Morgunblaðið - 30.07.2008, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 30.07.2008, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2008 9 FRÉTTIR Eftir Andrés Þorleifsson andresth@mbl.is REYKJAVÍKURBORG hafði á mánudag borist 2.279 ábendingar í gegnum vefsíðu verkefnisins 1, 2 og Reykjavík. Verkefnið miðar að því að efla samráð milli borgarinn- ar og borgarbúa um viðhaldsverk- efni og smærri nýframkvæmdir og fóru viðtökur borgarbúa fram úr björtustu vonum. Á vefnum geta notendur greitt atkvæði um hugmyndirnar og hafa nú á 17. þúsund atkvæði borist. 1.450 ábendingar eru í vinnslu eða komnar á áætlun en 294 hefur ver- ið svarað án þess að það hafi leitt til beinna framkvæmda, t.d. af því að hugmyndirnar eru of viðamikl- ar fyrir verkefnið. Einstakt í Evrópu „Næstum því 2.300 ábendingar er svo miklu miklu meira en nokk- urn óraði fyrir,“ segir Anna Gunn- hildur Ólafsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu borgarstjóra. Einungis er vitað um eitt áþekkt verkefni í Evrópu, þegar Manchester í Eng- landi bað um ábendingar frá íbú- um, en í því verkefni bárust ekki nema 23 ábendingar. Það er því ljóst að verkefnið er einstakt í Evrópu. Anna segir að skipta megi ábendingunum í tvennt. Annars vegar sé um að ræða ábendingar vegna viðhaldsverkefna og séu þær sendar beint til viðeigandi hverfastöðva. Hins vegar er um að ræða ábendingar vegna ný- framkvæmda. Eftir samráð við íbúa í hverju hverfi sendi stýri- hópur þar óskalista til borgarinn- ar. Mikið kvartað undan umferð- aröryggi í Háaleitishverfi Helsti kostnaður borgarinnar við verkefnið var vegna 10 millj- óna auglýsingakostnaðar. Þá ákvað borgarráð að tillögu Ólafs F. Magnússonar, borgarstjóra, að veita 30 milljónir í að stuðla að auknu umferðaröryggi í Laugar- dals- og Háaleitishverfi, en þaðan bárust áberandi margar ábending- ar vegna umferðarmála. Önnur verkefni eru á fjárhagsáætlun borgarinnar. Borginni berast þúsundir ábendinga Morgunblaðið/Brynjar Gauti Fjölbreyttar Ábendingarnar sem Reykjavíkurborg hafa borist í tengslum við verkefnið 1, 2 og Reykjavík eru margar og breytilegar eftir hverfum. „Miklu meira en nokkurn óraði fyrir,“ segir sérfræðingur                              Í HNOTSKURN »Síðsumars mun borgintaka ákvörðun um hvort verkefninu verður framhaldið. »Borgarbúar fengu í júlíkort frá borginni yfir af- rakstur verkefnisins. »Langflestar ábendingarkoma vegna Breiðholtsins, eða 359, en fæstar vegna Kjal- arness eða 50. »Misjafnt er eftir hverfumhvað brennir á borg- arbúum, en ábendingunum er skipt í fjóra flokka. Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 50-80% afsláttur LAGERSALA OUTLET LAUGAVEGI 51 LOKADAGAR OPIÐ TIL 21:00 ALLT Á 70-90% AFSLATTI Laugavegi 63 • S: 551 4422 NÚ ER TÆKIFÆRIÐ 50-70% AFSLÁTTUR SUMARYFIRHAFNIR OG SPARIDRESS Í ÚRVALI Laugarvegi 63 • S: 551 4422 GRENSÁSVEGUR SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI TIL LEIGU Til leigu 177,7 fm gott skrifstofuhúsnæði við Grensásveg. Húsnæðið er á 3. hæð og skiptist í opið rými, þrjú skristofuherbergi auk snyrtingu og kaffistofu. Lyfta í húsinu. Laus til afhendingar strax. Nánari upplýsingar á skrifstofu. FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505 • OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17 Netfang: fastmark@fastmark.is • Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali • Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Fuerteventura frá kr.49.990 Heimsferðir bjóða ótrúlegt stökktu tilboð á síðustu sætunum til Fuerteventura í viku 5. - 12. ágúst. Þessi skemmtilega eyja í Kanarí- eyjaklasanum hefur svo sannarlega slegið í gegn hjá Íslendingum. Þú bókar flugsæti og 3 - 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Gríptu tækifærið og njóttu lífsins á þessum vinsæla sumarleyfisstað. Að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. M bl 10 31 93 9 Verð kr. 49.990 Netverð á mann, m.v. 2 - 4 í herbergi / stúdíó / íbúð, 5. - 12. ágúst. 5. ágúst - 12. ágúst Stökktu til ENGAN sakaði þegar lítilli skútu hvolfdi á Skorradalsvatni á þriðja tímanum í gær. Tvennt var um borð og féll fólkið útbyrðis þegar hviða skall á skútuna. Að sögn lögreglu var fólkið vel útbúið í flotgöllum og með vesti. Það reyndi að synda í land en var komið til bjargar eftir að menn sem voru að byggja flot- bryggju í nágrenninu sáu til þess. Mennirnir fóru umsvifalaust í bát og sigldu til fólksins. Fólkinu varð ekki meint af volkinu en það var um 15 mínútur í vatninu. Féllu í vatn er skútu hvolfdi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.