Morgunblaðið - 28.07.2008, Síða 40

Morgunblaðið - 28.07.2008, Síða 40
MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 210. DAGUR ÁRSINS 2008 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Vöxtur í sjóstönginni  Mikill vöxtur hefur verið sjó- stangveiðinni og fjárfestingar henn- ar vegna hafa aukist mikið að und- anförnu á Vestfjörðum. Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, segir veltuáhrifin umtalsverð en ekki sé ljóst hve langan tíma þurfi til, að fjárfestingarnar borgi sig. Talið er, að um 3.000 erlendir ferða- menn fari í sjóstangveiði vestra á þessu ári. Shiran Þórisson hjá At- vinnuþróunarfélagi Vestfjarða var- ar þó við því að fylla alla firði af bát- um. Það hafi gerst í Noregi og allur sjarmi fokið út í veður og vind. » 6 Gróðursælt ár  Þetta ár hefur mjög blessunarríkt fyrir gróðurinn enda almennt hlýtt og litlar sviptingar í veðurfarinu. Lítur trjágróður mjög vel út og grasspretta hefur verið góð. Á móti kemur, að skordýr og sumir plöntu- sjúkdómar hafa verið snemma á ferðinni. » 6 Óvandað að auglýsa ekki  Það samrýmist ekki viðmiðum stjórnsýsluréttar um vandaða stjórnsýsluhætti að ráða opinbera starfsmenn hjá sveitarfélögunum án auglýsingar. Er það álit Trausta Fannars Valssonar, lektors í stjórn- sýslurétti við HÍ, en á hinn bóginn er það ekki bein lagaskylda að aug- lýsa. » 2 SKOÐANIR» Ljósvakinn: Vá, það er útvarp! Staksteinar: Bakslag Forystugreinar: Orka og olía | Pólitískur skjálfti á Bretlandi UMRÆÐAN» Breyttar aðstæður, gamall stjórnarsáttmáli Einelti á að taka alvarlega Óöryggisráðið „Tala verðið niður“ Kölski bar vatn í hripum en við veljum frekar vatnshrúta Óboðnir gestir í garðinum FASTEIGNIR» Heitast 22° C | Kaldast 12° C Suðaustan 8-13 m/s suðvestanlands en ann- ars mun hægari. Rign- ing sunnan- og vest- anlands með kvöldinu. »10 Hverjar eru tíu bestu kvikmyndaút- færslurnar á hinum klassísku leik- verkum Shake- speares? » 39 KVIKMYNDIR» Branagh og Kurosawa TÓNLIST» Enn er Ronnie Wood í vondum málum. » 37 Þetta eru góðir dag- ar fyrir unnendur myndasagna. Höf- undar úr ýmsum öðrum miðlum sækja í formið. » 35 MYNDASÖGUR» Hispursleysi og ádeila KVIKMYNDIR» Batman og Anitu gengur vel að selja bíómiða. » 37 FÓLK» Flugan flýgur flugna hæst og víðast. » 33 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Handrukkarar misþyrmdu manni 2. FH sigraði ÍA í sjö marka leik 3. Hárvöxtur Miller aukinn 4. Benda holurnar á olíu? SIGURÐUR Skarphéðinsson er einn þeirra fáu sem stunda íþrótt sem kennd er við kraftdreka eða „kite surfing“ á Íslandi. „Ég uppgötvaði sport- ið þegar ég var við nám í Noregi og einn bekkjarfélagi minn kynnti mér það,“ segir Sigurður sem nú hefur stundað íþróttina í nokkur ár. Hann seg- ir að iðkendum fari smám saman fjölgandi. „Kjöraðstæður fyrir kraftdrekann eru jafn vindur á bilinu 8-14 metrar á sekúndu. Svo breyta menn stundum um stærð á brettinu eftir vindhraða,“ segir Sigurður sem um helgina lét gamminn geisa á Skorradalsvatni. Aðspurður segir hann íþróttina henta vel á Íslandi enda blási hér gjarn- an vindur. „Í sumar hafa aðstæður verið alveg rosalega góðar og við höfum reynt að fara eins oft og mögulegt er.“ Brettið sem iðkendur þessarar íþróttar standa á er ekki ólíkt snjóbretti. haa@mbl.is Nýstárleg íþrótt ryður sér til rúms hér á landi Ljósmynd/Hallgrímur Örn Arngrímsson Þeyst yfir vatnsflötinn með kraftdreka Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is TÓNLISTARHÁTÍÐIN Bræðslan fór á laugardags- kvöldið fram í skugga Dyrfjallanna á Borgarfirði eystra. Íbúafjöldi Bakkagerðis tífaldaðist um leið því um 1.400 miðar seldust á tónleikana og voru þónokkrir sem þurftu að láta sér nægja að hlusta á óminn sem barst út úr gömlu síldarbræðslunni þegar allir miðar voru uppurnir. Heimamaðurinn Magni Ásgeirsson var Bræðslustjóri í ár, en auk hans komu fram þær Amy Kuney, Bryndís Jakobsdóttir, Eivör Pálsdóttir og írski tónlistarmað- urinn Damien Rice. Þetta var í fjórða sinn sem hátíðin var haldin, en áður hafa m.a. Belle and Sebastian og Em- ilíana Torrini spilað á Bræðslunni. Hátíðina sækja Austfirðingar og aðkomumenn í bland og sameina það besta af góðu sveitaballi og metn- aðarfullum tónleikum í borginni. Gestirnir skemmtu sér í mesta bróðerni þó að ekki væri aðra löggæslu að sjá á staðnum en nokkra björgunarsveitarmenn, enda var gleðin allsráðandi í ár rétt eins og á fyrri hátíðum. | 37 Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson Samhljómur Hinn írski Damien Rice nýtur aðstoðar bandarísku söngkonunnar Amy Kuney í einu laga sinna. Á Bræðslunni skemmti fólk sér í hinu mesta bróðerni Íbúatalan tífaldaðist „VIÐ getum ekki búið við þessar sveiflur í efnahagslífinu,“ segir Jón Kjartansson, sem komið hefur upp hátæknifjósi fyrir 123 mjólkandi kýr á Refs- stöðum í Hálsa- sveit. Jón segir, að bændur eigi að búa sig undir samkeppni við innfluttar vörur og vera óhrædd- ir. Íslenskar landbúnaðarafurðir séu fyrsta flokks en hins vegar sé alveg ljóst, að búin verði að stækka svo þau verði samkeppnisfær, ekki síst í ljósi þeirra miklu hækkana, sem orðið hafi á öllum aðföngum til þeirra. | 11 Óttast ekki samkeppni Jón Kjartansson Hátæknifjós risið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.