Morgunblaðið - 30.07.2008, Síða 14

Morgunblaðið - 30.07.2008, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... ● ÚRVALSVÍSITALAN í Kauphöllinni á Íslandi hækkaði um 0,4% í gær og er lokagildi hennar 4.139 stig. Af úr- valsvísitölufélögunum hækkuðu hlutabréf Landsbankans mest, eða um 2,2%. Mest lækkun varð á bréf- um Icelandair Group, 0,6%. Krónan styrktist í gær um 3,6% og er vísitalan 160,4 stig. gretar@mbl.is Hækkun í Kauphöll ● SPRON lauk í gær verðbréfun íbúðalánasafns síns fyrir um 21 milljarð króna. Verðbréfun hef- ur það verið nefnt sem á ensku heit- ir securization og er sala á eigna- safni sem fjármögnunaraðferð. Skuldabréf Spron eru gefin út í evrum og hafa 78,5% bréfanna feng- ið lánshæfismatið Aaa frá matsfyrir- tækinu Moodýs. Þau hafa verið skráð í tveimur kauphöllum, á Íslandi og NYSE Euronext, Amsterdam. Þau eru jafnframt gjaldgeng í endur- hverfum viðskiptum hjá Seðlabanka Íslands og Seðlabanka Evrópu. gretar@mbl.is Skuldabréf SPRON fá Aaa í lánshæfismat ● TAP af rekstri Vinnslustöðvarinnar á fyrstu sex mánuðum þessa árs nam 950 milljónum króna. Þetta er mikil breyting frá því á sama tímabili í fyrra en þá var hagnaður félagsins 1.116 milljónir. Mest munar um að fjármagnsliðir voru neikvæðir um 1.709 milljónir í ár, en þar af var gengistap 1.614 milljónir. Til samanburðar voru fjár- magnsliðir jákvæðir um 530 milljónir á sama tímabili í fyrra. Í tilkynningu segir að hátt olíuverð vegi þungt og hafi neikvæð áhrif auk þess sem áhrifa minnkandi eft- irspurnar sé tekið að gæta, einkum í dýrari afurðaflokkum. gretar@mbl.is Verri afkoma hjá Vinnslustöðinni VERÐBÓLGA var mest á Íslandi í júnímánuði síðastliðnum af aðildar- ríkjum Efnahags- og framfarastofn- unarinnar, OECD. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu stofnunarinnar sem birt var í gær. Tólf mánaða verðbólga mældist 12,8% í júní á Íslandi. Næstmest var verðbólgan í Tyrklandi, 10,6% og þar á eftir komu Ungverjaland og Tyrk- land með 6,7%. Verðbólgan mældist heilt yfir 4,4% í OECD-ríkjunum öllum, sem er hækkun frá fyrra mánuði er hún mældist 3,9%. Þetta er mesta jafn- aðarverðbólga í OECD-ríkjunum frá því í mars árið 2000. Mest munar um orku og mat Fram kemur í skýrslu OECD að meginástæðan fyrir aukinni verð- bólgu sé hækkun á orkuverði, annars vegar, og hækkun á verði matvæla, hins vegar. Orkuverð hækkaði um 19,3% frá júní á síðasta ári til sama mánaðar á þessu ári, í samanburði við 14,7% hækkun frá maí 2007 til maí 2008. Matvælaverð hækkaði um 6,5% á milli júní og júní en um 6,0% frá maí til maí. Að orku og matvælum undanskild- um var tólf mánaða verðbólga í OECD-ríkjunum 2,2% í júní en 2,1% í maí. Tólf mánaða verðbólga á evru- svæðinu í júní var nokkuð lægri en í OECD-ríkjunum, eða 4,0%. Verð- bólgan var 3,8% á Ítalíu og Bret- landi, 3,6% í Frakklandi, 3,3% í Þýskalandi, 3,1% í Kanada og 2,0% í Japan en 5,0% í Bandaríkjunum. gretar@mbl.is Mest verðbólga á Íslandi meðal OECD-ríkja Verðbólgan jókst í flestum ríkjunum á milli maí og júní Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, segir í samtali við Morgunblaðið að við núverandi að- stæður á alþjóðamörkuðum stefni bankinn ekki á frekari vöxt efnahags- reiknings í evrum talið, heldur að halda í horfinu þar til léttir til á fjár- málamörkuðum. Hvað varðar fjármögnun muni bankinn leggja áherslu á Icesave inn- lánsreikninga