Fréttablaðið - 20.04.2009, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 20.04.2009, Blaðsíða 25
MÁNUDAGUR 20. APRÍL 2009 3vorverkin ● fréttablaðið ● Ræktun matjurta uppi á þökum og í almenningsgörð- um stórborga er nokkuð sem Reykvíkingurinn Eva Margrét Reynisdóttir sér fyrir sér. Meist- araverkefni hennar í skipulags- fræði við háskólann í Álaborg snýst um það. „Mér finnst persónulega að Reyk- víkingar ættu að fara að skipta trambólíninu út fyrir grænmetis- garð! Eins mætti setja upp gróð- urhús ofan á þökum stórmarkaða,“ segir Eva Margrét Reynisdóttir þegar hún er spurð hvort hún telji raunhæft að Reykvíkingar fram- leiði matjurtir í stórum stíl. Hún kveðst þó líta frekar á Ísland sem sjálfbært svæði í heild. Meistaraverkefnið Urban Agri Polis vann Eva með Rikke He- degaard. Það snýst um matvæla- rækt á gömlu hafnarsvæði í Lond- on. „Ræktun í stórborgun dreg- ur úr flutningum og ég tel hana eiga bjarta framtíð. London er orðin svo stór að það bæði kostar mikið og mengar loftið að keyra matvæli inn í miðborgina,“ bendir hún á. Kveðst hafa setið ráðstefnu í London í fyrrasumar um málið og áhuginn þar sé mikill. „Hér er byrjað á smáverkefnum en verið að spá í matvælaræktun í stóru al- menningsgörðunum, þannig að í stað rósa kæmu gulrætur,“ segir hún glaðlega. En fer ekki loftmengun í borg- um illa með grænmetið? „Þetta er spurning sem við heyrum mjög oft,“ svarar Eva Margrét. „Við viljum búa í borgum, sofa, ganga um og helst borða utan dyra í góðu veðri en erum hrædd við að borða eitthvað sem er ræktað þar. Þegar myndir eru skoðaðar af stórri ræktun þá sér maður að fólk er þar grímuklætt við að dreifa eiturefn- um. Við erum hins vegar að tala um lífræna ræktun.“ Hún blæs líka á hugmynd blaðamanns um að ræktunin gæti breyst í órækt og orðið lýti á umhverfinu. „Við erum að tala um ræktun í stór- um stíl þannig að þar yrði fólk í fullri vinnu. Þetta yrði bara eins og með önnur svæði. Þau fara í órækt ef þau eru ekki hirt,“ segir hún ákveðin. -gun Matjurtaræktun í borgum á bjarta framtíð fyrir sér Framtíðarsýn Evu Margrétar um grænar borgir. MYND/ÚR EINKASAFNI Deiliskipulag London Arena. MYND/ÚR EINKASAFNI Garðaflóra heitir ný vef- síða um garðplöntur á Ís- landi sem opnuð var nýlega. Þar er markmiðið að safna saman upplýsingum um þær garðplöntur sem eru í rækt- un á Íslandi og miðla þeim á aðgengilegan hátt til þeirra sem fást við garðrækt. Að baki síðunni stendur Rannveig Guðleifsdóttir sem er lyfjafræðingur að mennt en hefur haft brennandi garðyrkju- áhuga frá unga aldri. Hún hefur verið félagi í Garðyrkjufélagi Íslands síðan hún eignaðist sinn fyrsta garð fyrir tólf árum. Á þeim tíma hefur hún safnað fjölda fjölæringa sem hún hefur að miklu leyti ræktað upp af fræi, ásamt rósum, skrautrunnum og trjám. Þær upplýsingar sem eru komnar á síðuna nú byggjast að stærstu leyti á því myndasafni sem Rannveig á af sínum plönt- um. Upplýsingar um plönturnar eru byggðar á reynslu hennar í norðurbæ Hafnarfjarðar. www.gardaflora.is Ný heimasíða helguð garðplöntum á Íslandi Gardaflora.is geymir fróðleik um plöntur. Gluggaþvottur er eitt þeirra verka sem sinna verður með vorinu. Með hækkandi sól verða óhreinindi vetrarins augljós á rúðunum og til að hleypa vorsólinni í gegn þarf að þrífa. Einfaldast er að blanda sápulegi út í volgt vatn og þvo rúðurnar að utan með svampi eða mjúkri tusku, til dæmis gömlu handklæði, og bleyta vel. Sápuvatnið er svo skafið af rúðunni með gúmmísköfu. Varast þarf að skilja eftir rendur og ský á glerinu og sniðugt er að fara aðra umferð með hreinu vatni á gluggann og skafa svo aftur. Klæðist regnfötum við vinnuna og jafnvel fingravettlingum innanundir gúmíhönskum því þó sólin sé farin að skína er ennþá kalt í veðri. Einnig skal fara varlega í tröpp- um þegar gluggar á eftir hæðum eru þrifnir því stigarnir verða hálir í bleytunni. -rat Glansandi gluggarúður Nú er tilvalið að þvo rúðurnar áður en óhreinindi vetrarins verða augljós. ● KRYDD Í GLUGGA Nú er tíminn til að sá kryddjurtafræjum í litla potta og koma þeim haganlega fyrir í eldhúsglugganum. Ekki einungis hressa jurtirnar upp á eldhúsið og minna á að sumarið er á næsta leiti. Það er nefnilega líka skynsamlegt að koma þeim til á þessum árstíma. Vöxtur jurtanna ætti þá að verða kominn vel af stað í vor þegar tími er kominn til að koma þeim fyrir í matjurtagarð- inum. Þeir sem ekki eiga matjurtagarð en vilja samt fara í meiri ræktun en eldhús- glugginn leyfir geta komið kryddjurtunum fyrir í stærri pottum og geymt úti fyrir. Þannig má líka kippa þeim inn ef kalt verður og koma í veg fyrir að þær skemmist. Alla föstudaga Alla laugardaga veljum íslenskt FIMMTUDAGUR 5. MARS 2009 FRÉTTA 23. apríl

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.