Morgunblaðið - 28.07.2008, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 2008 37
/ SELFOSSI/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI
THE DARK KNIGHT kl. 5 - 8 - 11 B.i. 12 ára
DECEPTION kl. 10 B.i. 14 ára
KUNG FU PANDA m/ ísl. tal kl. 6 LEYFÐ
KUNG FU PANDA m/ ens. tal kl. 8 LEYFÐ
THE DARK KNIGHT kl. 8 - 11 B.i. 12 ára
HELLBOY 2 kl. 10:20 B.i. 12 ára
MAMMA MIA kl. 8 LEYFÐ
THE DARK KNIGHT kl. 8 - 11 B.i. 12 ára
MAMMA MIA kl. 8 LEYFÐ
BIG STAN kl. 10:20 B.i. 12 ára
AKUREYRI, OG KEFLAVÍK
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
JACK BLACK SANNAR AF HVERJU HANN ERTALINN
EINN AF FYNDNUSTU GRÍNLEIKURUNUM Í HEIMINUM Í DAG.
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
eeee
- Ó.H.T, Rás 2
eee
- T.V. - Kvikmyndir.is
eee
- L.I.B, Topp5.is/FBL
SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í KEFLAVÍKSÝND Á SELFOSSI
Dyflinnarbúinn Damien Ricevar á vappi um Bakkagerði
kvöldið fyrir tónleikana og spjall-
aði við gesti hátíðarinnar. Hann
afþakkaði írskt viskí sem honum
var boðið og sagðist bara drekka
vatn þegar hann ætti að spila dag-
inn eftir. Þessi regla dugði honum
vel og hann átti óskipta athygli
áheyrenda á meðan hann lék
fyrstu lögin. En smám saman fóru
sumir að ókyrrast og
„boooooring!“ heyrðist úr einu
horninu. „Hei, það er Sálarball á
Egilsstöðum!“ var kallað að utan
og frammíkallararnir og suss-
kórinn skiptust á að yfirgnæfa
manninn á sviðinu.
Í hans sporum hefðu einhverjirkannski dregið fram nokkur
stuðlög til þess að sefa salinn, en
Rice færði sig frá hljóðnemanum
og þar sem ég stóð aftast í salnum
sá ég að hann var að spila á gít-
arinn en heyrði ekki neitt. Þá
gerðist það að meira en þúsund
manns, líka þeir sem voru komnir
með rúma kippu af bjór í magann
og þeir sem voru tíu ára í eltinga-
leik við vini sína, þögnuðu alveg og
smám saman barst fyrst ein rödd
þvert yfir áheyrendaskarann og
svo fleiri og fleiri sem tóku undir í
„Cannonball“.
Þarna var galdrastemningin frá
því fyrir tveimur árum komin aft-
ur og ég ákvað á staðnum að mæta
aftur að ári. gunnhildur@mbl.is
Átök Batman sveiflar Jókernum með stæl í kringum sig.
Batman flýgur hátt
NÝJA Batman-myndin, um hinn
myrka riddara, naut svo mikilla vin-
sælda í Bandaríkjunum í síðustu
viku, aðra vikuna sem hún er til sýn-
inga, að nýtt tekjumet var sett fyrir
kvikmynd í annarri sýningarviku.
Seldust aðgöngumiðar fyrir 75,6
milljónir dala, eða ríflega sex millj-
arða króna. Nema tekjurnar af
myndinni í Bandaríkjunum nú um
314 milljónum dala, samkvæmt Var-
iety.com í gærkvöldi. Er myndin
sýnd í 4.366 sölum.
Eigendur kvikmyndahúsa og fram-
leiðendur vestra geta ekki verið ann-
að en ánægðir með ganginn í sum-
armyndunum. Næstvinsælasta
myndin en gamanmynd með Will
Ferrell og John C. Reilly, Step Brot-
hers, sem tók inn um 30 milljónir dala
en Mamma mia sló aðeins af um
þriðjung í annarri sýningarviku og
seldust miðar á hana fyrir um 18
milljónir dala. Samkvæmt vefmiðl-
inum hljóta einu vonbrigði vikunnar
að vera útkoma nýju X-files-
kvikmyndarinnar, I Want to Believe,
en miðar á hans seldust fyrir um tíu
milljónir dala.
Anita vinsæl
Þrívíddarævintýramyndin um und-
ur Snæfellsjökuls, með Anitu Briem í
einu aðalhlutverkanna, er í fimmta
sæti yfir vinsælustu kvikmyndirnar
vestanhafs. Hafa aðgöngumiðar á
hana selst fyrir um 60 milljónir dala,
um 4,8 milljarða króna. efi@mbl.is
Gítarstemmning Í nóttinni voru strengir slegnir og safnast um Magna Ásgeirsson gestgjafa.
Fjölmennt Þegar leið á kvöldið fylltist gamla síldarbræðslan í Bakkagerði.
Aðdáun Margir gestanna voru afar ánægðir með tónlistarfólkið.
RONNIE Wood
gítarleikari Roll-
ing Stones er í
meðferð þessa
dagana, eftir að
hafa haldið
framhjá eig-
inkonu sinni með
tvítugri rúss-
neskri fyrirsætu,
og má ekki tala
við nokkurn mann utan stofnunar-
innar. Það er þó ekki hljótt um kapp-
ann, því samkvæmt The Daily Mail
mun fjárhaldsfélag Rolling Stones
hafa náð samkomulagi við fyrrum að-
stoðarstúlku hljómsveitarmeðlim-
anna á síðustu tónleikaferð, þrítugan
fatahönnuð sem ásakaði Wood um
kynferðislega áreitni. Aldrei var lögð
fram kæra en samkvæmt dagblaðinu
fékk hönnuðurinn, Hilary Olson,
greidda hálfa milljón dala, eða um 40
milljónir króna, og skrifaði undir
skjal þess efnis að hún myndi ekki
ræða um málið opinberlega.
Móðir Olson sagði hins vegar við
blaðamann að ásakanirnar væru
vissulega alvarlegar, að dóttir henn-
ar hefði verið fórnarlamb drykkju-
rúts.
Atvikið sem málið snýst um mun
hafa átt sér stað í Toronto, þar sem
Olson vann fyrir hljómsveitina sem
var þá að æfa fyrir Bigger Bang-
tónleikaferðina.
Þegar Hilary Olson var spurð út í
málið svaraði hún: „Þú getur spurt
Ronnie út í þetta. Ég er viss um að
hann hefur eitthvað að segja.“
Rolling Stones greiða
aðstoðarkonu sem
varð fyrir áreitni
Ron Wood