Morgunblaðið - 30.07.2008, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 30.07.2008, Qupperneq 11
Morgunblaðið/Kristinn Hólmsheiði Losaður hefur verið jarðvegur þar undanfarin ár. Eftir Andra Karl andri@mbl.is „NÆSTU skref hafa þegar verið stigin. Úrskurðurinn hefur t.a.m. verið sendur borgarlögmanni til yfirferðar og ákvörðunar um hvort Reykjavíkurborg muni láta reyna á málið fyrir dómi,“ segir Helga B. Laxdal, yfirlögfræðingur á skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkurborgar. Fyrir helgi felldi úrskurðarnefnd skipulags- og byggingamála ákvörðun borg- arráðs frá 15. nóvember sl., um að samþykkja deiliskipulag vegna stækkunar á losunarsvæði fyrir jarðveg á Hólmsheiði. Einnig var fellt úr gildi framkvæmdarleyfi byggt á sama deiliskipulagi. Fundað verður um málið innan borgarkerfisins í dag. Helga segir borgina í grundvall- aratriðum ósammála niður- stöðunni og auk þess að borgar- lögmaður fari yfir úrskurðinn, verði haft samband við Skipulags- stofnun til að fá leiðbeiningar um hvernig beri að bregðast við. „Því það stendur ekki til að breyta þessu. Þetta losunarsvæði verður þarna áfram og hefur verið til fjölda ára.“ Eigandi landspildu í landi Reynisvatns kærði ákvörðun borgaryfirvalda um að heimila 12 ha stækkun á svæði sem áður hafði verið deiliskipulagt vegna jarðvegsfyllingar. Kannað hafði verið með aðra staði en Hólms- heiði talin álitlegasti kosturinn. Samkvæmt skilyrðum borgaryf- irvalda má aðeins losa ómengaðan jarðveg á svæðinu. Eigandi landspildunar sagði þau skilyrði hafa verið þverbrotin, s.s. með því að urða þúsundir rúm- metra af olíumenguðum jarðvegi. Sú urðun var háð samþykki um- hverfisnefndar, sem samþykkti starfsleyfið. Þá hafi Skipulags- stofnun ekki komið að málinu. Losunin hafi verið svo yf- irgengileg að útsýni sé skert og landslagi spillt. Af hálfu borgarinnar var því haldið fram að losunin félli ekki undir lög um mat á umhverfis- áhrifum. Þar sé um að ræða eðli- lega landmótun enda verði landið grætt upp að nýju. Auk þess var vakin athygli á því að Skipulags- stofnun gerði ekki athugasemdir við að auglýsing um gildistöku skipulagsins yrði birt. Einnig var því haldið fram að losun nærri landi eigandans sé lokið og land farið að jafna sig. Umrædd losun hafi gert það að verkum að meira skjól myndaðist við fasteign hans. Hrólfur Jónsson, sviðstjóri fram- kvæmdasviðs, segir að ekki hafi verið losað á nýja svæðinu síðan kæran barst. Enn sé rúm á gamla svæðinu og það dugi næstu mán- uði. Hrólfur segir það þó liggja fyrir að farið verði yfir málið með Skipulagsstofnun og reynt að finna farsæla niðurstöðu. Niðurstöðu úrskurðarnefndar ekki unað  „Þetta losunarsvæði verður þarna áfram og hefur verið til fjölda ára“  Fundað í dag um Hólmsheiði Í HNOTSKURN »Framkvæmdaaðilar hafalosað jarðveg á um 20 hektara svæði á Hólmsheiði frá árinu 2001. »Þegar fór að þrengja aðvar ákveðið að stækka svæðið um 12 hektara síðasta haust. »Sú ákvörðun var kærð tilúrskurðarnefndar skipu- lags- og byggingamála. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2008 11 FRÉTTIR Starfsfólki á veitingastöð- um líður betur eftir að reyk- ingabann á veitingastöð- um tók gildi síðasta ári. Þetta sýna nið- urstöður könn- unar sem Vinnueftirlit ríkisins lét gera meðal starfsfólks á veitingastöð- um. Meirhluti þátttakenda taldi að líð- an sín og starfsumhverfi hefði batn- að eftir að reykingabannið tók gildi og að fjöldi gesta hefði lítið breyst. Flestir sögðu að þjónustan við þá sem reykja fyrir utan veitingastað- ina hefði ekki verið bætt en sumir hefðu þó sett upp skjólveggi og hita- lampa. Þátttaka í könnuninni var lít- il eða einungis um 17%. jonhelgi@mbl.is Starfsfólki líður betur PÍANÓLEIKARINN Shuann Chai heldur tónleika í Húsinu á Eyr- arbakka í kvöld miðvikudag kl. 20.30 Hún mun flytja verk eftir Wolfgang Amadeus Mozart, Franz Schubert, Ludwig van Beethoven og Frederic Chopin. Shuann hefur spilað á tónleikum víðs vegar um heiminn, m.a. í Eng- landi, Hollandi, Noregi og Kína. Hún hefur fengið fjölda viðurkenn- inga fyrir frammistöðu í píanóleik. sunna@mbl.is Píanótónleikar í Húsinu STUTT Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is AGNETE Simson, Lillian Simson og Beta Ein- arsdóttir vinna sem sjálfboðaliðar á vegum Kvennadeildar Reykjavíkurdeildar Rauða kross- ins á sjúklingabókasafni Landspítalans við Hringbraut. Það er svo sem ekki í frásögur fær- andi heldur orka og kraftur þessara kvenna, en tvær eru hálfníræðar og ein 79 ára. „Við Beta erum jafngamlar en Lillian er tán- ingurinn í hópnum,“ segir Agnete sem hefur sinnt þessu sjálfboðaliðastarfi í 37 ár, en eig- inmaður hennar er Magnús Guðmundsson flug- stjóri. „Ég var farinn að hafa betri tíma frá heimilinu og hef alltaf haft áhuga á bókum. Eða eins og börnin sögðu: „Pabbi er flugstjóri og mamma gerir ekki neitt.