Fréttablaðið - 20.04.2009, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 20.04.2009, Blaðsíða 8
8 20. apríl 2009 MÁNUDAGUR Þú vilt persónulega þjónustu. Þess vegna er Vöxtur fyrir þig. Vöxtur - Vildarþjónusta Kaupþings ÍS L E N S K A S IA .I S K A U 4 55 13 0 4/ 09 Kynntu þér málið á www.kaupthing.is A u g lý si n g a sí m i – Mest lesið Ekið á gangandi vegfaranda Ekið var á gangandi vegfaranda á Eskifirði aðfaranótt sunnudags. Hann hafði gengið í veg fyrir bíl og var flutt- ur á Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaup- stað til aðhlynningar. LÖGREGLUMÁL Hávaði í bifhjólum Lögreglan heimsótti bifhjólamenn sem safnast höfðu saman á Ing- ólfstorgi fyrir helgi. Margar kvartanir vegna hávaða hafa borist að undan- förnu og bað lögregla bifhjólafólkið um að taka meira tillit til þeirra sem búa og starfa við torgið. LÍFRÍKIÐ Fiskiteljari er nú kominn á sinn stað við Varmá og Þorleifs- læk, að því er fram kemur á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Teljarinn er settur upp í kjölfar alvarlegs klórslyss í ánni haustið 2007. Magnús Jóhannsson hjá Veiði- málastofnun segir að eflaust hafi menn misst af nokkru af fiski sem þegar sé genginn til sjávar. „Við fáum skýrari mynd af ástand- inu þegar fiskurinn skilar sér aftur upp í sumar og haust,“ segir Magnús, sem kveður seiðamæling- ar í fyrrahaust hafa vakið ágætar vonir um að afleiðingar klórslyss- ins væru ekki eins alvarlegar og áður hafi verið talið. Útlit sé fyrir að hrygningin 2007 hafi ekki öll misfarist. „Út frá sjónarmiði fiskifræð- inga svo og stangaveiðimanna er þar með hafin gagnasöfnun sem er sérstaklega áhugaverð þar sem áin hefur ekki verið rannsökuð á jafn ítarlegan hátt fyrr. Varmá er einstök meðal hérlendra veiði- áa sökum sérstöðu í lífríki en hún geymir allar tegundir ferskvatns- fiska,“ segir á svfr.is. Vegna aðstæðna er teljarinn, sem er frá Vaka, nokkuð ofarlega í vatnakerfinu, á milli Stíflu og vin- sælustu veiðistaðanna við Stöðvar- breiðu. - gar Rannsóknum eftir klórslysið 2007 haldið áfram og búist við niðurstöðu í haust: Fiskiteljari settur upp í Varmá UPPSETNING FISKITELJARA Ástand fiski- stofna í Varmá og Þorleifslæk verður nú kannað með aðstoð teljarans sem hér sést settur upp. MYND/MAGNÚS JÓHANNSSON Ölvun á Akureyri Talsverð ölvun var í miðbæ Akureyrar aðfaranótt sunnudags. Töluvert var um ölvuð ungmenni, en söngkeppni framhaldsskólanna fór fram í bænum um helgina. Dyraverðir voru slegnir á balli sem haldið var eftir keppnina, en að öðru leyti fór helgin vel fram. VIÐSKIPTI Erlendir fjárfestar hafa sýnt áhuga á að kaupa fimmtán prósenta hlut Orkuveitu Reykja- víkur í Hitaveitu Suðurnesja. Einnig er rætt um sölu á fimm- tán prósenta eignarhlut sem OR og Hafnarfjarðarbær deila um eignarhald á. Héraðsdómur dæmdi Hafnarfirði í vil á dögunum. Stjórn Orkuveitunnar hefur falið forstjóra að meta hvort áfrýj- að verði til Hæstaréttar. Hjörleif- ur Kvaran forstjóri segist vera að fara yfir þau mál með lögmönn- um fyrirtækisins, en þriggja mán- aða frestur er til áfrýjunar. Hann gerir frekar ráð fyrir að af áfrýj- un verði. Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitunnar, segir nokkra aðila hafa lýst yfir áhuga á hlutnum. „Það eru nokk- uð margir búnir að þefa af honum og spyrjast fyrir um hann.“ Bæði innlendir og erlendir aðilar hafa spurst fyrir um hlutinn. Guðlaugur segir að menn hafi beðið eftir uppgjöri Hitaveitu Suðurnesja áður en alvara kæm- ist í viðræðurnar. Það kom fyrir nokkrum vikum og var útlitið nokkuð svart. Guðlaugur segir menn þó horfa framhjá því upp- gjöri, enda hafi sérstakar aðstæð- ur ríkt hér á landi í fyrra. Ekki fæst uppgefið um hvaða erlendu aðila er að ræða, en Guð- laugur segir þá bæði vera frá Bandaríkjunum og Evrópu. Gjald- eyrishöftin setji strik í reikninginn og geri mönnum ekki auðveldara fyrir. Hvað inn- lendu aðilana varðar sé allt óljóst með fjár- mögnun, sem sé mjög þung nú um mund- ir. Því sé alls- endis óvíst hve- nær semjist um söluna. „Ég mundi telja að einhverjir mán- uðir væru þar til niðurstaða fæst. Ef menn sý n a þe ssu áhuga getur það þó geng- ið hratt fyrir sig. En miðað v ið hvernig ástandið er með lánsfjármögnun þá fögnum við ekki fyrr en við erum komnir með peninga í hend- ur, þrátt fyrir að samningur kom- ist á.“ Hitaveitu Suðurnesja var skipt upp samkvæmt lögum í HS Veit- ur og HS Orku. Aðrir stærstu eig- endur fyrirtækisins eru Reykja- nesbær og Geysir Green Energy. Óljóst er um hvaða verð er að ræða, en miðað er við að fyrir- tækið fái svipað verð og greitt var fyrir hlutinn, sem hafi losað átta milljarða. Er þar átt við fimmtán prósenta hlut. kolbeinn@frettabladid.is Erlendir fjár- festar skoða Hitaveituna Bandarískir og evrópskir fjárfestar hafa sýnt hlut Orkuveitu Reykjavíkur í Hitaveitu Suðurnesja áhuga. Innlendir aðilar eru einnig áhugasamir. Dómi héraðsdóms í deilu Hafnarfjarðar og Orku- veitunnar verður líklega áfrýjað til Hæstaréttar. HJÖRLEIFUR KVARAN GUÐLAUGUR SVERRISSON SVARTSENGI Hlutur Orkuveitu Reykjavíkur í Hitaveitu Suðurnesja er nú til sölu. Erlendir fjárfestar hafa sýnt hlutnum áhuga. Aðalmeðferð í dómsmáli Orkuveitunnar og Hafnarfjarðarbæjar um hlut í Hitaveitunni fór fram á mánudag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.