Fréttablaðið - 20.04.2009, Page 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég held að samansafn hljóð-færa úr óvæntum áttum einkenni heimili tónlistarmanna og þar er mitt heimili engin undantekning,“ segir Sylvía Hlynsdóttir trompet-leikari þar sem hún situr í stofu sem nálgast það að vera lítill tón-leikasalur, fullbúinn til tónleika-halds. Á sófaborðinu stendur aldið flugelhorn, sem henni e hjfólg
hörku svo hann dældist ekki,“ segir Sylvía, sem hafði ekki hug-mynd um hvað leyndist innan í ullinni mjúku, en hafði þráð að eignast flugelhorn. „Trompet er mitt aðalhljóðfæri, en flugelhorn geymir öðruvísi hljóm, sem er dekkri og mýkriKærastin f
sem standa virðulega innan um trommusett og fleira hljómfag-urt í stofunni. „Ég safna lúðrum, en læt ekki duga að hafa þá fyrir augað held-ur spila á þá alla. Ég valdi að læraá trompet átta ár ö
Ástarlúður í ullarteppiÞegar snjókorn jólanætur liðinna ára læddust niður úr hátíðlegum skýjum laumaðist kærasti Sylvíu
Hlynsdóttur trompetleikara með fornt flugelhorn í íslenskum ullarfelubúningi undir jólatréð.
Sylvía Hlynsdóttir trompetleikari lætur hugann reika til liðinna jóla þegar hún fékk flugelhornið fagra frá sínum hugvitssama og
þá heittelskaða.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HIRSLUR undir alls konar dót má auðveldlega búa
til sjálfur. Þessar skemmtilegu skúffur í barnaherbergið
eru til dæmis bara gerðar úr tveimur trékössum sem
hafa verið málaðir og settir á hjól.
Hringdu í síma
ef bl
vorverkinMÁNUDAGUR 20. APRÍL 2009 Stórborgir í framtíðarsýnEva Margrét Reynisdóttir sér ýmsa kosti við matjurtaræktun á húsaþökum og í almenningsgörðum. SÍÐA 2
MÁNUDAGUR
20. apríl 2009 — 93. tölublað — 9. árgangur
Miðlar af eigin reynslu
Rósa Guðbjartsdóttir
er nýkjörinn formað-
ur Styrktarfélags
krabbameinssjúkra
barna.
TÍMAMÓT 14
VORVERKIN
Náttúrugrill, garðvinna
og matjurtaræktun
Sérblað um vorverk
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Mikið úrval af
upphengdum salernum
Baldursnesi 6
Akureyri
Sími 414 1050
Smiðjuvegi 76
Kópavogi
Sími 414 1000
Opið virka daga frá 8 -18
laugardaga frá10 -15
Tryggt húsnæði
HVASST SV-TIL Í dag verða sunn-
an eða suðaustan 8-13 m/s en
10-18 m/s suðvestan til. Þurrt að
mestu og bjart NA-lands en bætir
í úrkomu sunnan og vestanlands
eftir hádegi. Hiti víða 3-10 stig.
VEÐUR 4
7
8
7
9
9
SYLVÍA HLYNSDÓTTIR
Fornt og falskt horn
hjartfólgnast eigna
• heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
Skiptir um gír
Rapparinn og list-
neminn Dóri DNA
reynir fyrir sér sem
uppistandari.
FÓLK 34
Everton sló
United út
Það verða
Chelsea og
Everton
sem mætast
í úrslitum ensku bikar-
keppninnar.
ÍÞRÓTTIR 30
Íslandsvinur
Joseph Henry Ritter myndar Jó-
hönnu Guðrúnu, Umu Thurman
og Isabellu Rossellini.
FÓLK 26
VEÐRIÐ Í DAG
FÆRÐIR FYRIR DÓMARA Þrír menn voru handteknir vegna smygls á hundrað kílóum af fíkniefnum til landsins. Efnin voru flutt
með skútu og mennirnir sóttu efnin á slöngubáti út í skútuna við Papey. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
LÖGREGLUMÁL Þota danska flug-
hersins aðstoðaði við aðgerð-
ir Landhelgisgæslu og lögreglu
vegna smyglskútunnar í gær.
Hún hélt uppi eftirliti meðan
Fokker-vél Landhelgisgæslunnar
tók eldsneyti.
Landhelgisgæslan óskaði eftir
því við Varnarmálastofnun um
hádegi í gær að kannað yrði
hvort herskip eða flugvélar frá
nágrannaríkjum væru stödd
nærri landinu og gætu aðstoðað
við aðgerðina, samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins.
Dönsk herþota af gerðinni
Challenger CL604 var stödd
við Grænland, og hélt þegar
til aðstoðar. Danski flugher-
inn notar slíkar vélar einkum til
eftirlits yfir hafi. - bj
Varnarmálastofnun aðstoðaði:
Kölluðu til
danska herþotu
LÖGREGLUMÁL Lögreglumenn úr
sérsveit Ríkislögreglustjóra náðu
í gærkvöldi á sitt vald skútu sem
talið er að hafi komið með um 100
kíló af fíkniefnum til landsins um
helgina. Þetta er stærsta tilraun til
fíkniefnasmygls sem komist hefur
upp um hér á landi.
