stríðið heima Spennandi, bandarískir höfundar hafa komið fram á sjón-
arsviðið nýverið og gagnrýna ýmis mein eigin samfélags.