Fréttablaðið - 20.04.2009, Síða 21
20. APRÍL 2009
Fasteignamarkaðurinn ehf.
hefur til sölu nánast algjörlega
endurnýjaða 100 fermetra
fjögurra herbergja íbúð á efstu
hæð í fjölbýlishúsi við Grænu-
hlíð.
Á stigapalli framan við íbúð er fatahengi. Komið er inn í stórt og bjart parkettlagt
hol með föstum hillum á heilum
vegg. Samliggjandi bjartar og
parkettlagðar stofur með útgangi
á stórar svalir til suðurs þaðan
sem nýtur útsýnis til fjalla og yfir
opið leiksvæði sem er aftan við
húsið. Eldhúsið, sem er allt endur-
nýjað, er opið við stofu. Í eldhúsi
eru nýjar og miklar hvítar sprautu-
lakkaðar innréttingar með efri
skápum úr gleri. Vönduð tæki eru
í eldhúsi og uppþvottavél er inn-
felld í innréttingu. Svefngangur
er parkettlagður. Hjónaherbergið
er stórt, parkettlagt og með nýjum
hillum, fatahengi og skúffum á
heilum vegg. Barnaherbergi er
parkettlagt. Baðherbergið er með
glugga, mósaíklagt í gólf og veggi
og með baðkari með sturtu-
aðstöðu. Þvottaherbergið er rúm-
gott, dúklagt og með góðum
glugga. Miklar innréttingar og
skápar eru í þvottaherbergi.
Í kjallara hússins er sameigin-
legur kyndiklefi sem nýttur hefur
verið sem hjólageymsla. Húsið er
í góðu ástandi að utan, nýlega við-
gert og málað og nýlega var skipt
um járn á þaki og þak yfirfarið í
leiðinni.
Ásett verð er 26,9 milljónir.
Stórar svalir til suðurs
Húsið er nýlega viðgert og málað að utan.
fasteignir
heimili@heimili.is
Sími 530 6500B o g i P é t u r s s o n l ö g g . f a s t e i g n a s a l iF i n n b o g i H i l m a r s s o n l ö g g . f a s t e i g n a s a l i
Sími: 586 8080 • Kjarna • Þverholti 2 • 207 Mosfellsbær • www.fastmos.is
10 ár
í Mosfellsbæ
Mosfellsbæ Einar Páll Kjærnested,lögg. fasteignasali