Fréttablaðið - 20.04.2009, Blaðsíða 40
28 20. apríl 2009 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Skoðaðu
Mín
Vildarborg
ferðablað
Icelandair á
www.icelandair.is
Margrét Lára Viðarsdóttir var í byrjunarliði
Linköping sem gerði 2-2 jafntefli við Stattena
í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær.
Þetta var í fyrsta sinn á tímabilinu sem Mar-
grét Lára var í byrjunarliðinu en hún hefur á
sínum ferli annars ekki þurft að þola mikla
bekkjarsetu.
„Loksins,“ sagði hún í samtali við Frétta-
blaðið í gær. „Það var frábært að fá að spila
og vera í byrjunarliðinu. Úrslit leiksins voru
hins vegar ekki eins góð þar sem við vorum
miklu sterkari aðilinn í leiknum. Þær fengu
tvær skyndisóknir í leiknum, fengu víti í
annarri og skoruðu úr hinni.“
Hún segist ágætlega sátt við eigin frammi-
stöðu í leiknum en fannst að hún hefði átt
að skora. „Ég fékk tvö dauðafæri í leiknum
og hefði átt að skora. Þetta var ekki alveg
eins og ég hefði viljað þar sem ég var nú í
byrjunarliðinu en ég vona að ég fái annað
tækifæri í næsta leik og geri betur þá.“
Hún segir mikla samkeppni ríkja um
stöður í byrjunarliðinu. „Sérstaklega í
framlínunni þar sem liðið er með bæði
danskar og sænskar landsliðskonur
í sókninni. Þjálfarinn veðjaði
frekar á þær í fyrstu leikjum
tímabilsins og því undir mér
komið að nýta tækifærið
þegar það gefst. Ég er ekki
komin hingað til að sitja á
bekknum, heldur spila.“
Hún segir að sænska
deildin hafi komið sér nokkuð
á óvart. „Deildin er mjög jöfn
og allir leikir óútreiknanlegir. Það
er nokkuð sem ég er ekki vön og
er frábært að hver einasti leikur
býður upp á að vera mjög spennandi.
Liðin þurfa að mæta vel undirbúin
til leiks og mega ekki missa einbeit-
inguna – annars fá leikmenn blauta
tusku í andlitið.“
Margrét Lára segir að sér líði
vel í Svíþjóð. „Mér líður mjög
vel. Aðstæður eru til fyrir-
myndar og allir hjá félaginu
hafa tekið mér mjög
vel. Það er vel hugsað
um mann hér. Svo er
sumarið að koma og
vonandi að maður fái að
upplifa almennilegt sumar í fyrsta
sinn á ævinni.“
Þess má svo geta að Edda Garð-
arsdóttir skoraði eitt marka Örebro í
2-1 sigri liðsins á Hammarby í gær.
MARGRÉT LÁRA VIÐARSDÓTTIR: Í FYRSTA SINN Í BYRJUNARLIÐI LINKÖPING Í SVÍÞJÓÐ
Hefði viljað nota tækifærið betur
FÓTBOLTI Helgin var ekki góð fyrir
Newcastle, sem á í harðri fallbar-
áttu í ensku úrvalsdeildinni. Liðið
tapaði í gær fyrir Tottenham en
á laugardaginn unnu nokkrir af
keppinautum liðsins í fallslagn-
um mikilvæga sigra. Stoke, Ports-
mouth og Sunderland náðu sér öll í
þrjú stig sem gætu reynst dýrmæt
þegar upp er staðið.
Fátt virðist geta bjargað West
Brom frá falli. Liðið tapaði í gær
fyrir Manchester City, 4-2, og er
níu stigum frá öruggu sæti þegar
aðeins fimm umferðir eru eftir í
deildinni.
Darren Bent tryggði Totten-
ham sigurinn gegn Newcastle í
gær með marki í fyrri hálfleik.
Þó svo að síðarnefnda liðið læm-
ist nokkrum sinnum nálægt því að
jafna sýndu leikmenn liðsins enga
glæsitilburði í leiknum.
„Það er pressa á okkur. Fólk
hefur sagt undanfarnar sex vikur
að við verðum að vinna heimaleiki
okkar og það er vissulega tilfellið
þegar við tökum á móti Portsmouth
á mánudaginn í næstu viku,“ sagði
Alan Shearer, knattspyrnustjóri
Newcastle, eftir leikinn sem fór
fram á heimavelli Tottenham.
Hann sagði að meiðsli hefðu haft
sitt að segja hjá sínu liði og margir
leikmenn væru ekki í góðri leikæf-
ingu þótt heilir væru.
