Morgunblaðið - 30.07.2008, Side 23

Morgunblaðið - 30.07.2008, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2008 23 ✝ Pálína MargrétHafsteinsdóttir fæddist á Skaga- strönd 1. janúar 1930. Hún lést á heimili sínu 22. júlí síðastliðinn. Hún var dóttir hjónanna Laufeyjar Jóns- dóttur, f. 16.6. 1897, d. 25.12. 1969 og Hafsteins Sigur- bjarnarsonar, f. 11.2. 1895, d. 18.5. 1974, frá Reykholti á Skagaströnd. Hún var ein af sjö systrum. Hinar eru; Jóninna Þórey, f. 1922, d. 1994, Ragnheiður Birna, f. 1925, Ingi- björg Fríða, f. 1933, Guðný Aðal- björg, f. 1936, Áslaug Aðalheiður, f. 1938 og Ólína Gyða, f. 1941. Pálína ólst upp á Skagaströnd, en fluttist til Reykjavíkur 16 ára að aldri og bjó þar rúm 50 ár og í Kópavogi síðustu 10 árin. Pálína giftist 16. sept. 1950 Þórði Kristjánssyni frá Hólslandi í Eyjahreppi í Snæfellsness- og Hnappadalssýslu, f. 13.1. 1924, d. 30.6. 1991. Þau áttu 3 börn. Þau eru; 1) Bára, f. 21.9. 1948, gift Herði Sveinssyni frá Húsavík, f. 24.6. 1943, börn þeirra Þórður Páll, f. 22.5. 1968, d. 5.4. 1981 og Magnea Ingigerður, f. 21.6. 1971, gift Viggó Magnús- syni frá Skaga- strönd, f. 14.8. 1971. Börn þeirra eru Telma Rán, f. 29.7. 1993, Glódís Perla, f. 27.6. 1995 og Bára Bryndís f. 20.11. 1998. 2) Hafsteinn, f. 30.12. 1949, maki Anna Björk Daníels- dóttir, f. 1.5. 1955, d. 7.2. 2006, börn þeirra eru Pálína Margrét, f. 28.1. 1976, gift Guðmundi Sigurðssyni, Ása Marin, f. 26.6. 1977, sambýlismaður James W.Goulden og Daníel Þór, f. 14.12. 1984. Seinni kona Hafsteins er Steinunn Guðnadóttir, f. 5.2. 1955, börn hennar eru Egill, f. 12.5. 1982, Sif, f. 15.7. 1985, Sara, f. 2.1. 1991 og Emil, f. 22.7. 1993. 3) Laufey, f. 13.5. 1963, giftist Víði Árnasyni. Þau skildu árið 2000. Synir þeirra eru Davíð, f. 23.9. 1981, sambýliskona Ása Laufey Sæmundsdóttir, f. 14.12. 1979, Baldur, f. 11.2. 1986 og Haukur, f. 25.8. 1988. Seinni maður Pálínu er Sæ- mundur Björnsson, f. 31.10. 1926. Útför Pálínu fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Mig dreymdi draum. Ég var í Hveragerði með mömmu og pabba. Þau voru á hestum, pabbi á rauðum en mömmu var hvítur. Hesturinn hennar var með mikið sítt fax, sérlega fallegur og með reistan makka. Ég stóð neðan við Kambana og horfði á eftir þeim þeysa þar upp. Þau fóru miklu hraðar yfir en bíl- arnir. Allt í einu var mamma samt komin til mín aftur og bauð mér hestinn, að ég færi á bak, sem ég og gerði. Ég lét hann skokka um Hvera- gerði dágóða stund. Í næstu andrá vorum við komnar á Skagaströnd og þar inn í garð systur mömmu. Ég var enn á hvíta hestinum en mamma stóð á spjalli við ættingja okkar sem voru þarna saman komnir. Það var sól og yndislegt veður. Lengri varð draumurinn ekki og ég vaknaði. Þá sjaldan ég man drauma mína finnst mér þeir óttalegt bull og vit- leysa. En ekki þessi og ég var strax viss um merkingu fyrri hlutans. Ég hef svo fallega trú, ég trúi því að það sé vel tekið á móti okkur eftir þetta líf, af himnaföðurnum og ást- vinum okkar sem á undan eru gengnir. Ég áttaði mig því strax á hvað fyrri hlutinn táknaði. Pabbi væri að sækja mömmu. Merking síðari hlut- ans rann svo upp fyrir mér strax næstu nótt, sem var síðasta nótt elsku mömmu minnar í þessu jarð- lífi. Mamma var orðin mjög þreytt og máttfarin vegna krabbameinsins. Þessa síðustu nótt sat hún uppi í rúminu sínu, lagði enni sitt á öxl mína og sofnaði þannig. Ég lagði hana svo niður og lagðist hjá henni og þannig svaf hún í fangi mínu alla nóttina og svaf vel. Þarna um nóttina rann svo upp fyrir mér öll merking draumsins, því þetta var minn útreiðatúr þar sem hún leyfði mér að fara á bak hvíta hestsins. Þar sem ég lá hjá henni og hugsaði um drauminn áttaði ég mig líka á staðsetningunum, því hún hélt mikið upp á Hveragerði og á Skagaströnd voru bernskuslóðirnar. Þar var hún því aftur komin heim, í öllum merk- ingum þess orðs. Ég er svo þakklát fyrir þessa nótt með henni og síðustu dagana okkar saman. Þakklát og sátt, þó söknuðurinn sé mikill og sár. Ég sakna þessarar sterku dugn- aðarkonu sem ég var svo heppin að eiga fyrir móður. Mamma verður alltaf mín helsta fyrirmynd í lífinu. Ávallt tignarleg og flott. Huggulega klædd og með uppsett hárið sitt. Hún var mikill dýravinur og Tessý mín alltaf vel- komin til hennar, henni fannst mikið vanta ef ég kom þar án hundsins. Mamma var líka ráðagóð, hlý og hjálpsöm við alla og ég hugsa að það finnist fáir ættingjar meðal okkar sem hún hefur ekki vaskað upp hjá og aðstoðað í veislum, svo dæmi sé nefnt. Ég vildi að ég hefði þó ekki væri nema brot af dugnaðinum