Morgunblaðið - 30.07.2008, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2008 29
Heimsferðir bjóða frábært verð á flugsætum til Parísar 3. og 10.
ágúst. París er ótrúlega spennandi borg, hvort sem þú vilt þræða
listasöfnin, spranga um í Latínuhverfinu eða njóta lífsins
lystisemda sem þessi einstaka borg býður í ríkum mæli. Úrval
gistimöguleika er í boði. Notaðu tækifærið og bjóddu elskunni
þinni til Parísar á frábærum kjörum eða skrepptu með
fjölskylduna í hinn einstaka ævintýraheim Disney í París.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
París
Örfá sæti laus!
Verð kr. 12.090
Flugsæti aðra leið með sköttum
(Kaflavík-París). Netverð á mann.
Sértilboð 3. eða 10. ágúst.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
frá kr. 12.090
3. eða 10. ágúst
Verð kr. 29.990
Flugsæti báðar leiðir með sköttum.
Netverð á mann.
Sértilboð 3. eða 10. ágúst.
hljóðversplötum settu sveitina í
öndvegi íslenskrar popptónlistar
árin 2002 til 2004 en þá var popp-
senan einkar sterk hér á landi og
aðrar hljómsveitir eins og Írafár
og Á móti sól nutu gríðarlegrar
hylli.
Áhersla á eigið efni
„Við vorum búnir að spila stans-
laust í sjö ár,“ segir Palli trymbill.
„Þannig að við tókum okkur hlé.
En sveitin hætti aldrei. Og það
hefur aldrei verið nein úlfúð eða
ágreiningur á milli okkar eins og
svo oft er með hljómsveitir. Það er
þvert á móti mjög gott samband á
milli okkar og við höfum hist
reglulega á þessu tímabili og það
var gaman, bara mjög spennandi,
að setja í gang aftur.“
Áki bassaleikari segir að það
verði hins vegar ekki svo að þeir
séu að fara að spila út um allar
jarðir, fjórum sinnum í viku, eins
og raunin var áður.
„Við ætlum að velja tónleika og
skemmtanir gaumgæfilega og hafa
þær veglegri og veigameiri fyrir
vikið. Þá er að ganga í gegn
ákveðin áherslubreyting en við
ætlum að draga mun meira af
okkar eigin efni inn í „settið“ enda
nóg til af slíku eftir allar þessar
plötur.“
Á næsta ári á hljómsveitin svo
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
HLJÓMSVEITIN er reyndar
komin á toppinn nú þegar þó hún
sé enn stödd í æfingarferlinu. Ég
er nefnilega lóðsaður í háreista
byggingu í austurhuta borgar-
innar og þar, í þakíbúðinni eða
„penthásinu“, er sveitin búin að
koma sér upp æfingaaðstöðu. Ekki
nóg með að græjur og svið (með
ljósum og öllu) sé á staðnum held-
ur stendur stórt og mikið hring-
borð lengra inn með herberginu
þar sem ég á eftir að setjast niður
með gervallri hjómsveitinni til
skrafs. En auk mín eru þarna
ljósamaður, hljóðmaður og
sprengjusérfræðingur. Já, ég
sagði sprengjusérfræðingur. Víst
er að eitthvað mikið stendur til
með þjóðhátíð í Eyjum en sveitin
leikur þar á föstudegi, laugardegi
og sunnudegi. Á milli þess sem
rennt er í góða og gegna slagara
er rætt um reyk, ljósastillingar og
útsetningar og á einum tímapunkti
heyri ég að Jónsi söngvari er að
plotta sérhannaðar flíspeysur fyrir
„krúið“...
Já, Í svörtum fötum eru greini-
lega komin aftur á kreik, en óbil-
andi ástríða samfara vel ígrund-
uðum látalátum, linnulausri
spilamennsku og metnaðarfullum
tíu ára afmæli og ýmislegt er í
farvatninu vegna þess. Og Palli
staðhæfir að nýtt efni muni koma
út fyrr eða síðar, engin þurrð sé í
þeirri deildinni.
