Morgunblaðið - 30.07.2008, Page 32

Morgunblaðið - 30.07.2008, Page 32
32 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ BÆKUR» / ÁLFABAKKA THE LOVE GURU kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára WALL• E m/ísl. tal kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ DARK KNIGHT kl. 5 - 8 - 11:10 POWERSÝNING B.i. 12 ára DECEPTION kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára KUNG FU PANDA m/ísl. tal kl. 4 LEYFÐ / KRINGLUNNI VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK POWER SÝNING KL. 11:1 0 Í KRINGL UNNI THE DARK KNIGHT kl. 2 - 5 - 8 - 11:10 B.i. 12 ára THE DARK KNIGHT kl. 2 - 5 - 8 - 11:10 B.i. 12 ára LÚXUS VIP WALL• E m/ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 LEYFÐ DIGITAL WALL• E m/ensku. tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 10:10 LEYFÐ MAMMA MIA kl. 2 - 5:50 - 8:20 B.i. 12 ára DECEPTION kl. 11:10 B.i. 14 ára KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 LEYFÐ KUNG FU PANDA m/ensku. tali kl. 8 LEYFÐ WANTED kl. 11:10 B.i. 16 ára CHRONICLES OF NARNIA 2 kl. 5 B.i. 7 ára SÝND Í KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALISÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI "VÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ! THE DARK KNIGHT ER STÓRKOSTLEG. THE DARK KNIGHT ER SVO GÓÐ AÐ ERFITT ER AÐ ÍMYNDA SÉR AÐ SÚ ÞRIÐJA GETI ORÐIÐ BETRI. UNDIRRITAÐUR KIKNAÐI Í HNJÁLIÐUNUM... Á NÝJUSTU BATMAN-MYNDINNI" -T.S.K - 24 STUNDIR "EINFALDLEGA OF SVÖL,THE DARK KNIGHT MUN SÓPA AÐ SÉR ÓSKARSVERÐLAUNUM. ÓTRÚLEGAR BARDAGASENUR OG ÓVÆNTAR FLÉTTUR Í HANDRITINU GERA MYNDINA FRÁBÆRA." -ÁSGEIR J. - DV "ÞETTA ER BESTA BATMAN-MYNDIN, BESTA MYNDASÖGUMYNDIN OG JAFNFRAMT EIN BEST MYND ÁRSINS..." -L.I.B.TOPP5.IS THE DARK KNIGHT ER KOMINN Í EFSTA SÆTI Á VIRTASTA KVIKMYNDAVEF HEIMS,IMDB.COM, YFIR BESTU KVIKMYNDIR ALLRA TÍMA! HANN ER SNILLINGUR Í ÁSTUM NÝJASTA GRÍNMYND MIKE MYERS SEM FÆRÐI OKKUR AUSTIN POWERS MYNDIRNAR MYNDIN SEM ER BÚIN AÐ SLÁ ÖLL AÐSÓKNARMET Í USA! GAGNRÝNENDUR HALDA VART VATNI YFIR ÞESSARI MYND! EF ÞÚ SÉRÐ EINA MYND Á ÁRINU ÞÁ ER ÞETTA MYNDIN! Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is MIKLA athygli hefur vakið nýleg bók eftir teiknarann Shaun Tan þar sem hann segir sögu innflytjenda í mynd- um. Bókin, sem er í stóru broti, kom út fyrr á árinu og hefur þegar hlotið fjölda verðlauna. Shaun Tan er afkomandi innflytj- enda, eins og obbinn af íbúum Ástralíu reyndar; afi hans fluttist frá Kína til Malasíu og faðir hans síðan þaðan til Ástralíu og móðir hans er af ensk-írsku bergi brotin. Hann segist því þekkja af afspurn þá tilfinningu að vera í fram- andi landi, en líka af eigin raun því í raun megi segja það um unglinga að þeim líði flestum eins og þeir séu stadd- ir í framandi landi. Frásögn án orða Upphaflega hugmyndin af bókinni var að flétta saman texta og myndum í stuttri frásögn, en svo fannst Tan það gráupplagt að hafa frásögnina án orða, að segja allt með myndum, og þá líka varð verkefnið alt stærra um sig, enda getur verið snúið að segja sögu með myndum. Þegar upp var staðið urðu síð- urnar 126 í stóru broti og alls sat Tan við og teiknaði í fjögur ár. Sagan hefst þar sem maður raðar í tösku sína og kveður svo fjölskylduna. Líkt og vill um flesta þá sem gerast inn- flytjendur til annars lands þá er hann í leit að betra lífi fyrir fjölskylduna, en af teikningum má ráða að yfir íbúum þeirra borgar þar sem fjölskyldan hefur dvalist grúfir ógn, að því er virðist vegna ófreskju, en gæti eins verið ólga í stjórnmálum eða einfald- lega efnahagsþrengingar. Við erum öll innflytjendur Í nýju landi þarf ekki bara að finna sér vinu og læra nýtt tungumál heldur líka að kynnast framandi siðum og venjum og ekki síst að kynnast nýjum gæludýrum. Smám saman kynnist innflytjandinn öðru fólki, sem er flest innflytjendur sjálft, en búið að vera lengur í viðkomandi landi - sumir að flýja afleiðingar stríðs, aðrir ofsóknir og kúgun. Gríðarlega mikið er lagt í teikning- arnar hjá Tan, enda eru þær mjög ná- kvæmar. Í mörgum tilfellum segist hann hafa fengið vini og ættingja til að leika persónur í bókinni til að hafa líkams- stöðu sem eðlilegasta, en obbinn af því sem ber fyrir augu er aftur á mót svo fjarstæðukenndur að hann er komin úr hugarfylgsnum Tans að öllu leyti. Forvitnilegar bækur: Í leit að betra lífi Innflytjandi Umhverfi getur verið framandi, en síst ef menn fara langt frá heimahögum. Verðlaunuð frásögn án orða Douglas Kennedy á farsælan feril sem metsöluhöfundur en bækur hans hafa verið þýddar á sextán tungumál. Ný- leg bók hans The Woman in the Fifth er fyrirtaks sum- arlesning fyrir þá sem eru í leit að spennandi afþreyingu. Kennari sem átti í ástarsambandi við nemanda sinn með hörmulegum afleið- ingum flytur til Parísar eftir að ótrú eiginkona hans segir skilið við hann og unglingsdóttir hans afneitar honum. Hann gerist næturvörður og hyggst skrifa fyrstu skáldsögu sína í vinnutím- anum en líf hans tekur óvæna stefnu þegar hann hrífst af dularfullri konu sem á sára fortíð að baki. Höfundur laðar fram stemningu sem er drungaleg án þess að vera niðurdrepandi og einmanaleiki aðalpersón- unnar kemst vel til skila. Lesandinn er lengi vel í vafa um það hvernig bók hann sé að lesa: er þetta ástarsaga, spennusaga eða saga um missi, einmanaleika og óhamingju? Kannski draugasaga eða jafnvel frásögn sturlaðs manns? Þessi óvissa lesandans um það á hvaða leið höfundur er magnar spennuna við lesturinn. Lesandinn verður, eins og söguhetjan, æ ringlaðri. Höfundur færist í aukana eftir því sem á verkið líður og bregst ekki í hrollvekjandi enda- lokum. Þetta er vel skrifuð og hörkuspennandi bók. Hvers konar saga? The Woman in the Fifth eftir Douglas Kennedy. Arrow books gefur út. 422 bls. ób. Kolbrún Bergþórsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.