Fréttablaðið - 20.04.2009, Page 2
2 20. apríl 2009 MÁNUDAGUR
LÖGREGLUMÁL Stór skjólveggur,
sem reistur var utan um bruna-
rústirnar á Lækjartorgi, fauk á
fjóra bíla í hvassviðri í gær. Bíl-
unum hafði verið lagt í bílastæði
í Austurstræti. Bílarnir rispuðust
en skemmdust að öðru leyti lítið.
Engan sakaði en veggurinn var
fjarlægður til að koma í veg fyrir
frekara tjón.
Mikið hvassviðri var á höfuð-
borgarsvæðinu í gær og fóru
vindhviður mest í 28 metra á
sekúndu. Björgunarsveitir á
höfuðborgarsvæðinu sinntu
fjölmörgum útköllum vegna
hvassviðrisins, en ekkert stórtjón
varð. - þeb
Tryggt húsnæði
Hækkum vaxtabætur verulega, endurskoðum forsendur
fyrir útreikningum vísitölugrunnsins og afnemum
verðtryggingu í áföngum.
EFNAHAGSMÁL Stjórnendur Norðuráls hafa
undanfarnar vikur átt í viðræðum við Seðla-
bankann um að nota andvirði jöklabréfa og
annarra eigna erlendra aðila hér á landi til að
fjármagna álver Norðuráls í Helguvík.
Tilgangurinn er að losa eigendur krónubréfa
úr klóm gjaldeyrishafta án þess að það valdi
gengishruni krónunnar.
Ágúst Hafberg, framkvæmdastjóri við-
skiptaþróunar og samskipta hjá Norðuráli,
segir að fyrirtækið geti vel hugsað sér að fara
þessa leið til að fjármagna álver í Helguvík, en
málið sé enn ekki langt komið.
Heimildir Fréttablaðsins herma að fyrir-
komulagið yrði þannig að Norðurál myndi taka
við krónum frá eigendum jöklabréfanna, sem
komast ekki úr landi með fé sitt vegna gjald-
eyrishafta, og gefa út skuldabréf í dollurum á
móti. Þegar álverið hefur framleiðslu og fær
tekjur í dollurum yrði hluti teknanna notaður
til að greiða niður skuldabréfin.
Seðlabankinn hefur einnig rætt við fleiri fyr-
irtæki, þar á meðal Landsvirkjun. Þetta stað-
festir Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi
Landsvirkjunar.
Óljóst er nákvæmlega hversu háar upphæð-
ir erlendir aðilar eiga hér á landi í jöklabréfum
og öðrum eignum, en þegar gjaldeyrishöft voru
sett á hér á landi síðastliðið haust var talið að
eignirnar næmu 400 til 500 milljörðum króna.
Heimildir Fréttablaðsins herma að til að
byrja með standi til að reyna að losa um í
kringum 100 milljarða króna. Eigendur jökla-
bréfanna myndu þá kaupa skuldabréf í erlendri
mynt af íslenskum fyrirtækjum og fá þau
greidd eftir nokkur ár. - bj
Seðlabankinn leitar leiða til að fá eigendur jöklabréfa til að fjárfesta í íslenskum fyrirtækjum til nokkurra ára:
Vilja fjármagna álver með jöklabréfum
HELGUVÍK Framkvæmdir við álver Norðuráls eru hafnar,
en til greina kemur að þær verði að hluta til fjármagn-
aðar með jöklabréfum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Skjólveggur utan um brunarústir á Lækjartorgi:
Fauk á fjóra bíla í hvassviðri
Í AUSTURSTRÆTI Veggurinn féll á fjóra
bíla sem hafði verið lagt í Austurstræti.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÉLAGSMÁL Guðjón Sigurðsson,
formaður MND-samtakanna,
segir að víða sé pottur brotinn
þegar kemur að aðgengi fyrir
fatlaða á kosningaskrifstofur.
Hann gerði óformlega könnun
í gær og heimsótti skrifstofur í
Reykjavík. Áður hafði aðgengi
verið kannað í Hafnarfirði og í
Reykjanesbæ.
„Það er allt of víða pottur brot-
inn og við komumst ekki inn í
skrifstofurnar. En fólk lofaði bót
og betrun hvar sem við komum,“
segir Guðjón. Níu skrifstofur
voru þannig útbúnar að hjólastóll
komst ekki inn. Guðjón segir að
þetta sé málefni sem framboðin
verði að passa betur upp á. - kóp
Kosningaskrifstofur kannaðar:
Aðgengi slæmt
fyrir hjólastóla
EKKI SÁTTUR Guðjón segir að allt of
víða sé pottur brotinn þegar kemur að
aðgengi fatlaðra inn á kosningaskrifstof-
ur. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
STJÓRNMÁL Mögulegt er að endur-
skoða þurfi lög um fjármál stjórn-
málaflokkanna verði pólitísk-
ar auglýsingar sem kostaðar eru
af hópum ótengdum stjórnmála-
flokkunum áberandi segir Einar
Mar Þórðarson, stjórnmálafræð-
ingur hjá Félagsvísindastofnun
HÍ.
Hópur sem kallar sig Áhugahóp
um endurreisn Íslands birti heil-
síðuauglýsingu í Morgunblaðinu á
sunnudag þar sem varað var við
skattastefnu vinstristjórnar. Ekki
kemur fram
hverjir standa
að hópnum.
Þ á h e f u r
hópur sem hvet-
ur til aðildar að
Evrópusam-
bandinu auglýst
í dagblöðum og
á netinu. Jón
Steindór Valdi-
marsson, einn
stofnenda hóps-
ins, segir hann grasrótarsamtök
sem gangi þvert á stjórnmála-
flokka og séu fjármögnuð af ein-
staklingum.
