Morgunblaðið - 30.07.2008, Síða 8

Morgunblaðið - 30.07.2008, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is TALIÐ er að Eyjabakkajökull geti hlaupið fram á næstu árum en síð- asta framhlaup hans var 1972-73. Vitað er að jökullinn hljóp einnig fram 1938, 1931 og 1890. Hann hefur því hlaupið á 35-40 ára fresti og ætti því að öllum líkindum að hlaupa fram á næstu árum. Hlýtt árferði og minni snjósöfnun síðustu ár getur þó seinkað framhlaupi. Mörg sérstök landform er að finna við jökulinn. Má þar nefna eina stærstu og sér- stæðustu jökulgarða sem finna má á Íslandi, og svokallaða krákustígsása sem hér á landi eru einungis þekktir frá Eyjabakkajökli og Brúarjökli. Ívar Örn Benediktsson, dokt- orsnemi í jöklajarðfræði við Háskóla Íslands, hefur unnið að rannsóknum á framhlaupsjöklunum Eyjabakka- jökli og Brúarjökli sem báðir ganga norður úr Vatnajökli. Upphaf verk- efnisins má rekja til norrænnar rannsóknar á Brúarjökli sem hófst 2003. Brúarjökull hefur hlaupið að meðaltali á 80-100 ára fresti og hljóp síðast 1963-1964 og þar áður 1890. Til eru skráðar heimildir um fram- hlaup í honum allt aftur til 1625. Sagan lesin úr setinu Doktorsverkefni Ívars Arnar snýst m.a. um landmótun hraðfara jökla. Leiðbeinandi hans er Ólafur Ingólfsson prófessor. Þetta er þriðja sumarið sem Ívar Örn stundar rann- sóknir við Eyjabakkajökul ásamt fleirum. Hann sagði það einkenna framhlaupsjökla að á milli hlaupa hreyfist jökulsporðar þeirra og jaðar lítið sem ekki neitt. Áhrif bráðnunar koma því glöggt í ljós því enginn ís færist niður af ákomusvæðinu að jaðrinum til að halda honum við. Ív- ar sagði að frá 2003 til 2006 hafi jað- ar Brúarjökuls hörfað um allt að 250 metra á ári en að meðaltali hafi hann hörfað um 108 metra á ári frá 1964. Eyjabakkajökull er mun minni og aðþrengdari en Brúarjökull. Ívar Örn sagði að hann hafi hörfað mjög mikið. Í síðasta framhlaupi gekk hann fram um eina þrjá kílómetra á einu ári. Jaðarinn hefur hörfað tæpa tvo km frá því þar sem hann stopp- aði 1972 að mati Ívars Arnar. „Lengst gekk hann fram 1890 þegar hann velti upp jarðvegi og myndaði stóra jökulgarða. Þeir eru einir þeir fallegustu á Íslandi,“ sagði Ívar Örn. Rannsóknirnar við Eyjabakkajök- ul tengjast rannsóknum á Lag- arfljóti. Jökulsá í Fljótsdal kemur undan jöklinum og rennur í Lag- arfljót. Teknir voru setkjarnar úr fljótinu haustin 2006 og 2007 sem verða notaðir til að kortleggja um- hverfissögu Fljótsdalshéraðs. Þar eð setið í fljótinu kemur að langmestu leyti með bræðsluvatni frá Eyja- bakkajökli endurspegla setlögin sögu bráðnunar og framhlaupa Eyjabakkajökuls, og líklega sögu austurhluta Vatnajökuls í heild. Ljósmynd/Ívar Örn Benediktsson Krákustígsás Afar sérstakt landform sést einungis við Eyjabakkajökul og Brúarjökul hér á landi. Flest bendir til að krákustígsásar myndist þegar bræðsluvatn ryðst eftir sprungum í kjölfar framhlaups og ryður upp möl og sandi. Hraukar Jökulgarðar Eyjabakkajökuls frá framhlaupinu 1890 eru einir þeir stærstu og sérstæðustu hér á landi. Í baksýn eru Eyjafell og Snæfell. Gæti hlaupið á næstu árum Eyjabakkajökull hefur hlaupið fram á 35-40 ára fresti Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is BERGUR Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Landverndar, segir að ráðherra þurfi að rökstyðja mál sitt betur hvað varðar lagningu Dettifossvegar sem mun fara um þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum. Segir Bergur samráðsferli vegna Dettifosssvegar vera „meingallað“. Samgönguyfirvöld hafa varið Dettifossveg meðal annars með því að nefnd hafi fjallað um lagningu hans og í henni hafi setið meðal ann- arra fulltrúar Náttúruverndar rík- isins. Það hafi verið sameiginleg nið- urstaða að leggja veginn vestan Jökulsár. Ekki til viðurkenndur mæli- kvarði á lítt uppbyggðum vegi