„Á sínum tíma störfuðum við
sem ballsveit annars vegar og tók-
um þá „cover“-lög en vorum svo
hins vegar hljóðversband, þar sem
við sömdum eigið efni og gáfum út
plötur. Okkur vantaði kannski
kjark til að pota eigin efni fram á
tónleikum og vildum helst ekki
spila lögin okkar í þannig um-
hverfi. En viðhorf okkar til þessa
er allt annað í dag eins og koma
mun í ljós.“
Nakinn
Á milli laga spjalla ég stuttlega
við Einar hljómborðsleikara.
„Það hefur alltaf verið mikill
metnaður í þessu bandi gagnvart
þjóðhátíð,“ segir hann af sinni stó-
ísku ró. „Við höfum alltaf lagt
mikið í þá tónleika og það verður
svaka „sjó“ núna, því get ég lofað.
Það verða þrjú mismunandi sett
fyrir hvert kvöld og atriði sem á
eftir að koma verulega á óvart.“
Jónsi heyrir til okkar. „Við skul-
um segja, að við höfum aldrei ver-
ið naktari á ferlinum,“ skýtur
hann glottandi inn í en er ófáan-
legur til að útskýra það eitthvað
frekar. Og svo er talið í næsta lag.
Morgunblaðið/Ómar
Á flugi Það var enginn bílskúrsbragur á þeim félögunum í hljómsveitinni Í svörtum fötum, enda var æft í hæstu hæðum – bókstaflega.
Aftur upp á topp
Um áramótin 2006–2007 tók hljómsveitin Í svörtum fötum sér langþráða hvíld.
Eitt gigg hér og hvar hefur dottið inn síðan þá en frá og með þjóðhátíð hyggst
sveitin snúa í gang á nýjan leik af þónokkru afli. Morgunblaðið leit inn á æfingu
hjá sveitinni á mánudagskvöldið og er nokkuð ljóst að ekkert verður til sparað í
endurkomu einnar vinsælustu poppsveitar sem landið hefur átt.
Búmm! Jónsi á fundi með ljósamanninum og sprengjusérfræðingnum. „Sko,
svo droppum við bara sprengjunni svona!“ gæti hann verið að segja.
Hugsi „Hmmm....hvernig eigum við
eiginlega að leysa þetta?“
Nokkrar frægar endurkomur
STUNDUM finnst manni eins og allar hljómsveitir sem einhvern tíma
voru eitthvað hafi komið saman aftur – og þá bætir ekki úr skák að oft er
málum blandið hvort þær hafi hætt, tekið sér pásu eða bara alls ekki hætt.
En hvað um það, hér eru nokkur eftirminnileg „kombökk“, í engri sér-
stakri röð.
Skítamórall Hætti með sæmilegustu dramatík haustið 2000 og að sjálf-
sögðu skúbbaði Morgunblaðið þeirri frétt. Sneru aftur árið 2003 og gáfu út
nýja breiðskífu árið 2005. Land og synir Sveitungar Skímó fóru illa út úr
viðskiptum við ameríska meikjöfra og koðnuðu niður ca. árið 2003. Héldu
stórtónleika síðasta haust í Íslensku óperunni sem gefnir voru út á plötu og
mynddisk og eru á fljúgandi farti um þessar mundir. Sálin hans Jóns míns
Ein þeirra sveita sem hefur aldrei hætt en hins vegar tekið sér mislangar
pásur. Órafmagnaðir tónleikar þeirra sumarið 1999 hleyptu hins vegar
nýju lífi í bandið og hefur sveitin verið á góðri og stöðugri siglingu allar
götur síðan. Todmobile Þessi framsækna sveit sem átti poppið um og í
kringum ’90 ásamt Sálinni, SSSól og Nýdanskri sneri aftur með pomp og
prakt í Laugardalshöllinni haustið 2003. Gaf svo út plötu með nýju efni árið
2006 og verður með tónleika á Neistaflugi nú um helgina. Írafár Á hins veg-
ar kombakkið eftir. Lítið hefur heyrst í þessari gríðarlega farsælu popp-
sveit síðan samnefnd plata hennar kom út jólin 2006. Þannig að …