bankans, sem hafi gengið afar vel, og verði opnaðir fleiri slíkir reikningar í fleiri löndum á næstu mánuðum. Með þessum hætti og með hliðsjón af því að afborgarnir af langtímalánum séu aðeins um 850 milljónir evra á næstu tólf mánuðum muni bankinn kappkosta að varðveita sterka lausafjárstöðu. Uppgjör Landsbank- ans yfir væntingum Hagnaður 29,5 milljarðar króna á fyrri helmingi ársins Morgunblaðið/Brynjar Gauti Hækkun Bréf Landsbankans hækkuðu um 2,2% í gær, mest allra félaga í Úr- valsvísitölu Kauphallarinnar. Velta með bréf bankans nam 340 milljónum. FRÉTTASKÝRING Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is HAGNAÐUR Landsbankans á fyrri helmingi ársins nam 29,5 milljörðum króna, samanborið við 26,3 milljarða króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Á öðrum ársfjórðungi nam hagnaður bankans 12 milljörðum króna saman- borið við 12,5 milljarða króna hagnað á sama tímabili árið áður. Er afkoma bankans heldur yfir spám greiningardeilda hinna bank- anna tveggja, en Glitnir hafði spáð 9,9 milljarða króna hagnaði á fjórðungn- um og Kaupþing spáði 11,6 milljarða hagnaði. Hagnaður fyrir skatta á fyrri helm- ingi ársins nam 31,1 milljarði króna, en hagnaður fyrir skatta af kjarna- starfsemi bankans nam hins vegar 22,8 milljörðum. Við þann útreikning er horft framhjá gengishagnaði eða -tapi af hlutabréfaeignum bankans og eigin viðskiptum með gjaldeyri og skuldabréf. Þessi liður skilaði bank- anum, með öðrum orðum, 8,3 millj- örðum króna á fyrri helmingi þessa árs. Arðsemi eigin fjár eftir skatta fyrri hluta ársins var 35%, en arðsemi eigin fjár af áðurnefndri grunnaf- komu var hins vegar 26%. Arðsemi eigin fjár allt árið í fyrra var 24%. ÍSLENSKIR neytendur eru nú svartsýnni en þeir hafa áður verið frá því Gallup hóf að mæla vænt- ingar þeirra í mars 2001. Væntingavísitala Gallup, sem birt var í gær, mældist 61,4 stig, en það er lægsta gildi hennar frá upphafi. Ef væntingavísitalan er yfir 100 stigum eru fleiri viðmælendur Gallup bjartsýnir á ástand og horfur í efnahags- og atvinnumálum en þeir sem eru svart- sýnir. Þessu er öfugt farið ef vísitalan er undir 100 stigum, eins og nú er. Könnun Gallup gefur til kynna að töluvert fleiri Íslendingar séu nú svartsýnir en bjartsýnir. Breyt- ingin er mikil á einu ári, því í maí í fyrra var vænt- ingavísitalan hærri en hún hafði áður verið, þ.e. 155 stig. Í Morgunkorni Greiningar Glitnis segir að ekki sé að efa að gengisfall krónunnar og verðbólguskot hafi haft mikil áhrif á væntingavísitöluna að þessu sinni. Greiningardeild Kaupþings segir í vefriti sínu, hálffimm-fréttum, að vaxandi svartsýni og sögulegt lágmark væntinga nú um stundir gefi til kynna að neytendur telji efnahagsvetur ekki langt undan. Í Vegvísi greiningardeilar Landsbankans segir að væntingavísitalan breytist mjög í takt við gengi krónunnar. Þegar krónan veikist leiði það jafnan til lækkunar á væntingavísitölunni, sem aftur haldist í hendur við breytingar einkaneyslu. „Hrun vænt- ingavísitölunnar á öðrum ársfjórðungi gefur því til kynna að verulega hafi dregið úr einkaneyslu á árs- fjórðungnum og nýtt lágmark væntingavísitölunnar í júlí bendir til að sú þróun haldi áfram,“ segir í Veg- vísinum. gretar@mbl.is Svartsýni eykst hér  Væntingavísitala Gallup hefur ekki mælst lægri  Mun fleiri neytendur eru svartsýnir en bjartsýnir Morgunblaðið/RAX