Fréttablaðið - 20.04.2009, Qupperneq 36
24 20. apríl 2009 MÁNUDAGUR
Bandaríska ungstirnið Zac Efron
hefur greint frá því að hann ætli
ekki að hasla sér völl í tónlistinni,
í það minnsta
ekki í nánustu
framtíð.
Í samtali við
People.com
segir Efron
að hann muni
kannski gefa
út plötu en þá
eingöngu þegar
honum hefur
tekist að læra
að skrifa nóturnar og textana
sjálfur. „Ég ætla ekki að þykjast
vera eitthvert tónlistarséní en
ég vil að tónlistin komi frá mér
sjálfum en ekki einhverjum laga-
höfundum og framleiðendum,“
segir Efron og bætir því við að
hann hafi varla tíma til að sinna
tónlistinni. „Ekki í augnablikinu,
ég hef engan lausan tíma.“
folk@frettabladid.is
> FÉKK SÝKINGU Í TÁNA
Kate Moss hefur verið bannað að
neyta áfengis eftir að hún fékk sýk-
ingu í stóru tána. Samkvæmt heim-
ildum breska dagblaðsins The Sun
er hin 35 ára fyrirsæta á sterk-
um sýklalyfjum vegna slæmrar
sveppasýkingar sem hún fékk eftir
fótsnyrtingu á snyrtistofu í China-
town í New York. Kate fer vana-
lega á snyrtistofur á fínustu hótel-
um borgarinnar og er nú sögð sjá
mikið eftir því að hafa ekki farið
á fínni snyrtistofu.
Bandaríska leikkonan Michelle
Rodriguez hefur tekið af öll tví-
mæli um að hún sé lesbía. Hún
kunni vel við menn sem elski
mömmu sína. Rodriguez hefur
lengi verið á milli tannanna á slúð-
urblöðum fyrir kynhneigð sína
og var meðal annars bendluð við
aðra leikkonu, Kristönnu Loken.
Hún vísar því alfarið á bug og
segist vera að leita sér að góðum
manni. „Ég þoli ekki gaura, þeir
horfa á mig eins og þeir vilji bara
nota mig líkamlega og mér verður
bara óglatt,“ segir Michelle í sam-
tali við tímaritið Latina. „Ég er á
höttunum eftir karlmanni sem ber
virðingu fyrir móður sinni en það
er erfitt að finna menn sem ekki
eru karlrembur.“
En Michelle hefur ekki í hyggju
að giftast þeim rétta. „Ég trúi
ekki á skuldbindingu, það er eins
og að fela einhverjum öðrum að
sjá um þína eigin hamingju. Þetta
snýst bara um að hafa einhvern á
köldum vetrardegi og vita til þess
að ef einhver er að abbast upp á þig
muni maðurinn þinn sjá um þann
sama. Að öðru leyti sé ég ekki til-
ganginn með hjónabandi.“
Er ekki lesbía
ER GAGNKYNHNEIGÐ Michelle Rodrigu-
ez segist vera fyrir menn sem séu góðir
við mömmu sína. Hún trúir hins vegar
ekki á hjónabandið.
Aðstandendur Universal-kvik-
myndaversins varpa öndinni
væntanlega léttar eftir að kvik-
myndaeftirlit Bandaríkjanna
ákvað að lækka aldurstakmark-
ið á gamanmynd Sacha Baron
Cohen um tískufríkið Bruno.
Kvikmyndaeftirlitið hafði séð
frumútgáfuna og taldi nokkuð
ljóst að þessi kvikmynd væri
alls ekki við hæfi barna yngri
en sautján ára. Þetta hefði þýtt
mikið tekjutap fyrir Universal-
menn enda voru þeir með doll-
aramerkin í augunum í ljósi vel-
gengni fyrri myndar Cohen um
sjónvarpsmanninn Borat.
Kvikmyndin verður frum-
sýnd í júlí í Bandaríkjunum
og er hennar beðið með mikilli
óþreyju. Þetta hefur hins vegar
reynst þyrnum stráð ferðalag
fyrir Cohen því hann þurfti
að eyða mörgum klukkutím-
um í klippiherberginu ásamt
leikstjóranum Larry Charles við
að finna lausnir á þessum dýr-
keypta vanda. Cohen hyggst hins
vegar eiga þær senur sem klippt-
ar verða út en samkvæmt Holly-
wood Report munu þær vera
ansi djarfar. Ein þeirra
sýnir meðal annars hvar
Bruno reynir að tæla
annan mann til lags
við sig og í annarri
læðist hann nak-
inn inn í tjald hjá
amerískum veiði-
manni.
Bruno fær leyfi í Ameríku
ZAC EFRON
Bandaríska kvikmyndahetjan
Paul Newman hefur verið vígð
inn í frægðarhöll Connecticut-
ríkis. Newman, sem lést í
september árið 2008, var mörg-
um harmdauði enda einhver
fremsti kvikmyndaleikari sög-
unnar og þá hafði hann lagt sitt
af mörkum til að bæta samfélag-
ið í gegnum vörur sínar; New-
man‘s Own.