„Við settum alla þá vigt í sókn-
arleikinn sem við gátum í seinni
hálfleik. Mark Viduka, Oba Mart-
ins og Michael Owen voru allir inn
á. Vandamálið er að koma þessum
leikmönnum í almennilegt stand.
En við eigum líka í fleiri vandræð-
um. Eini vinstri bakvörðurinn sem
er hjá félaginu (Jose Enrique) er til
að mynda meiddur.“
Þetta er þó alls ekki vonlaus bar-
átta hjá Newcastle. Liðið er með
30 stig og ekki nema fjórum stig-
um frá öruggu sæti en bæði Hull
og Blackburn töpuðu sínum leikj-
um um helgina. Bæði eru með 34
stig. Sunderland vann 1-0 sigur á
Hull en er þó í mikilli hættu með
35 stig.
Middlesbrough er með einu stigi
meira en Newcastle og það stig
fékk liðið fyrir markalaust jafn-
tefli gegn Fulham á laugardag.
Portsmouth og Bolton áttust
við í Íslendingaslag þar sem þeir
Hermann Hreiðarsson og Grét-
ar Rafn Steinsson mættust. Báðir
léku allan leikinn, sem Portsmouth
vann, 1-0. Bæði lið eru nú með 37
stig.
Stoke fór hins vegar langleiðina
með að bjarga sér á sínu fyrsta
tímabili í efstu deild síðan 1985.
Liðið vann 1-0 sigur á Blackburn
með marki Liam Lawrence. Liðið
er nú níu stigum frá fallsæti. Einn
sigur til og staða liðsins ætti að
vera gulltryggð.
Að síðustu gerðu Aston Villa og
West Ham 1-1 jafntefli og allt útlit
fyrir harða baráttu um sjöunda
og síðasta sætið sem gefur þátt-
tökurétt um sæti í Evrópukeppni
á næsta ári. West Ham er enn í sjö-
unda sæti en aðeins með eins stigs
forystu á Fulham og Tottenham.
Aston Villa er hins vegar sjö
stigum á eftir Arsenal, sem er í
fjórða sæti deildarinnar og á þar
að auki leik til góða.
eirikur@frettabladid.is
Fallið blasir við Newcastle
Það var hart barist á mörgum vígstöðum í neðri hluta ensku úrvalsdeildarinnar
um helgina. Newcastle tapaði fyrir Tottenham í gær og situr liðið í næstneðsta
sæti deildarinnar. Aðeins eru fimm leikir til stefnu og útlitið orðið ansi svart.
Á LEIÐ Í B-DEILDINA? Michael Owen náði sér ekki á strik í gær frekar en aðrir leik-
menn Newcastle. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
HANDBOLTI Bæði karla- og kvenna-
liði Fram virðist líða vel á Ásvöll-
um í Hafnarfirði, heimavelli
Hauka. Í síðustu viku vann karlalið
Hauka í fyrstu viðureign liðanna
í undanúrslitum úrslitakeppni
N1-deildar karla og á laugardag-
inn lék kvennalið Fram sama leik
eftir. Haukar eru deildarmeistarar
í bæði karla- og kvennaflokki.
Fram vann leikinn um helgina,
32-30, eftir að hafa verið með eins
marks forystu í hálfleik, 17-16.
Haukar byrjuðu betur í leiknum
og komust snemma í góða forystu.
Framarar komu sér hins vegar
inn í leikinn hægt og rólega og
voru svo með yfirhöndina stærst-
an hluta síðari hálfleiks. Haukar
náðu þó að komast yfir í stöðunni
27-26 en þá skoruðu Framarar
fjögur mörk í röð og innsigluðu
sigurinn.
„Við vorum að spila ágætis varn-
arleik en sóknarleikurinn var mjög
góður,“ sagði Einar Jónsson, þjálf-
ari Fram. „Við fengum góð færi í
hverri sókn. Þetta var góð frammi-
staða hjá okkur en við getum þó
gert betur í varnarleiknum.“
Fram komst nálægt því að vinna
Íslandsmeistaratitilinn í fyrra en
fór illa á lokasprettinum. „Við
höfum verið að bíða eftir þessu
tækifæri síðan mótinu lauk í fyrra.
Við ætlum okkur að vinna þenn-
an titil nú og ég hef fulla trú á að
þessum leikmönnum takist það,“
sagði Einar.
Stjarnan komst í 1-0 forystu í
sínu einvígi gegn Val með sigri á
heimavelli, 24-21. Alina Petrache
fór mikinn í liði Stjörnunnar og
skoraði tólf mörk.
Fram og Stjarnan geta tryggt
sér sæti í úrslitum úrslitakeppn-
innar með sigri í sínum leikjum
annað kvöld. Fram mætir Hauk-
um á heimavelli en Valskonur taka
á móti Stjörnunni í Vodafone-höll-
inni. Leikirnir hefjast klukkan
19.30.