“ Hún segist hafa byrjað í alls konar handavinnu og kökugerð fyrir basar- og kökusölu fyrir jólin, en ágóðinn hafi verið not- aður til bókakaupa í safn Landspítalans. Ári seinna hafi hún svo jafnframt farið í bækurnar og hafi alfarið sinnt þeim undanfarna áratugi. Arnaldur vinsæll Stöllurnar segja að starfið hafi breyst mikið samfara breytingum á innlögnum. Sjúklingar séu ekki eins lengi á spítalanum og áður og lesi því minna meðan á dvölinni standi. „Áður fyrr lán- uðum við kannski 100 bækur á einum eftirmið- degi en nú getur þetta farið niður í örfáar bæk- ur,“ segir Agnete og bendir á að sjónvarpið taki einna mesta tíma frá lestrinum. „Þetta rokkar frá degi til dags,“ segir Lillian, sem er ekkja og hefur unnið með systur sinni í áratug. „Svo má ekki gleyma spólunum (hljóðbókunum),“ áréttar Beta, sem hefur unnið með systrunum í sjö ár, en er auk þess heimsóknavinur Rauða krossins í Kópavogi með eiginmanni sínum sr. Fjalari Sig- urjónssyni annan hvern fimmtudag. Hún og Lillian segja að þegar þær hafi hætt að vinna launað starf hafi þeim fundist þær ekki hafa haft neitt að gera og því þótt sjálfboðaliðastarfið til- valið. Konurnar sjá um útlánin á hjartadeild E og G annan hvern mánudag. Dagsverkið hefst á því að ganga á allar deildir og safna saman bókum úr bókakössum. Síðan eru viðkomandi spjöld sett í bækurnar og þeim endurraðað á vagnana áður en gengið er á deildirnar. „Nýútkomnu bæk- urnar eru alltaf vinsælastar,“ segir Agnete og hinar taka í sama streng, en árétta að bækur eft- ir íslenska höfunda og sagnfræðibækur séu eftir- sóttastar. „Flestir vilja lesa ævisögur,“ segir Lillian, en dregur samt ekki úr áhuga sjúklinga á spennusögum. „Arnaldur er alltaf vinsæll og Útkallsbækurnar,“ segir Beta. „Fólkið hérna vill lesa um annað fólk,“ heldur Lillian áfram. Gefandi starf Konurnar segja að starfið sé mjög gefandi og þær séu þakklátar fyrir að geta veitt öðrum ánægju. Það sé líka tilbreyting að vinna sem sjálfboðaliði auk þess sem því fylgi mikill og góð- ur félagsskapur. „Það er mikilvægt að gefa sér tíma með fólk- inu inni á deildunum og tala við það,“ segir Beta. „Sumir vilja spjalla og þá gerum við það,“ segir Agnete. „Svo spyr það um bækurnar og ég ráð- legg þeim alltaf að lesa bækur sem mér finnst gaman að lesa,“ segir Lillian og leggur enn áherslu á spennusögurnar. „James Patterson er til dæmis í miklu uppáhaldi hjá mér og ég kann hann utan að.“ Sjálfboðaliðar á fullu 79 og 85 ára gamlar konur gefa ekkert eftir í umönnunarstörfum Morgunblaðið/Valdís Thor Sjálfboðaliðar Agnete Simson, Beta Einarsdóttir og Lillian Simson á bókasafni Landspítalans við Hringbraut í Reykjavík. Þær eru í hópi elstu sjálfboðaliða en bera það ekki með sér. Á Bókasafni Landspítalans við Hringbraut starfa um 30 konur í sex þriggja til fimm manna hóp- um. Safnið er opið eftir hádegi á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum og vinna kon- urnar í þrjá til fjóra tíma í hvert sinn, einu sinni á tveggja vikna fresti. Þóra Stefánsdóttir, bókasafnsfræðingur, hef- ur umsjón með starfsmönnum bókasafnsins. Hún segir að stöðugt erfiðara sé að fá yngri kon- ur í þessi sjálfboðaliðastörf og fáar séu yngri en 70 ára. Spurð hvers vegna aðeins konur vinni á safninu segir hún að þannig hafi það alltaf verið og karlar séu í ýmsum öðrum störfum hjá Rauða krossinum. Á vef Rauða kross Íslands (www.redcross.is) kemur fram að 2.000 sjálfboðaliðar starfa fyrir samtökin á ýmsum sviðum. Þar segir meðal ann- ars að löng hefð sé fyrir starfsemi sjálfboðaliða við rekstur sölubúða og bókasafnsþjónustu á Landspítalanum. Þóra segir að bókasafn sé hluti af starfsemi Landspítalans og vinna sjálf- boðaliða því mjög mikilvæg. Erfiðara að fá yngri konur til sjálfboðaliðastarfa

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.