og æðru- leysinu sem hún sýndi í veikindum sínum. Hún átti marga góða að. Sæmund- ur hennar, var yndislegur ástvinur og mikið góður félagi. Guð launar honum það. Þá var hún líka svo heppin að vera ein af sjö yndislegum og samhentum systrum sem studdu og styrktu hver aðra alla tíð. Elsku mamma mín, Guð er góður og ég veit að nú líður þér vel. Takk fyrir lífið sem þú gafst mér og öll árin okkar saman. Þú varst mér yndisleg móðir og ég mun alltaf elska þig og virða. Þín, Laufey. Mínar fyrstu minningar um Reykjavík eru er ég krakki var smá- tíma hjá systur minni Pálínu og Þórði manni hennar sem þá voru far- in að búa á Grettisgötu 77. Þau áttu þá dóttur á fyrsta ári, Báru. Í sam- Pálína Margrét Hafsteinsdóttir Elsku Palla. Takk fyrir alla þína ást. Takk fyrir alla þína hjálp. Takk fyrir alla þína um- hyggju. Takk fyrir að fylgja okkur í gegnum lífið. Takk fyrir að taka þátt í sorgum okkar og gleði. Takk fyrir allt. Sofðu rótt, engillinn minn. Laufey og fjölskylda. HINSTA KVEÐJA SJÁ SÍÐU 24 ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, HELGA INGIBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR frá Smyrlabergi, áður til heimilis á Vífilsgötu 23, Reykjavík, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni miðvikudaginn 23. júlí, verður jarðsungin frá Háteigskirkju á morgun, fimmtudaginn 31. júlí kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á minningarkort Sóltúns s. 590 6000. Sjöfn Friðriksdóttir, Skúli Jón Sigurðarson, Alda G. Friðriksdóttir, Guðni F. Guðjónsson, Hulda G. Friðriksdóttir, Sigurbjarni Guðnason. barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA KRISTJÁNSDÓTTIR, Víðimel 21, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, fimmtudag- inn 31. júlí kl. 15.00. Guðmundur Gaukur Vigfússon, María Guðmundsdóttir, Vigfús Guðmundsson, Lára Guðmundsdóttir, Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, Svanur Guðmundsson, Kristján Guðmundsson, Elín Anna Helgadóttir og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför elsku- legs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR HÓLMKELSSONAR, Mímisvegi 34, Dalvík. Inga Hólmsteinsdóttir, Hólmsteinn Sigurðsson, Marsibil Sigurðardóttir, Valur Hauksson, Hólmfríður Sigurðardóttir, Rögnvaldur Ingvason, Guðrún Ósk Sigurðardóttir, Gunnar Guðmannsson, Guðmundur Þór Sigurðsson, Lára Þórðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, JÓHANN GUÐMUNDSSON, Erluási 38, Hafnarfirði, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu- daginn 24. júlí, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju föstudaginn 1. ágúst kl. 13.00. Guðrún J. Guðlaugsdóttir, Jóna Laufey Jóhannsdóttir, Ingvar Hreinsson, Inga Jóhannsdóttir, Daði Bragason, Jóna Guðrún Jóhannsdóttir, Þorgils E. Ámundason, Guðmundur Jóhannsson, Guðrún Ágústa Unnsteinsdóttir og barnabörn. ✝ Alúðarþakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát ástkærs föður okkar, sambýlismanns míns, sonar míns, bróður okkar, mágs og frænda, PÉTURS LEIFS PÉTURSSONAR, sem lést mánudaginn 7. júlí. Erna Pétursdóttir, Dagur Pétursson, Maite Pueyo, Pétur Guðfinnsson, Ólöf Pétursdóttir, Jóhannes Hraunfjörð Karlsson, Elín Marta Pétursdóttir, Sigurgeir Örn Jónsson og aðrir aðstandendur. ✝ Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, RÍKEYJAR SIGURBJÖRNSDÓTTUR, Langhúsum, Fljótum. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Siglufjarðar fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Þorleifur Þorláksson, Sigurbjörn Þorleifsson, Bryndís Alfreðsdóttir, Guðný Ó. Þorleifsdóttir, Elías Æ. Þorvaldsson, Jóhanna Þorleifsdóttir, Hallgrímur S. Vilhelmsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, GUÐBJARTUR PÁLSSON, Hagamel 36, Reykjavík, sem lést að morgni mánudagsins 21. júlí í Danmörku, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, miðvikudaginn 30. júlí kl. 11.00. Níta Helene Pálsson, Helena Guðbjartsdóttir Pálsson, Sigurður Ingi Bjarnason, Kristína Guðbjartsdóttir Pálsson, Atli Már Bjarnason, Davíð Ólafsson, Nadía Lind Atladóttir, Aron Már Atlason, Níta María Arnardóttir. ✝ Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og lang- amma, ELÍN JÓSEFSDÓTTIR, áður til heimilis á Langholtsvegi 2, Reykjavík, sem andaðist á Hrafnistu í Reykjavík sunnudaginn 6. júlí, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 31. júlí kl. 13.00. Jóna Guðbrandsdóttir, Ásbjörn Einarsson, Einar Jón Ásbjörnsson, Elísabet Reykdal Jóhannesdóttir, Elín Björk Ásbjörnsdóttir, Gísli Jóhann Hallsson og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.