- esá
Úrslitakeppnin í N1-deild kvenna hófst um helgina með tveimur leikjum:
Framarar sigursælir á Ásvöllum
MARKAHÆST Stella Sigurðardóttir skor-
aði tíu mörk fyrir Fram gegn Haukum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Enska úrvalsdeildin
Aston Villa - West Ham 1-1
1-0 Emile Heskey (11.), 1-1 Diego Tristan (85.).
Middlesbrough - Fulham 0-0
Portsmouth - Bolton 1-0
1-0 Kanu (79.).
Stoke - Blackburn 1-0
1-0 Liam Lawrence (75.).
Sunderland - Hull 1-0
1-0 Djibril Cisse (45.).
Tottenham - Newcastle 1-0
1-0 Darren Bent (24.)
Manchester City - West Brom 4-2
1-0 Robinho (8.), 2-0 Nedum Onuoha (21.), 2-1
Chris Brunt (37.), 2-2 Chris Brunt (54.), 3-2 Elano,
víti (56.), 4-2 Daniel Sturridge (90.).
STAÐAN
Man. United 31 22 5 4 54-21 71
Liverpool 32 20 10 2 59-21 70
Chelsea 32 20 7 5 55-20 67
Arsenal 32 17 10 5 54-28 61
Aston Villa 33 15 9 9 49-43 54
Everton 32 14 10 8 47-34 52
West Ham 33 12 9 12 38-37 45
Fulham 33 11 11 11 33-28 44
Tottenham 33 12 8 13 39-36 44
Man. City 33 12 5 16 51-44 41
Wigan 32 11 8 13 31-36 41
Stoke City 33 10 9 14 33-48 39
Bolton 33 11 4 18 39-50 37
Portsmouth 32 9 10 13 35-48 37
Sunderland 33 9 8 16 31-43 35
Hull City 33 8 10 15 36-56 34
Blackburn 33 8 10 15 35-55 34
M‘brough 33 7 10 16 25-47 31
Newcastle 33 6 12 15 37-53 30
West Brom 33 6 7 20 30-63 25
Enska B-deildin
Wolves - QPR 1-0
Heiðar Helguson lék allan leikinn með QPR.
Wolves tryggði sér með sigrinum sæti í ensku
úrvalsdeildinni.
Nottingham Forest - Coventry 1-0
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn fyrir
Coventry sem er í fimmtánda sæti deildarinnar.
Reading - Barnsley 0-0
Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson
eru báðir enn frá vegna meiðsla. Reading
er í fimmta sæti deildarinnar og á enn góða
möguleika að komast í umspil um laust sæti í
úrvalsdeildinni.
Enska C-deildin
Crewe - Cheltenham 1-2
Gylfi Sigurðsson skoraði mark Crewe í leiknum.
Crewe er í 20. sæti deildarinnar og einu stigi frá
fallsæti.
ÚRSLIT
> Titillinn bíður enn
Kiel tapaði í gær sínum fyrsta leik í þýsku úrvalsdeildinni
er liðið mætti Lemgo á útivelli og tapaði
með sjö marka mun, 34-27. Með sigri
hefði Kiel tryggt sér þýska meistaratitilinn
en liðið getur þó tryggt sér hann á mið-
vikudaginn er liðið mætir Wetzlar á heima-
velli. Vignir Svavarsson skoraði tvö mörk í
leiknum en fékk að líta rauða spjaldið rétt
eins og Thierry Omeyer, markvörður Kiel,
eftir rimmu þeirra tveggja í leiknum. Alfreð
Gíslason er þjálfari Kiel.
FÓTBOLTI Riðlakeppni Lengjubik-
ars karla lauk nú um helgina og
er því ljóst hvaða lið mætast í
fjórðungsúrslitum keppninnar.
Breiðablik og Valur héldu sínu
striki í A-riðli og unnu sína leiki
um helgina sem dugði þeim til að
koma sér áfram. HK vann sigur
á ÍR í B-riðli og liðið komst því
áfram á kostnað Keflavíkur sem
sat eftir með sárt ennið.
Í C-riðli vann Fylkir 4-3 sigur
á Víkingi í hreinum úrslitaleik
hvort liðið kæmist áfram með
Stjörnunni. - esá
FJÓRÐUNGSÚRSLITIN
Grindavík - Fylkir 22. apríl kl. 20.30
Breiðablik - Þróttur 23. apríl kl. 14.00
Stjarnan - HK 23. apríl kl. 16.00
FH - Valur 24. apríl kl. 19.00
Lengjubikar karla:
Ljóst hvaða lið
mætast næst
VALUR FANNAR GÍSLASON Tryggði Fylki
sigur á Víkingi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI