Morgunblaðið - 30.07.2008, Síða 1

Morgunblaðið - 30.07.2008, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 3 0. J Ú L Í 2 0 0 8 STOFNAÐ 1913 207. tölublað 96. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er DAGLEGTLÍF SÆLKERAFÆÐI FYRIR TJALDBÚA Í ÚTILEGU SJÁLFBOÐALIÐASTARF Þær hafa gefið́ vinnu sína í áratugi Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is ÁSTRALSKA leikkonan Cate Blanchett hefur boðið leikhópnum Vesturporti að setja leikverkið Hamskiptin eftir Franz Kafka upp í leikhúsinu í Sydney í Ástralíu í mars og apríl á næsta ári. Blanchett er listrænn stjórn- andi leikhússins ásamt eiginmanni sínum, leikstjóranum Andrew Upton, en hún heyrði af sýningunni þegar hún var sett upp hér á landi og ákvað í kjölfarið að bjóða hópnum til Ástralíu. Þá segir Rakel Garðarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Vesturports, að trúlega hafi það haft sín áhrif að ástralski tónlistarmaðurinn Nick Cave samdi tónlist við verkið. Samstarf Vest- urports og Nicks Cave mun svo bera frekari ávöxt á næsta ári, en Cave vinnur um þessar mundir að leikgerð að Faust eftir Johann Wolf- gang von Goethe fyrir hópinn. Verkið verður frumsýnt hér á landi á næsta ári og mun svo verða sett upp víða um heim í kjölfarið. Auk þess að skrifa leikgerðina mun Cave væntanlega semja tónlist við verkið. | 28 Ein þekktasta leikkona heims býður Vesturporti til Ástralíu Í samstarf við Blanchett Cate Blanchett Nick Cave VEÐRIÐ hefur leikið við landsmenn und- anfarna daga og er spáð áframhaldandi hlý- indum fram yfir helgi. Mesti hitinn í gær mældist á Þingvöllum en þar fór hitinn í 27,1 stig þegar best lét og er langt síðan jafnhár hiti hefur mælst í júlímánuði. Víðast hvar var hitinn um tuttugu gráður og brugðu þá marg- ir á það ráð að kæla sig í sundlaugum eða á yl- ströndinni í Nauthólsvík eins og þessir ungu drengir gerðu. Laust fyrir kvöldmatarleytið í gær sýndu tíu veðurstöðvar víðs vegar á landinu hitastig yfir 23 gráðum, m.a. í Ásgarði í Dölum, Fífl- holti á Mýrum í Borgarfirði og á Möðruvöllum í Hörgárdal. Gert er ráð fyrir að hlýrra verði í dag en það helgast af því að enn hlýrra loft verður yf- ir landinu en í gær. Útlit er fyrir að hlýjast verði á Suðvestur- og Vesturlandi en að sögn Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings hafa þessi miðsumarhlýindi ekki enn náð hámarki. Einar segir hitann á landinu í gær hafa ver- ið tvískiptan. Þoka við norðurströndina dró úr hita á nokkrum stöðum og mældist hitinn við Húnaflóa frá tíu stigum. Þar sem svalt þoku- loftið náði hins vegar ekki að læðast inn var hitinn töluvert hærri. Júlímánuður var ekki hlýr framan af en það breyttist þegar leifar hitabeltisstormsins Bertu fóru yfir landið um miðbik mánaðarins. Í kjölfarið breyttist veðurlagið og þrálátu norðankuli lauk. Því stefnir ekki í að mán- uðurinn slái hitamet en ljóst er að landsmenn hafa yfir engu að kvarta heldur geta notið þess til fullnustu að spóka sig í blíðunni. ylfa@mbl.is Morgunblaðið/Ómar MESTI HITI SUMARSINS OG HÁMARKINU EKKI NÁÐ  Mikil hlýindi um allt land  Rúmar 27 gráður á Þingvöllum í gær Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is „MEST er gjaldþrota,“ segir Kári Steinar Lúthersson, fyrrverandi framkvæmda- stjóri sölusviðs félagsins. Hann vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Stjórn Mest, sem nýlega fékk nafnið Tæki, tól og byggingavörur ehf., fór í gær fram á að fyr- irtækið yrði tekið til gjald- þrotaskipta. Starfsemin hef- ur legið niðri undanfarið vegna rekstr- arörðugleika. Á milli 50 og 60 manns störfuðu hjá félaginu. Í tölvubréfi sem sent var starfsmönnum Tækja, tóla og byggingavara í gær segir að ekki hafi reynst unnt að greiða út laun fyr- ir júlímánuð. Guðrún Lárusdóttir, starf- andi starfsmannastjóri, muni í samráði við viðkomandi stéttarfélög fara yfir kröfu- gerðir vegna launa og orlofs. Guðrún vildi ekki tjá sig við Morgun- blaðið í gær. Pétur Guðmundsson, einn stjórnarmanna sem tóku ákvörðun um gjaldþrotaskiptin, vildi ekki svara því hversu stórt gjaldþrotið væri né hvort unnt yrði að greiða launakröfur úr þrotabúinu. Morgunblaðið sagði fyrst frá því 9. júlí að Mest reri lífróður til að forða sér frá gjaldþroti. Tilkynnt var 21. júlí að Glitnir hefði tekið yfir steypustöðvar, hellufram- leiðslu og verslun með múrvörur og sett í nýtt félag, Steypustöðina Mest. Annar rekstur var áfram rekinn á kennitölu Mest en undir nafninu Tæki, tól og byggingavör- ur ehf. Sigurjón Grétarsson, fyrrverandi starfs- maður, segir engan í forsvari fyrir starfs- menn. VR muni gæta hagsmuna flestra. Mest gjald- þrota Starfsmenn fá ekki greidd laun fyrir júlí „Við ráðleggjum fólki að leita til okkar. Við munum lýsa yfir kröfum í þrotabúið,“ segir Gunnar Páll Páls- son, formaður VR. Annars komi ábyrgðarsjóður launa til og greiði uppsagnarfrest og ótekið orlof. Viðbrögð VR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.