Fréttablaðið - 20.04.2009, Blaðsíða 10
10 20. apríl 2009 MÁNUDAGUR
– Lifið heil Lægra
verð
í Lyfju
www.lyfja.is
Gildir út apríl 2009
15% afsláttur
VOLTAREN 11,6 mg/g Gel, 100 g.
15% afsláttur
NICOTINELL tyggjó, Classic og Fruit.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
L
Y
F
4
5
8
2
8
0
4
/0
9
EFNAHAGSMÁL Peningamál, utan-
ríkismál, Evrópusambandið,
fjármál hins opinbera og hlut-
verk þess í viðskiptalífinu eru
þau mál sem mestu máli skipta
fyrir efnahagslega velferð þjóð-
arinnar og hafa ekki hlotið við-
unandi umfjöllun í aðdraganda
komandi alþingiskosninga. Þetta
kemur fram í nýju áliti Viðskipta-
ráðs Íslands.
„Trúverðug stefna í peninga-
málum ætti að vera forgangsmál
stjórnmálaflokkanna og vont að
fara í kosningar án þess að stefna
í því máli, sem og í öðrum grund-
vallarmálaflokkum, liggi fyrir,“
segir Finnur Oddsson, fram-
kvæmdastjóri Viðskiptaráðs. „Nú
er vika í kosningar og enn ráðrúm
til upplýsandi umræðu.“
Bent er á í álitinu að á þeim tíu
vikum frá því að ný ríkisstjórn
tók við hafi lítið miðað í úrlausn
erfiðra skammtímavandamála og
viðhorf sem stjórnmálamenn úr
öllum flokkum virðist hafa gagn-
vart aðsteðjandi vankamálum sé
áhyggjuefni. „Í stað þess að ein-
beita sér í sameiningu að brýnum
málum er varða hagsmuni heim-
ila og fyrirtækja hefur tími og
orka Alþingis þess í stað farið í
þref og deilur um pólitíska hug-
myndafræði. Auk þess vantar
mikið upp á að stjórnmálamenn
landsins hafi mótað skýra og trú-
verðuga framtíðarsýn í efnahags-
málum þjóðarinnar.“ - óká
Á FUNDI Frá fundi Viðskiptaráðs Íslands
um stöðu krónunnar undir lok síðasta
mánaðar. Fremst situr Steingrímur J.
Sigfússon fjármálaráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Viðskiptaráð Íslands vill umræðu um mikilvægustu málin fyrir kosningar:
Kalla á trúverðuga framtíðarsýn
MENNING Rekstur byggðasafns-
ins að Görðum og listasetursins
í Kirkjuhvoli á Akranesi verður
færður í hendur einkafyrirtæk-
isins Vætta. Samningur liggur
fyrir um málið og verður afstaða
tekin til hans á bæjarstjórnar-
fundi í næstu viku. Safnamenn
hafa gagnrýnt hugmyndirnar.
Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri
á Akranesi, segir að með þessu
sé rekstur safnanna tryggður og
fleiri störf skapist. Hann segir
afar litlar breytingar hafa orðið
á málefnum safnanna á Skag-
anum. Líkleg skýring á því sé
að ekki hafi verið sett nægt fé í
málaflokkinn. Með samningn-
um náist að hleypa lífi í söfnin á
Akranesi.
Gísli segir samninginn vera
til fimm ára og hann sé upp-
segjanlegur með fjögurra mán-
aða fyrirvara. Framlag bæjarins
til byggðasafnsins rennur sam-
kvæmt honum til Vætta, en það
hefur numið um 34 milljónum
króna á ári. Samningurinn gild-
ir í fimm ár og hljóðar því upp á
um 170 milljónir. Gísli segir ekki
hafa verið þörf á að bjóða samn-
inginn út.
Félag íslenskra safna og safna-
manna hefur sent bæjarfélaginu
erindi. Ágústa Kristófersdótt-
ir formaður segir félagið hafa
áhyggjur af því að menningar-
sögulegir gripir séu leigðir út til
einkaaðila. Þeir séu eign samfé-
lagsins og mikilvægt að vita hvað
sé verið að gera þegar umsjón og
ábyrgð menningarverðmæta er
færð frá hinu opinbera til einka-
aðila. Mjög mikilvægt sé að allt
slíkt sé unnið fyrir opnum tjöld-
um og umræða fari fram um
málið og umsagna leitað hjá fag-
aðilum.
Ólöf Kristín Sigurðardóttir er
formaður Íslandsdeildar ICOM
– alþjóðaráðs safna, en það heyr-
ir undir Menningarmálastofnun
Sameinuðu þjóðanna, UNESCO.
Ólöf segir menn óttast að einka-
væðing opni gáttir fyrir minni
fagmennsku, en unnið hafi verið
að því undanfarin ár að auka
hana. Safnaráð vinni eftir safna-
lögum, en söfn sem séu einka-
vædd falli hins vegar ekki undir
þau lög.
Samkvæmt siðareglum ICOM
sé safn stofnun sem rekin er fyrir
almenning og ekki í ágóðaskyni.
Söfn megi skila ágóða, en hann
sé þá færður inn í starf þeirra til
uppbyggingar.
Gísli reiknar með að ákvörð-
un verði tekin um samninginn á
fundi bæjarstjórnar á þriðjudag-
inn.
kolbeinn@frettabladid.is
Safnafólk gagnrýnir
Akraneskaupstað
Byggðasafninu og Listasafninu á Akranesi verður útvistað til einkafyrirtækis.
Safnamenn gagnrýna samninginn og óttast minni fagmennsku og setja spurn-
ingarmerki við að hægt sé að leigja söfn. Bæjarstjóri segir þetta til hagsbóta.
ÓLÖF KRISTÍN
SIGURÐARDÓTTIR
ÁGÚSTA
KRISTÓFERSDÓTTIR
GÍSLI S. EINARSSON
SAFNASVÆÐIÐ Bæjarstjórn Akraness fyrirhugar að semja við einkafyrirtæki um
rekstur Byggðasafnsins á Görðum og Listasetursins að Kirkjuhvoli. Félög safna-
manna hafa gagnrýnt áætlanirnar.