Talsvert var rætt um möguleik-
ann á því að stofnaðir yrðu hópar
til hliðar við stjórnmálaflokkana
til að komast í kringum lög um
fjármál stjórnmálaflokka þegar
þau voru sett.
Einar Mar segir þetta vel þekkt
erlendis, til dæmis sé sterk hefð
fyrir því í Bandaríkjunum að slík-
ir hópar birti neikvæðar auglýs-
ingar um pólitíska andstæðinga.
Pólitískar auglýsingar ann-
arra en stjórnmálaflokka eru vel
þekktar hér á landi. Slíkum aug-
lýsingum var til dæmis beint gegn
Ólafi Ragnari Grímssyni í síðustu
forsetakosningum, segir Einar
Mar.
Hann segir ósmekklegt að birta
pólitískar auglýsingar ekki undir
nafni. Nafnleysi í þessum efnum
sé ekki eðlilegt, enda hljóti þeir
sem auglýsi að hafa trú á sínum
málstað og vera tilbúnir að standa
við orð sín.
Verði pólitískar auglýsingar
hópa sem ekki tengjast stjórn-
málaflokkunum, en auglýsa
ýmist með þeim eða á móti, áber-
andi gæti þurft að breyta lögum
um fjármál stjórnmálaflokkanna,
segir Einar. Afar erfitt sé þó að
koma í veg fyrir slíkar auglýs-
ingar, og í raun verði ábyrgðin
að vera hjá kjósendum að leggja
ekki trúnað á nafnlaus skilaboð,
hvort sem er á netinu eða í aug-
lýsingum.
„Auglýsingar virka, sama hvort
þær eru jákvæðar eða neikvæð-
ar,“ segir Þormóður Jónsson,
stjórnarformaður Fíton.
Hann segir mjög kostnaðar-
sama leið að kaupa heilsíðuauglýs-
ingar í dagblöðum. Hver birting
geti kostað á þriðja hundrað þús-
unda króna. Birting auglýsinga
sé í sjálfu sér svipuð aðgerð og að
fara í kröfugöngur, tilgangurinn
sé að vekja athygli á ákveðnum
sjónarmiðum. brjann@frettabladid.is
Pólitískar auglýsingar
óháðra hópa áberandi
Endurskoða gæti þurft lög um fjármál stjórnmálaflokka verði pólitískar auglýs-
ingar kostaðar af óháðum hópum áberandi. Nafnlausar auglýsingar ósmekkleg-
ar segir stjórnmálafræðingur. Neikvæðar auglýsingar virka segir sérfræðingur.
AUGLÝSINGAR Óprúttnir aðilar höfðu í gær sett svört strik yfir munn frambjóðenda
Sjálfstæðisflokksins á auglýsingum á strætisvagnaskýlum. Aðrir fara kostnaðarsamari
leið við að koma skilaboðum sínum á framfæri og kaupa auglýsingar í fjölmiðlum
eða setja upp vefsíður. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ragnar, sérðu bara rautt þessa
dagana?
„Já, ég sé bara rautt af gleði en ekki
reiði.“
Áheyrnarprufur vegna kvikmyndarinnar
Bjarnfreðarson, sem mun fjalla um
uppvaxtarár Georgs Bjarnfreðarsonar,
fara fram á næstunni. Ragnar Bragason
leikstjóri mun prófa fjölda rauðhærðra
barna á aldrinum þriggja til tólf ára til að
leika ungan Georg.
LANDBÚNAÐUR Framlög til bænda í
ár verða samkvæmt fjárlögum og
framlög næsta árs verða 2 pró-
sentum hærri en í ár, óháð verð-
lagsbreytingum. Þetta kemur
fram í breyttum búvörusamningi
sem undirritaður var á laugar-
daginn.
Framlög munu síðan hækka
aftur árið 2011 um 2 prósent, auk
þess sem við bætist helmingur
af því sem vantar til að uppfylla
ákvæði núgildandi samnings.
Bændur taka því á sig ákveðna
skerðingu í tvö til þrjú ár. - kóp
Breytingar undirritaðar:
Búvörusamn-
ingum breytt
SJÁVARÚTVEGUR Sjávarútvegs-
ráðherra hefur samið við Hag-
fræðistofnun HÍ um að rannsaka
þjóðhagsleg áhrif hvalveiða við
Ísland. Litið verði á áhrif hval-
veiða á atvinnustig, fjárfest-
ingar og útflutningstekjur, auk
afleiddra áhrifa á ferðaþjónustu
og önnur hugsanleg áhrif á aðrar
atvinnugreinar.
Verkefnið er með vísan til þess
sem Steingrímur J. Sigfússon
kynnti í febrúar þegar tilkynnt
var að úthlutun fyrrverandi
sjávarútvegsráðherra, Einars K.
Guðfinnssonar, á hvalveiðikvóta
yrði ekki afturkölluð. - kóp
Samið við Hagfræðistofnun:
Áhrif hvalveiða
rannsökuð
HVALVEIÐAR RANNSAKAÐAR Sjávarút-
vegsráðherra hefur samið við Hagfræði-
stofnun um að vega og meta þjóðhags-
leg áhrif hvalveiða. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
EINAR MAR
ÞÓRÐARSON
Barn á hjóli varð fyrir bíl
Ungur drengur varð fyrir bíl í Grafar-
vogi um kvöldmatarleyti í gær. Dreng-
urinn var á hjóli og með hjálm, sem
varð til þess að hann slasaðist ekki
alvarlega. Hann var fluttur á slysadeild
með mar á fæti og skrámur á höfði.
LÖGREGLUMÁL
SPURNING DAGSINS