Í fundargerð Jökulsárnefndar, þeirrar nefndar sem samgönguyfir- völd vísuðu til, segir: „fram kom hjá fulltrúa Náttúruverndar ríkisins að miðað við fyrstu drög þá gæti hann sætt sig við slíka vegagerð [vegur vestan megin við Jökulsá á Fjöllum], ekki síst ef hluti hans yrði lítt upp- byggður, og tók vegi á Þingvöllum sem dæmi“. Ekki er til almennt við- urkenndur mælikvarði á hvað sé „lítt uppbyggður“ vegur. Hámarkshraði inni í þjóðgarðinum á Þingvöllum er 50 km. Hámarkshraði á fyrirhugð- um Dettifossvegi verður 90 km. Í bréfi Umhverfisstofnunar, áður Náttúruverndar ríkisins, til Sturlu Böðvarssonar, þáverandi samgöngu- ráðherra, frá 31. janúar 2003 segir að þjóðgarðsvörður í Jökulsárgljú- frum bendi á að „heilsársvegur aust- an Jökulsár á Fjöllum, með góðum tengingum við þjóðvegi 1 og Austur- land muni nýtast byggðinni miklu betur en heilsársvegur vestan ár.“ Þar segir jafnframt að „verulegur munur [sé] á því hvort vegir séu uppbyggðir með 90 km hámarks- hraða eða hvort þeir séu látnir falla vel að landi með hámarkshraða 50 km.“ Búið er bjóða út framkvæmdina vegna lagningar Dettifossvegar. Því liggur fyrir að vegurinn verður lagð- ur vestan megin við Jökulsá og há- markshraði á veginum verður 90 km. Segir samráðs- ferli meingallað  Fulltrúi samþykkti Dettifossveg með fyrirvara  Vildi „lítt uppbyggðan“ veg Í NÝLEGRI skipulagstillögu frá Fjórðungssambandi Vestfjarða, sem nú er til athugunar hjá sveit- arfélögunum, er meðal annars lagt til að Vestfirðir verði reynslusvæði fyrir strandsvæðaskipulag. Það eru nýmæli enda hefur skipulag á Ís- landi löngum miðast við netlög eða 115 metra frá stórstraumsfjöru- borði. Hafsvæðið þar fyrir utan, að frá- taldri lögsögu hafnarstjórna sveit- arfélaganna, er utan skipulags sveitarfélaga. Gildir þar engu hvort um er að ræða opið haf undan ströndum eða þrönga firði. Það er mat starfshóps sem vann að tillögunni að miðað við reynslu annarra þjóða, þá muni ásókn aukast í nýtingu strandsvæða. Þetta á ekki síst við nú þegar sjó- stangaveiði nýtur gríðarlegra vin- sælda á Vestfjörðum. haa@mbl.is Strandsvæða- skipulag á Vestfjörðum TVEGGJA krónu hækkun allra stóru olíufélag- anna frá í fyrra- dag gekk til baka í gær. Lækkaði algengasta bens- ínverð í sjálfs- afgreiðslu því í 171,7 kr. og lítra- verð á dísilolíu í 189,60 kr. Að sögn Magnúsar Ásgeirssonar, eldsneytisinnkaupastjóra N1, var verðið lækkað aftur vegna þess að krónan styrktist töluvert í gær. Gengi hennar hækkaði um 2,7%. Krónan hefur lengi verið á nið- urleið og segir Magnús N1 hafa dregið það eins lengi og hægt var að hækka. Styrkingin daginn eftir hækkunina hafi því komið félaginu þægilega á óvart. Heimsmarkaðsverð á hráolíu hafði að mati Magnúsar ekki áhrif á verðlækkunina en það hefur sveifl- ast töluvert undanfarið. Þó sé ekki hægt að slá neinu föstu þar um. skulias@mbl.is Bensínverð lækkaði á ný Skeljungur Lækk- aði fyrstur í gær. Hvað er framhlaupsjökull? Skriðhraði jökla getur verið mjög breytilegur. Sumir taka á sprett á nokkurra áratuga eða alda fresti og skríða þá fram með marg- földum hraða (10–1.000 sinnum hraðar en venjulega). Hér á landi standa framhlaupin venjulega frá nokkrum mánuðum og upp í þrjú ár. Í framhlaupum flyst mikill ís frá efri hluta jökulsins að jökul- sporðinum. Hvar eru framhlaupsjöklar? Framhlaupsjöklar eru þekktir í flestum stórum jöklum hér á landi. Brúarjökull er þeirra þekkt- astur en hann gengur norður úr Vatnajökli. Eyjabakkajökull kemur einnig úr Vatnajökli og er nokkru austar. Sjást ummerki framhlaupa? Framhlaupsjöklar móta umhverfið með ýmsum hætti. Þeir bera m.a. fram mikið set, mynda mörg sérstæð landform og af- laga setlög sem á vegi þeirra verða. Hraukarnir í Kringilsárrana mynduðust t.d. við framhlaup Brúarjökuls 1890. S&S

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.