Morgunblaðið - 30.07.2008, Side 4
TÆPLEGA 10.000 manns hafa
skráð sig á vefinn Starbucks.is og
með því lýst yfir stuðningi við því að
fyrirtækið opni hér kaffihús.
Bjarni Kristinsson, eigandi vefj-
arins, hefur um nokkra hríð verið í
samskiptum við höfuðstöðvar Star-
bucks í Seattle. „Fyrirtækið hefur
sagt við mig að það sé ekki á stefnu-
skránni að opna á Íslandi. Þeir hafa
sagt að þegar og ef ákvörðun verður
tekin um að opna hér þá verði haft
samband við þá sem lýst hafa yfir
áhuga á því að reka hér kaffihús,“
segir Bjarni. Hann hefur undanfarin
fimm ár sent fyrirspurnir til Star-
bucks en svörin séu alltaf á sömu
leið, ekki standi til að opna hér kaffi-
hús.
Starbucks, sem er stærsta kaffi-
húsafyrirtæki í heimi, er ekki rekið
eftir umboðssölukerfi, eins og marg-
ar bandarískar skyndibitakeðjur,
heldur er um mun handstýrðari
nálgun að ræða þegar kemur að
rekstri útibúa. Mikil gróska er í
rekstri svokallaðra úrvalskaffihúsa
og hér á landi eru Te & Kaffi, Kaffi-
tár o.fl. í samkeppni á þessum mark-
aði. Víða á Norðurlöndum, þar sem
Starbucks hefur ekki opnað kaffi-
hús, hafa sambærilegar kaffi-
húsakeðjur verið opnaðar með góð-
um árangri. thorbjorn@mbl.is
Starbucks er
ekki á leiðinni
4 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SVEINN Rúnar Hauksson, áhugamaður um berja-
tínslu, segir ekki nokkurn vafa leika á því að berin á
Suður- og Vesturlandi séu óvenjusnemma á ferðinni
en það megi rekja til mikilla hlýinda í vor. „Þetta er
afar sérstakt en það verður víða hægt að fara í
berjamó í byrjun ágúst,“ segir hann. Austfirðirnir
verði þó sennilega á „eðlilegum“ tíma. Þær Hugrún
Egla, Elínborg Una og Elín Íslaug kunnu vel að
meta bláberin í Tungunum í gær. ylfa@mbl.is
Morgunblaðið/Einar Falur
Berjasprettan 2-3 vikum á undan meðaltíð
FRÉTTASKÝRING
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
LANDSVIRKJUN hefur samið við
7 af 40 landeigendum við Þjórsá um
bætur fyrir land sem fer undir lón
vegna þriggja vatnsaflsvirkjana sem
áætlað er að reisa í ánni. Til að
mynda hefur verið samið við land-
eigendur í Fossnesi, í Minni-Núp og
á hluta jarðarinnar Haga en þeir
báðu um lengri frest er upphaflega
átti að ganga til samninga.
Mál, sem Atli Gíslason, lögmaður,
höfðaði í umboði eigenda jarð-
arinnar Skálmholtshrauns gegn
fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisins
og forstjóra Landsvirkjunar fyrir
hönd fyrirtækisins, hefur hlotið
flýtimeðferð fyrir dómi. Í því reynir
á gildi Títan-samninganna svo-
nefndu og getur niðurstaða málsins
skipt sköpum um framtíð virkj-
anaframkvæmda á svæðinu.
Ætla má að margir landeigendur
séu tregir til að ganga til samninga
við Landsvirkjun þar til niðurstaða
málsins er ljós. Landeigendur sem
rætt var við töldu ekki rétt af Lands-
virkjun að leggja svo hart að þeim að
ganga til samninga enda væri fram-
tíð framkvæmdanna enn óljós á
þessu stigi málsins.
Þær upplýsingar fengust þó hjá
Landsvirkjun að samningaviðræður
við landeigendur við Þjórsá væru í
góðum farvegi.
Málsmeðferð verði ómerkt
Atli Gíslason lagði í fyrradag fram
kæru til úrskurðarnefndar skipu-
lags- og byggingarmála í umboði
landeigenda hluta jarðarinnar Haga.
Í henni eru gerðar athugasemdir við
málsmeðferð á skipulagsbreytingu á
aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverja-
hrepps vegna virkjana í Þjórsá.
Í kærunni segir að kynning-
arfundur á breytingunum hafi farið
fram eftir að athugasemdafrestur
rann út og slíkt sé andstætt lögum.
Þá segir einnig að Landsvirkjun hafi
samið drög að svörum við at-
hugasemdum en ekki skipulags-
fulltrúi uppsveita Árnessýslu.
