Morgunblaðið - 30.07.2008, Síða 12

Morgunblaðið - 30.07.2008, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Sigrúnu Hlín Sigurðardóttur sigrunhlin@mbl.is SLITNAÐ er upp úr Doha-viðræðunum og óljóst er hvenær þeim verður haldið áfram. Sigurgeir Þorgeirsson, ráðuneytisstjóri sjáv- arútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, var í hópi þeirra Íslendinga sem tóku þátt í viðræð- unum í Genf. Hann sagði átökin í lokin aðal- lega hafa verið milli Indverja og Bandaríkja- manna og að þau hafi snúist um það að þróunarríkin, með Indverja og Kínverja í broddi fylkingar, vildu fá rýmri heimild til að verja sinn landbúnað en Vesturlöndin og eink- um Bandaríkin gátu fallist á. Í samnings- drögum sem Pascal Lamy, forstjóri Alþjóða- viðskiptastofnunar, lagði fram á föstudag var lagt til að leyfilegt yrði að hækka tolla á inn- fluttar vörur ef innflutningur þeirra ykist um 40% á ákveðnu tímabili. Indverjar, ásamt fleiri Asíuþjóðum, vildu fá leyfi til að hækka tolla áð- ur en 40% markinu yrði náð, en þetta sam- þykktu Bandaríkjamenn ekki. Þegar ljóst var í gær að samkomulag næðist ekki höfðu viðræð- urnar staðið yfir í níu daga. Ólíklegt þykir að þráðurinn verði tekinn upp að nýju fyrr en í fyrsta lagi eftir forsetakosn- ingar í Bandaríkjunum í nóvember. Sérfræð- ingar hafa jafnvel spáð því að nokkur ár muni líða, en sjö ár eru nú liðin síðan viðræðunum var hleypt af stokkunum í Doha, höfuðborg Katar, og fundað hefur verið árlega síðan. Margir urðu fyrir vonbrigðum Forstöðumaður alþjóðlegu hjálparsamtak- anna Oxfam, Thomas Hobbs, sendi frá sér yf- irlýsingu þar sem hann sagði geysileg von- brigði að viðræðurnar skyldu hafa farið út um þúfur og tækifæri til að koma í veg fyrir aukna fátækt hefði verið kastað á glæ. Hann sakaði auðugri ríki um að hafa aðeins beitt sér fyrir því að vernda sína hagsmuni í stað þess að reyna að koma á gagngerum umbótum í al- þjóðlegum viðskiptum, og að það væri hneykslanlegt að kenna þróunarríkjum um að hafa ekki náð samkomulagi. Peter Mandelson, sem fer með viðskiptamál í framkvæmdastjórn ESB, sagðist vera miður sín yfir að aðeins eitt atriði skyldi hafa gert samkomulagið að engu, þegar efnahags- ástandið er almennt svo slæmt sem raun ber vitni. Þá hafa leiðtogar í stjórnmálum og efna- hagslífinu hafa einnig lýst yfir ósætti sínu með dræman árangur viðræðnanna, meðal annarra formaður verslunarráðs Bandaríkjanna, en hann sagði þetta slæmar fréttir fyrir fyrirtæki, verkamenn, bændur og fátæka um allan heim, og að þeir sem mestu töpuðu á þessu væru fá- tækustu ríki heims. Doha endar úti í móa Öll von slokknaði um samkomulag í Doha-viðræðunum í gær þegar ljóst varð að deila Bandaríkjanna og Asíu um landbúnaðarvernd yrði ekki leyst í bráð Morgunblaðið/Einar Falur Kýr Ef samkomulag hefði tekist um tollheimildir hefðu þær lækkað um 70%. Þá hefðu verndar- tollar á vörur sem eru líka framleiddar á Íslandi, svosem mjólk og kjöt, óhjákvæmilega lækkað. Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is EINAR K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra, ætlar að óska eftir viðræðum við bændasamtökin og aðra sem málið varðar um stuðning ríkisins og breytt styrkjakerfi við ís- lenska bændur. Hann kvaðst þegar rætt var við hann í gærdag líta svo á að hvort sem niðurstaða fengist í samningaviðræðum Alþjóðaviðskipta- stofnunarinnar (WTO) eða ekki, væri ljóst hvert stefndi varðandi landbúnaðarhluta Doha-viðræðn- anna. „Við gerum okkur grein fyrir því að niður- staðan, þegar hún kemur, mun hafa talsverð áhrif á uppbyggingu styrkjakerfisins og stuðningsum- hverfið. Það mun ráðuneytið ekki útfæra einhliða heldur munum við gera þetta í samstarfi við hagsmunaaðila. Hingað til hafa ríkið og bænd- urnir gert samninga sín á milli. Ég sé fyrir mér að þannig verði það líka við útfærsluna á þessu kerfi og þær breytingar sem það mun hafa í för með sér,“ sagði Einar. Hann taldi líklegt að hann myndi óska fljótlega eftir viðræðunum. Nánari tíma- setning gæti þó ráðist af því hvernig málum lyktaði í Genf, en mikil óvissa ríkti í þeim efnum þegar rætt var við ráðherrann. „Ég sagði strax í upphafi að ég teldi að menn ættu að fara að hugsa það til lengri tíma hvernig þessu stuðningskerfi verður háttað í ljósi þess að við munum þurfa að taka á okkur þær breytingar sem leiða af alþjóðasamningum eins og þeim sem verið er að vinna að hjá Alþjóðaviðskiptastofn- uninni. Ef niðurstaðan fæst í dag [í gær] er ljóst að við gerum það strax. Þótt niðurstaðan fáist ekki núna er að mínu mati óskynsamlegt annað en að fara að huga að því hvernig framtíðin mun líta út.