Morgunblaðið - 30.07.2008, Síða 16

Morgunblaðið - 30.07.2008, Síða 16
|miðvikudagur|30. 7. 2008| mbl.is daglegtlíf Verslunarmannahelgin er yndisleg hvort sem fólk eyðir henni í fjúkandi tjaldi, eða við kamínuyl í sumarbústað. Stefni fólk ótrautt á tjaldið er skyn- samlegt að lesa áfram. Hitakanna sem heldur hita á drykknum í útilegunni. Dugar bæði í þynnkukakó og síðdegiskaffi. Fæst í Europris og kostar 295 kr. Ferðasápa er bráðsniðug í bak- pokann. 50 lauf eru í pakkanum og þau má nota sem sjampó og sápu, auk þess sem hægt er að þvo með þeim föt og vaska upp. Sápan fæst í Íslensku Ölpunum og kostar 695 kr. 32 lítra kælibox kemur að góðum notum. Hvort sem það er fyllt af öli eða gómsæt- um útilegumat, er gott að hafa mikið pláss. Fæst í Europris og kostar 3.790 kr. Nauðsynlegir og nytsamir ferðafélagar 18 lítra samanbrjótanleg kælitaska er fyrir- ferðarlítil þegar grynnkar á matarbirgðunum. Fæst í Íslensku Ölpunum og kostar 1.995 kr. Litlar túpur og box fyrir matvæli sem eru of fyrirferðamikil í sín- um upprunalegu pakkningum. Til dæmis matarolíu, tómatsósu og fleira. Fæst í Íslensku Ölpunum og kostar 895 kr. Tjaldhælatogari Þetta segir sig nú al- veg sjálft. Ódýr og góð lausn fyrir fólk sem vill sleppa við eymsli í putt- unum eftir átök við tjaldhæla. Fæst í Íslensku Ölpunum og kostar 295 kr. Lakpoki er góð lausn fyrir kulvísa. Eykur ylinn í svefnpokanum um allt að 8°C og heldur honum hreinum. Fæst í Everest og kostar 10.495 kr. Vasahandklæði úr microfiber efni. Fæst í nokkrum stærðum, er mjög rakadrægt og fljótþornandi. Tekur ekki hálfa töskuna eins og önnur handklæði. Fæst í Everest og kostar 2.990 kr. Handahitari er góð lausn í íslenskri veðráttu. Stingið honum í vett- lingana og rymjið af hlýju og ánægju í allt að sjö klukkutíma. Fæst í Ís- lensku Ölpunum og kostar 500 kr. Næstu helgi munu tjöld íöllum litum rísa upp víðaum land. Sumt fólk erorðið ansi sjóað í úti- legum og búið að koma sér upp myndarlegum útilegugræjum í gegn um árin. Aðrir eru nýgræðingar í tjaldmálum og munu brátt læra hvaða hluti er nauðsynlegt að hafa með sér í ferðalagið, og hverja er best að skilja eftir heima. Til aðstoðar við bæði þaulreynda og grænjaxla, kynnir blaðamaður til sögunnar jafnt nauðsynlega sem nyt- samlega hluti í útileguna. liljath@mbl.is Áútihátíðum virðist stund-um fátt jafn handhægt ogað skella pylsum eða ham-borgara á einnota grillið. Þótt það sé fljótleg lausn þykir fátt betra á hráslagalegri útihátíð en gómsætur biti. Með sniðugum hráefnum og fyrir- hyggjusemi er hægt að töfra fram fljótlegar kræsingar. Hér eru nokkrar grillhugmyndir frá nokkrum nautnaseggjum: Fylltar kartöflur Þessa uppskrift er fengin frá Meist- arkokkum mbl.is. Hægt að undirbúa kartöflurnar áður en lagt er í ferða- lagið. 4 forbakaðar bökunarkartöflur 100 g stökkt forsteikt beikon 1 rif hvítlaukur í olíu 1 búnt söxuð steinselja salt og pipar ögn saxaður chili Takið innan úr bakaðri kartöflu með skeið. Blandið innihaldið að eig- in vali. Til dæmis er hægt að blanda stökku beikonbitum, hvítlauks- mauki, saxaðri steinselju, salti og pipar og söxuðum chili. Kartöflu- hýðið er fyllt með maukinu og vafið inn í álpappír. Grillið. Bragðgott miðnæturbrauð 4-5 tómatar 1 höfðingjaostur 1 chilipipar samlokubrauð Mótið litla skál úr álpappír. Klipp- ið tómatana og höfðingjaostinn í grófa bita ofan í skálina. Klippið chilipiparinn fínt ofan í skálina. Grillið í smá stund og mokið á létt- hitað samlokubrauð. Fylltar paprikur 1-2 paprikur (ekki grænar) piparostur grænmeti að eigin vali Skerið paprikurnar til helminga og hreinsið þær að innan. Grænmeti að eigin vali og smá klípu af piparosti er troðið í paprikurnar. Grillið. Bananar og beikon banani beikon Skerið banana í fjóra bita. Skerið jafn langa bita af beikoni. Vefjið beikoni utan um bananann og festið með tannstöngli. Grillið. Eftirréttur úr náttúrunni Tínið ber í nálægum berjamó og grillið með makkarónukökum. Einfaldir sælkeraréttir fyrir tjaldbúa Nú þegar verslunarmannahelgin er á næsta leiti er ekki seinna vænna að huga að matarkrásunum sem taka á með í útileguna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.