Morgunblaðið - 28.07.2008, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 2008 39
Skólar og námskeið
Glæsilegt sérblað um skóla og
námskeið fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 15. ágúst.
Meðal efnis er:
• Endurmenntun
• Símenntun
• Tómstundarnámskeið
• Tölvunám
• Háskólanám
• Framhaldsskólanám
• Tónlistarnám
• Skólavörur
Allar nánari uppl. veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105 eða kata@mbl.is.
Auglýsendur!
Pantið fyrir klukkan 16, mánudaginn 11. ágúst.
Ásamt full af spennandi efni.
Í UPPHAFI kvikmyndarinnar Hinir
ókunnugu (The Strangers) greinir
dimmrödduð karlmannsrödd frá því
að atburðirnir sem myndin lýsir séu
byggðir á raunverulegu atviki sem
átti sér stað á tilteknu heimili í febr-
úar 2005, og er upptaka frá neyðarlín-
unni þar sem heyra má neyðarkall
konu spilað, heimildargildi atburð-
anna til stuðnings. Tveir ungir trú-
boðar sjást því næst koma að af-
skekktu sumarhúsi í morgunsárið þar
sem hurðin hefur verið brotin upp,
blóðslettur eru á veggjum, hagla-
byssa á borði og blóði drifinn eldhús-
hnífur liggur á gólfinu.
Það veit því ekki á gott þegar horf-
ið er lítillega aftur í tíma og par (leikið
af Liv Tyler og Scott Speedman)
kemur seint að kvöldi að þessu sama
húsi með það í hyggju að verja þar
nóttinni og greiða úr erjum sín á milli.
Áhorfandinn veit þegar í stað að parið
unga á ekki von á góðu, og eftir því
sem fleiri augljós tengsl við Funny
Games, meistaraverk Michael Hane-
kes frá árinu 1997 gera vart við sig,
má jafnframt geta sér til að myndin
muni ekki enda vel. Nýleg endurgerð
Hanekes á eigin kvikmynd sem hlaut
heitið Funny Games U.S. var sýnd í
Bandaríkjunum í fyrra, og er ljóst að
leikstjórinn Bryan Bertino og aðrir
aðstandendur myndarinnar hafa
fengið bæði innblástur og grunn-
hugmyndina að Hinum ókunnugu frá
kvikmynd Hannekes, án þess þó að
þess sé getið.
Gallinn er hins vegar sá að Funny
Games felur í sér ádeilu á hinn sad-
íska kjarna morðmynda, sem miðlað
er í gegnum ísmeygilega sögu af því
er vel stæð fjölskylda fær óboðna
gesti í sumarhús sitt. Líkt og í Funny
Games einkennast árásarmennirnir í
Hinir ókunnugu af kæruleysislegu og
yfirveguðu viðmóti, og kjarni óhugn-
aðarins er fyrst og fremst sá að engin
sérstök ástæða liggur að baki út-
reiknuðu ofbeldi innrásarmannanna.
Þeir eru einfaldlega að leika sér líkt
og köttur að mús og í fyrrnefndu
myndinni slæst kvikmyndafrásögnin
í lið með þeim í leiknum, og sér til
þess að fórnarlömbin fái ekki að
sleppa hvað sem þau reyna. Hér ligg-
ur gagnrýnisbroddur Funny Games,
sem spyr jafnframt hvaða hvatir liggi
að baki skemmtan áhorfenda yfir of-
beldinu sem skilur eftir óbragð í
munninum sem varir í margar vikur
eftir að gengið er út úr bíósalnum.
Hinir ókunnugu reynir að ná fram
sams konar óhugnaði en kemst ekki
með tærnar þar sem fyrirmyndin hef-
ur hælana. Myndin hefst af talsverðri
yfirvegun, en þegar á líður gerast frá-
sagnarklisjur hrollvekjunnar full-
rúmfrekar. Hinn sjálfsvísandi undir-
tónn er að sama skapi víðsfjarri og
fellur Hinir ókunnugu þannig beint í
þá gryfju að framsetja án nokkurra
varnagla þá sadísku áhorfenda-
reynslu sem Funny Games leitast við
að gagnrýna.
Svipur hjá sjón
Byrjar vel „Þeir eru einfaldlega að leika sér.“
KVIKMYND
Regnboginn, Smárabíó
og Borgarbíó
Leikstjórn: Bryan Bertino. Aðalhlutverk:
Liv Tyler og Scott Speedman. Bandarík-
in, 85 mín.