Dómsmál skiptir sköpum
Margir landeigendur tregir til að ganga til samninga við Landsvirkjun meðan
framtíð framkvæmdanna er óljós Málsmeðferð skipulagsbreytingar kærð
Morgunblaðið/ÞÖK
Urriðafoss Fyrirhugað er að ein virkjunin af þremur rísi við fossinn.
Landeigendur í Skeiða- og Gnúp-
verjahreppi hafa kært máls-
meðferð við skipulagsbreytingu í
hreppnum. Eftir breytinguna er
gert ráð fyrir tveimur virkjunum
Landsvirkjunar í aðalskipulagi.
Í kærunni segir að „sérdeilis
ámælisvert sé að fundargerðir
samráðsnefndar sveitastjórnar við
Landsvirkjun liggi ekki fyrir og
nánast engin gögn séu til um sam-
skipti þeirra.“ Þá hafi Lands-
virkjun gert drög að svörum við at-
hugasemdum sem bárust en ekki
skipulagsfulltrúi uppsveita Árnes-
sýslu, sem auglýsti skipulagið.
Mikilvægar fundargerðir ekki aðgengilegar
LÖGREGLUNNI á Akranesi barst í
fyrradag útkall að Fiskilækjar-
melum þar sem hjólreiðamaður lá í
vegarkanti. Lögregla og sjúkrabíll
fóru með forgangshraða á staðinn. Í
ljós kom að maðurinn hafði aðeins
lagt sig og var heill á húfi.
Sá sem tilkynnti um manninn
keyrði fram hjá honum án þess að
stöðva. Lögreglan hvetur fólk að
kynna sér aðstæður í tilfellum sem
þessu svo forðast megi óþarfaútköll
lögreglu og sjúkraliðs. skulias@mbl.is
Erindisleysa
ÁGÆTUR gangur hefur verið í
síld- og makrílveiðum hjá skipum
HB Granda að undanförnu. Ingunn
AK kom til Vopnafjarðar með um
2000 tonna afla sl. sunnudag og von
var á Lundey NS í nótt eða morgun
með fullfermi en skipin hafa verið
að veiðum austur af Stokksnesi síð-
ustu daga.
Í frétt frá HB Granda er haft eft-
ir Jörgen Sverrissyni, verkstjóra í
fiskmjölsverksmiðju HB Granda á
Vopnafirði, að nú sé búið að taka á
móti rúmlega 13 þúsund tonnum af
síld og makríl á vertíðinni. Rúm-
lega helmingur þess afla er makríll.
,,Þetta er allt mjög góður fiskur
og það er góð nýting í bræðslunni,“
segir Jörgen Sverrisson.
sunna@mbl.is
„Allt mjög
góður fiskur“
FRAMKVÆMDUM á friðuðu stein-
húsi við Bergstaðastræti 22 hefur
verið hætt í bili á meðan gengið er
frá tilskildum leyfum, en ráðist var í
umfangsmiklar viðgerðir á lóðinni
án samráðs við byggingafulltrúa
Reykjavíkurborgar.
Að sögn eiganda hússins, Krist-
jáns F. Kristjánssonar, var ætlunin
að gera viðhaldsframkvæmdir á
ytra byrði hússins, þ. á m. þakinu,
en þegar rifið var í bárujárnið
reyndist burðarvirki hússins sund-
urfúið. „Þá kemur í ljós að þetta er
allt meira og minna ónýtt og verður
í raun endurbygging en ekki viðgerð
eins og ég bjóst við,“ segir Kristján.
Greinileg ummerki séu til dæmis
enn eftir bruna á fyrri hluta síðustu
aldar, þar sem þá hafi aðeins verið
lappað upp á ytra lagið. Kristján
hefur nú ráðið arkitekt og burð-
arvirkishönnuð til að gera áætlun
um viðgerðirnar.
Magnús Sædal Svavarsson, bygg-
ingafulltrúi Reykjavíkurborgar,
segir að æskilegra hefði verið að
stöðva framkvæmdir strax áður en
lengra var haldið og ganga frá leyf-
um. Lausnin sé hins vegar farsæl og
þess sé vænst að húsinu verði lokað
fyrir haustið. „Það verður endurgert
í upprunalegri mynd og verður
væntanlega sómi að þegar búið er.“
Framkvæmdir á friðuðum steinbæ
í miðborginni stöðvaðar tímabundið
Steinhúsið
verður endurgert
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Steinhús Bærinn á horni Bergstaðastrætis og Bjargarstígs, einnig nefndur Miðgrund, var byggður um 1893.