Þrír menn voru um borð í skút-
unni þegar sérsveitarmenn fóru
um borð, og voru þeir allir hand-
teknir. Varðskip Landhelgisgæsl-
unnar sem var með sérsveitar-
mennina um borð veitti skútunni
eftirför í gær og náði henni á milli
Íslands og Hjaltlandseyja klukkan
22:35 í gærkvöldi.
Til stendur að draga skútuna,
sem er 43 fet á lengd, til hafnar á
Íslandi í dag.
Landhelgisgæslan og sérsveit-
in fylgdust með skútunni á flótta
út úr landhelginni í gær. Um tíma
hvarf skútan úr sjónmáli en fannst
svo aftur.
Alls voru sex menn handteknir
vegna málsins í gær. Auk þeirra
þriggja sem handteknir voru á
skútunni voru þrír menn hand-
teknir á Djúpavogi og Höfn í
Hornafirði í gær. Talið er að þeir
hafi siglt til móts við skútuna og
flutt fíkniefnin í land.
Vel yfir 100 manns tóku þátt í
aðgerðunum gegn meintum fíkni-
efnasmyglurum í gær. Þeirra á
meðal voru sérsveitarmenn Rík-
islögreglustjóra, lögreglumenn af
höfuðborgarsvæðinu og Eskifirði,
þyrluáhafnir og áhöfn flugvélar
Landhelgisgæslunnar og áhöfn
varðskipsins. Þá kom þota danska
flughersins einnig að leit að skút-
unni í um tvær klukkustundir í
gær.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins komu mennirnir þrír sem
handteknir voru á Suð-Austurlandi
í gær á tveimur jeppum með zodi-
ac slöngubát til Djúpavogs á föstu-
dag. Þeir óskuðu eftir leyfi til að
láta bátinn liggja í höfninni yfir
helgina og sögðust ætla að stunda
köfun yfir helgina. Tveir þeirra
voru handteknir á Djúpavogi en
einn nálægt Höfn í Hornafirði.
Aðgerð lögreglu hófst um miðj-
an dag á laugardag en fór mjög
leynt. Íbúar á Djúpavogi urðu
lítið varir við aðgerðina en íbúar
á Hornafirði urðu mikið varir við
þyrluflug og aukinn lögregluafla á
Höfn. Engar upplýsingar fengust
hins vegar um aðgerðirnar fyrr en
um kvöldmatarleytið í gær.
- ghs, bj / sjá síðu 4
Handteknir á flótta
út úr landhelginni
Lögreglan handtók í gær sex menn grunaða um að hafa reynt að smygla um 100
kílóum af fíkniefnum til landsins með skútu. Varðskip Landhelgisgæslunnar
náði skútunni á flótta úr landhelginni í gær og sérsveitarmenn tóku skútuna.
Ljóst er að götuverðmæti fíkni-
efnanna sem lögregla lagði hald
á hleypur á hundruðum milljóna
króna.
Erfitt er hins vegar að leggja mat
á verðmætið þar sem ekki er búið
að gefa upp um hvaða efni er að
ræða, hversu hrein þau eru, eða
hvað magnið er mikið.
Samkvæmt verðkönnun SÁÁ er
meðaltalsverð á grammi af amf-
eta-míni 5.630 og 11.500 af kóka-
íni. Gramm af hassi kostar 2.530
og e-pilla kostar 2.690 krónur.
Fréttablaðið hefur heimildir fyrir
því að um 100 kíló af þessum
fíkniefnum sé að ræða. - kóp
VERÐMÆTI
FÍKNIEFNANNA
GRÍÐARLEGT
LÖGREGLUMÁL Þrír menn sem
grunaðir eru um að hafa siglt til
móts við skútu og flutt fíkniefni
í land voru úrskurðaðir í gæslu-
varðhald til 11. maí í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær.
Tveir mannanna voru hand-
teknir á Djúpavogi og sá þriðji
við Höfn í Hornafirði. Fíkniefn-
in fundust í bíl þess síðastnefnda
samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins. Mennirnir eru 28 ára,
30 ára og 32 ára gamlir. Einn
þeirra var ákærður fyrir aðild
að innflutningi á 3,8 kílóum af
kókaíni árið 2006, en sýknaður
af öllum ákærum í Hæstarétti
árið 2007.
Talið er að mennirnir hafi
sótt um 100 kíló af fíkniefnum
í skútu sem vitorðsmenn þeirra
sigldu við Papey út af Djúpavogi.
Mennirnir notuðust við slöngu-
bát sem þeir sjósettu á Djúpa-
vogi. Þeir sögðu heimamönnum
að þeir ætluðu að stunda köfun í
nágrenninu. - bj
Grunaðir um aðild að smygli:
Úrskurðaðir í
þriggja vikna
gæsluvarðhald