Hann er ekki í slæmum
félagsskap í frægðarhöllinni
en meðal þeirra sem þar er að
finna má nefna Katherine Hep-
burn, Mark Twain og hafna-
boltagoðsögnina Jackie Robin-
son.
Newman
heiðraður
Efron bíður
með tónlistina
EKKI JAFN BÖNNUÐ Bruno,
nýjasta kvikmynd Sacha Baron
Cohen, hefur fengið svokallaðan
R-stimpil hjá bandaríska kvikmynda-
eftirlitinu. Þetta þýðir að fólk yngra en
sautján ára má sjá hana með foreldrum
sínum eða forráðarmönnum.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
25. – 26. maí
66.900kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum
greiðslum, hótelgisting í eina nótt ásamt
morgunverði og miði á tónleikana.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum
greiðslum, hótelgisting í tvær nætur
ásamt morgunverði og miði á tónleikana.
Nánar á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
Beyoncé
02-höllinni London
02-höllinni London
Verð á mann í tvíbýli
Verð á mann í tvíbýli
76.900kr.
12. – 14. júní
Britney Spears
TÓNLEIKAR
með Express ferðum
www.xs.is
Helgi Hjörvar
2. sæti í Reykjavík norður
Oddný Guðbjörg Harðardóttir
2. sæti í Suðurkjördæmi
Velferðarbrú
fyrir heimilin
Velferðarbrúin hjálpar heimilunum í landinu yfir tímabil erfiðleikanna. Brúin saman-
stendur af mörgum markvissum aðgerðum sem styðja heimilin í landinu og liðsinna
þeim sérstaklega sem komast í vanda. Þannig nýtum við takmarkaða fjármuni
þjóðarinnar best. Höldum áfram! Traust velferðarbrú er ábyrga lausnin á vandanum.
Samkvæmt breskum fjölmiðlum
situr Amy Winehouse nú sveitt við
skriftir. Ekki er hún þó að skrifa
ævisöguna, þótt slíkt rit yrði
eflaust forvitnilegt, heldur ljóð um
sína bitru reynslu af sviðsljósinu
og sambandinu við Blake Fielder-
Civil. Amy var nánast stanslaust í
fréttum fyrir nokkrum mánuðum
fyrir taumlausa eiturlyfjaneyslu
og áfengissýki. Hún hefur nú að
einhverju leyti snúið við blaðinu
og drekkur í sig sól og sand á eyj-
unni St. Lucia í Karíbahafinu.
Breska blaðið Daily Star hefur
eftir heimildarmanni sínum að það
séu einmitt hinar hvítu strendur
og afslappað andrúmsloft eyjar-
skeggja á St. Lucia sem hafi orðið
Winehouse að innblástri. „Þetta
hefur hreyft við henni og hún hefur
fundið kjarkinn aftur til að skrifa,“
hefur Daily Star eftir heimildar-
manni sínum. „Pete Doherty sagði
við hana að ljóð væru besta leiðin
til að vinna sig út úr vandræðum
og tjá sig, þannig að henni fannst
ljóðabók besta ráðið í stöðunni,“
bætir heimildarmaðurinn við.
Amy Winehouse
skrifar ljóð
YRKIR Í KARÍBAHAFINU Amy Winehouse
nýtur sólarinnar í Karíbahafinu og yrkir
ljóð um lífsreynslu sína.
NORDICPHOTOS/GETTY
Sir Michael Caine hefur viður-
kennt að hann hafi lækkað launa-
kröfur sínar umtalsvert fyrir
kvikmyndina Is Anybody There?.
Ástæðan er sú að handritið fékk
hann til að fella tár. Is Any-
body There? fjallar um strák
sem elst upp á elliheimili en
Caine leikur töframann sem
er hættur störfum. Handritið
hafði svo sterk áhrif á Caine
að hann átti ekki í neinum
erfiðleikum með að leika
í myndinni. „Yfirleitt leik
ég ekki í svona litlum
myndum en handritið
var bara stórkostlegt,“
segir Caine. Þetta er eina hand-
ritið sem hefur bókstaflega fengið
mig til að gráta. Og trúið mér, ég
felli ekki tár svo auðveldlega.“
Myndin er framleidd af David
Heyman, sem á heiðurinn af
Harry Potter-kvikmyndun-
um. Caine hefur lýst því yfir
að hlutverkið sé tileinkað vini
sínum sem nýverið tapaði bar-
áttunni við Alzheimer-
sjúkdóminn.
Lækkaði í launum
FRÁBÆRT HANDRIT
Michael Caine þykir
sýna stórleik í kvik-
myndinni Is Anybody
There?