Hinir ókunnugu (The Strangers)
bbnnn
Heiða Jóhannsdóttir
WILLIAM Shakespeare heldur áfram að heilla og lista-
menn að leita í smiðju þessa mikla leikskálds. Kvik-
myndaframleiðendur eru þar engin undantekning en
fjöldi kvikmynda hefur verið gerður beint eftir hinum 38
leikritum Shakaspeares – tragedíum, kómedíum og
sögulegri epík – eða byggja þá á þeim á einn eða annan
hátt. Skríbentar vefjarins Rottentomatoes.com hafa tek-
ið saman lista yfir þær 30 kvikmyndir sem þeir telja þær
bestu sem byggja á leikritum breska jöfursins, og styðj-
ast þeir við umsagnir margra gagnrýnenda. Þær tíu
bestu eru eftirfarandi:
1 Henri V (1989). Leikstjóri: Kenneth Branagh. Aðalleik-
arar: Kenneth Branagh, Derek Jacobi, Ian Holm.
Líklega best útfærða framsetning Branaghs á verki eftir
Shakespeare. Kraftmikil, ástríðufull og frábærlega vel
leikin kvikmynd.
2. Ran (1985). Leikstjóri: Akira Kurosawa. Aðalleikarar:
Tatsuya Nakadai, Akira Terao, Jinpachi Nezu.
Það ætti að skylda alla áhugamenn um vestra, stríðs-
myndir og tímabilakvikmyndir að sjá viðamikla epíska
túlkun japanska snillingsins á Lé konungi.
3. Hamlet (1996). Leikstjóri: Kenneth Branagh. Aðal-
leikarar: Kenneth Branagh, Charlton Heston, Derek Ja-
cobi.
Umfangsmikil og vönduð endurgerð Kenneth Branaghs
á þessu meistaraverki Shakespeares, með áhrifamiklum
leik og skörpum kvikmyndalegum fókus. Ekki einni mín-
útu af þessari 246 mínútna útgáfu er sóað.
4. Throne of Blood (1957) Leikstjóri: Akira Kurosawa.
Aðalleikarar: Toshiro Mifune, Isuzu Yamada, Minoru
Chiaki.
Hápunktur á ferli Akiro Kurosawa – og ein af bestu kvik-
myndagerðum á leikriti Skakespeares, Macbeth.
5. West Side Story (1961). Leikstjórar: Robert Wise, Je-
rome Robbins. Aðalleikarar: Natalie Wood, Richard
Beymer, Rita Moreno.
Með samspili leikstjórnar Wise, tónlist Leonard Bern-
stein og textum Stephen Sondheim, er West Side Story
mögulega sú glæsilegasta af öllum Shakespeare-verkum
sem færð hafa verið á hvíta tjaldið. Myndin byggir á
Rómeó og Júlíu.
6. Richard III (1995). Leikstjóri: Richard Loncraine. Að-
alleikarar: Ian McKellen, Annette Bening, Jim Broad-
bent.
Einstök endurgerð af Ríkharði III, þar sem sögutíminn
er færður til fjórða áratugar 20. aldar og McKellen sýnir
stjörnuleik sem hinn ógnvekjandi Ríkharður sem jafn-
fram hefur mikið aðdráttarafl.
7. Romeo and Juliet (1968). Leikstjóri: Franco Zeffirelli.
Aðalleikarar: Olivia Hussey, Leonard Whiting, Mili O’S-
hea.
Traustur leikhópur og áhrifarík sjónræn útfærsla gera
kröfu um að þetta sé besta af mörgum kvikmyndaút-
færslum leikritsins.
8. The Lion King (1994). Leikstjórar: Roger Allers, Rob
Minkoff. Aðalleikraddir: Matthew Broderick, Jeremy
Irons, James Earl Jones.
Frábærlega teiknuð og framsett. Ljónakonungurinn er
meðal allra bestu klassísku kvikmyndanna úr smiðju
Disney. (Sem byggir bæði á Hamlet og Ríkharði III).
9. Henri V (1944). Leikstjóri: Laurence Olivier. Aðalleik-
arar: Laurence Olivier, Robert Newton, Leslie Banks.
Kvikmynd gerð til að efla þjóðerniskennd Breta, en þessi
leikstjórnarfrumraun Oliviers skaut honum að fullu upp
á stjörnuhimininn, fyrir áhrifaríka túlkun á breska her-
konunginum.
10. Forbidden Planet (1956). Leikstjóri: Fred M. Wilcox.
Aðalleikarar: Walter Pidgeon, Anne Francis, Leslie
Nielsen.
Shakespeare fær „deluxe“-meðferð í kvikmyndaút-
færslu á Ofviðrinu, með áhrifamikilli leikmynd og góðum
brellum.
Snjall Kenneth Branagh, sem hér er í hlutverki Hamlets, er efstur á lista Shakespeare-leikstjóra, ásamt Kurosawa.
Bestu kvikmyndirnar eftir
leikritum Shakespeares