Svartsýnir Mikið hefur dregið úr bjartsýni ís- lenskra neytenda á undanförnum mánuðum. AFKOMA Öss- urar hf. var um- talsvert betri á fyrri helmingi þessa árs en á sama tímabili í fyrra. Hagn- aðurinn í ár nam 10,6 millj- ónum Banda- ríkjadala, eða um 854 milljónum íslenskra króna á núverandi gengi. Á fyrri helmingi síðasta árs var hins vegar 1,2 milljóna dala tap af rekstri Össurar. Sala félagsins á tímabilinu nam tæpum 183 milljónum dala og jókst um 8% frá fyrra ári. Annar fjórðungur þessa árs var einnig betri en sama tímabil í fyrra, en hagnaðurinn á fjórð- ungnum í ár nam 3,9 milljónum dala samanborið við 1,5 milljónir í fyrra. Heildareignir Össurar jukust lítillega eða úr 635 milljónum Bandaríkjadala í 646 milljónir dala, þegar miðað er við lok ann- ars fjórðungs á síðasta ári. Eig- infjárhlutfall (CAD) félagsins var 42% í lok júní á þessu ári. Aukin arðsemi Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, segir í tilkynningu að tekist hafi að auka arðsemi félagsins tals- vert á fyrstu sex mánuðum ársins þrátt fyrir slæma sölu á öðrum ársfjórðungi. „Óvenju fáar vörur hafa verið markaðssettar á fyrstu sem mánuðum ársins, en von er á áhugaverðum nýjum vörum sem og endurbættum vörum á seinni hluta ársins.“ gretar@mbl.is Hagnaður eykst hjá Össuri         !" #$ %&' (                          ! " #$  %      &'    (   $   )   *+,-. * " / 0 12    3 4"  5      678     94   +   "+:1   1; 4  .< 2  3 4 "00   = 0        >  4" "> !    !"02    !  "  ! "! # $! %# && ! '$ '$ "' '$ (& '! "# )%$ && %% "& *$ #& ( && " %( ' #% *# (& ' '! '"% && '#*& && %'& && '(* && %' "&  * #& $#*& &&                                     =0   3 0?  &* 6AA6A76 A6BBBB C7D6A8 DAE6D68 E6 DB 8B8BBB C8ADC6B8B 66E C6BDD8 8EAEDE6 C6 / CCA 8A7BEA8 B CA8BB / E7CC / / / DC7DBBBB / / 7FE 8FD7 8FBB 7FBE CDF CDF6B C7FE8 ADFBB FAB 6F 6FBC EF CF8 8F6B / CEBFBB C8BFBB B8FBB C6FBB / / / D878FBB / / 7FEA 8F8B 8F 7FCD CDFEC CDF68 CAFB8 AAFBB FEB DF8B 6F EF CF86 7FBB / CE6FBB C7BFBB CDFBB CD6FBB CFEB / F8B D7C8FBB CBF8B 8FBB 12  0 8 C  C8 C 8 C  D  / 7 C / C / D / / / 6 / / G    0 0 EABB EABB EABB EABB EABB EABB EABB EABB EABB EABB EABB EABB ABB EABB EABB 8ABB EABB DABB EABB C7ABB 7CBBA 67BB EABB ABB A6BB -)H -)H $&( *#% +& ' ,& % -)H &H %-%!' $'& +& # ,& * G9I  . J ''-("* %-(%& ,% $ ,% # 13* G #-('" !-("' ,& ' ,& ) -)H'C8 -)HDB $-'(" "!$ ,& $ +& ' ● BRESKA flugfélagið British Air- ways (BA) og spænska félagið Iberia eiga í viðræðum um hugsanlegan samruna. Haft er eftir Willi Walsh, forstjóra BA, í frétt á fréttavef BBC- fréttastofunnar, að samruninn myndi væntanlega gagnast báðum félög- unum vel við núverandi efnahags- aðstæður í heiminum. Walsh segir að landslagið í flug- heiminum sé að breytast og að flug- félög verði að huga að samruna í enn ríkara mæli en hingað til. Of snemmt sé þó að segja eitthvað til um hvort störfum hjá félögunum muni fækka ef til samruna kemur. gretar@mbl.is British Airways og Iberia ræða samruna Eiginfjárstaða bankans og fjármögnun er traust. Uppgjörið litast af veikingu krónunnar og komi til styrk- ingu hennar á ný mun geng- ishagnaður ganga að ein- hverju leyti til baka. Innlán í Icesave-reikninga erlendis hafa aukist og er um helmingur þeirra nú bundinn. Þóknanatekjur munu lík- lega dragast saman á næstu mánuðum. Uppgjörið í hnotskurn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.