“ Ekki er búið að útfæra í einstökum atriðum hvaða leiðir verða farnar til að breyta t.d. bein- greiðslum í stuðning sem WTO mun leyfa. Ein leið er t.d. að tengja stuðninginn við landnotkun bænda. Aðspurður kvaðst Einar ekki treysta sér til að svara því nú hvort hægt verði að binda stuðn- ing ríkisins með einhverjum hætti við skuldbind- ingu bænda um framleiðslu landbúnaðarvara. Útfærslan verður ekki einhliða Landbúnaðarráðherra vill efna til viðræðna við bændur og hagsmunaaðila um að- lögun að breyttu stuðnings- og styrkjakerfi í anda Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar Einar K. Guðfinnsson Í HNOTSKURN »Alþjóðaviðskiptastofnunin(WTO), sem 153 þjóðir eiga aðild að, ákvað árið 2001 að hefja nýjar samninga- viðræður um alþjóðaviðskipti. »Doha-viðræðurnar hafadregist mjög á langinn. Rætt hefur verið um tvö meg- insvið, þ.e. landbúnaðarvörur og svo aðrar vörur, þ.á m. iðn- aðarvörur. » Í síðustu viðræðulotu íGenf var meira tekist á um aðrar vörur en landbún- aðarvörur. Meiri sátt virtist ríkja um landbúnaðarþáttinn. Eftir Skúla Á. Sigurðsson skulias@mbl.is DOHA-viðræður Alþjóðaviðskiptastofn- unarinnar fóru út um þúfur í gær eftir níu daga karp. Markmið viðræðnanna var að greiða fyrir alþjóðaviðskiptum með landbúnaðarvörur með tollalækk- unum og auðvelda aðgang annarra vara á alþjóðamarkað. Haraldur Benediktsson formaður Bændasamtaka Íslands segir enga sér- staka gleði í því að upp úr viðræðunum hafi slitnað. Hann segir að þó markmið viðræðnanna séu bændum ekki endilega hagstæð þá sé óvissan í landbúnaðnum litlu skárri. „Það er mjög vont fyrir at- vinnuveginn að við séum í þessu limbói árum saman,“ segir Haraldur. Formaðurinn segir ljósa punktinn í þessu vera að nú fái Bændasamtökin rýmri tíma til að aðlaga bændur í land- inu að þeim breytingum sem vofa yfir. Reiknar hann fastlega með að samtökin muni nýta hið aukna ráðrúm til að gera bændur sem best í stakk búna til að tak- ast á við það sem koma skal. Neytendur verða af tollalækkunum Formaður Neytendasamtakanna, Jó- hannes Gunnarsson, segir þetta vera mikil vonbrigði fyrir neytendur. Þeir verði af þeim miklu tollalækkunum sem samtökin hafi vonast eftir. „Auðvitað vonum við að menn hysji upp um sig buxurnar og reyni til þrautar að ná sam- komulagi,“ segir hann um málið. Jóhannes segir að þó hans starf sé fyrst og fremst að hugsa um hag neyt- enda á Íslandi sé ekki hægt að líta fram hjá hinum gríðarlegu hagsmunum sem þarna eru í húfi fyrir fátækari þjóðir heims. Stefnt hafi verið að því að auka aðgengi þeirra að heimsmarkaðinum en nú verði ekki af því í bili. Landbúnaður áfram í óvissu EIGANDI verslunar við ráðhús- torgið á Akureyri lagði í gærmorg- un túnþökur á miðju torgsins. Þetta gerði hann án leyfis bæjaryfirvalda en þar sem uppátækið hefur lagst vel í bæjarbúa stendur ekki til að fjarlægja grasið. Hann fær í það minnsta að vera fram yfir versl- unarmannahelgina. Sigrún Jakobs- dóttir bæjarstjóri Akureyrar sagði framtakið „hið besta mál“, fjöldi beiðna um grasblett á torginu hefði borist bænum gegnum tíðina. Torgið var þakið grasi til ársins 1992 að það var allt hellulagt. Haft er eftir þáverandi yfirmanni skipulagsnefndar Akureyrarbæjar, Tómasi Inga Olrich, að hellulagt myndi torgið auka unglinga- drykkju. Honum hafi þótt torgið svo ljótt að þar væri ekkert við að vera annað en að drekka. skulias@mbl.is Ráðhústorg þakið grasi Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.