Fréttablaðið - 20.04.2009, Blaðsíða 42
20. apríl 2009 MÁNUDAGUR
9. HVER
VINNUR!
149 kr/skeytið. Vinningar afhendir í ELKO Lindum.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
FRUMSÝND 22.4.2009
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, TÖLVULEIKIR,
GOS, DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA!
SENDU SMS ESL UBV
Á NÚMERIÐ 1900
ÞÚ GÆTIR
UNNIÐ BÍÓMIÐA!
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur
Íslenskt stjórnborð - Stórt hurðarop
Íslenskar leiðbeiningar - 20 ára ending
Miele þvottavélar hafa verið framleiddar í yfir hundrað ár.
Miele þvottavélar eru framleiddar til að endast.
Þvottavélar - Verð frá kr. 154.995
Þurrkarar - Verð frá kr. 129.995
TILBOÐ
Sparaðu
með Miele
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
FÓTBOLTI Everton gerði sér lítið
fyrir í gær og sló Manchester Unit-
ed úr leik í undanúrslitum ensku
bikarkeppninnar. Leikurinn var
markalaus eftir venjulegan leik-
tíma og framlengingu en Everton
hafði betur í framlengingu.
Á laugardaginn vann Chelsea 2-
1 sigur á Arsenal í hinni undanúr-
slitaviðureigninni þar sem Didier
Drogba skoraði sigurmark þeirra
bláklæddu.
Þar með er ljóst að Manchest-
er United vinnur ekki alla þá titla
sem í boði voru fyrir félagið á leik-
tíðinni. United hafði þegar unnið
deildarbikarkeppnina sem og
heimsmeistarakeppni félagsliða.
Liðið er á toppi ensku úrvalsdeild-
arinnar og komið í undanúrslit
Meistaradeildar Evrópu. Fjöl-
miðlamönnum varð tíðrætt um
hvort að United tækist að vinna
hina svokölluðu fimmu en svo
verður ekki nú.
Tim Howard, fyrrum leikmað-
ur United, varði frá þeim Dimitar
Berbatov og Rio Ferdinand í víta-
spyrnukeppninni, sem gerði Phil
Jagielka kleift að tryggja
Everton farseðilinn í
úrslitin með fjórðu
vítaspyrnu Evert-
on.
Leikur lið-
anna var sem
fyrr segir
markalaus en þeir Alex
Ferguson og David
Moyes, stjórar lið-
anna, voru sammála
um að Mike Riley
dómari hefði átt að
dæma vítaspyrnu
þegar það virtist
brotið á Danny
Welbeck í
vítateig Everton.
„Ég hef séð þetta á
myndbandi og mér finnst
þetta vera hreint og klárt
víti. En vegna mikilvægi
leiksins varð dómarinn
að vera viss í sinni sök.
En af hverju hefði Wel-
beck átt að detta í teign-
um nema að brotið hefði
verið á honum?“ sagði
Ferguson.
„Mér fannst þetta líka vera
víti,“ sagði Moyes. „Hefði ég
verið í sporum Ferguson hefði
ég líka öskrað á hliðarlínunni.“
Ferguson gerði átta breytingar á
byrjunarliði United frá síðasta leik
og lét marga óreynda leikmenn
spreyta sig. Völlurinn á Wemb-
ley-leikvanginum leit ekki vel út
og gagnrýndi Arsene Wenger það
sérstaklega eftir tap sinna manna
í Arsenal gegn Chelsea á laugar-
daginn.
„Þegar ég sá ástand vallarins
ákvað ég að taka ekki þá áhættu
að láta mitt sterkasta lið fara í
framlengingu. Ég varð því að taka
þá erfiðu ákvörðun að leyfa ungu
strákunum að spila,“ bætti Fergu-
son við. „Þetta félag er byggt á
þeirri reglu að gefa ungum leik-
mönnum tækifæri og ég
efast ekki um að það hafi
verið rétt ákvörðun.“
Vikan sem er að líða hefur
verið góð fyrir Guus Hiddink,
stjóra Chelsea. Fyrr í vikunni kom
hann liði sínu í undanúrslit Meist-
aradeildarinnar eftir 7-5 saman-
lagðan sigur á Liverpool og á laug-
ardaginn lagði Chelsea Arsenal í
undanúrslitum bikarsins.
„Þetta gæti orðið fallegur bikar-
úrslitadagur í maí,“ sagði Hiddink.
Sá leikur verður sá síðasti undir
stjórn hans þar sem hann mun
aðeins stýra liðinu til loka leiktíð-
arinnar. „Það er fullkominn endir
á tímabilinu að spila í úrslitum bik-
arsins í lok maí.“
Hiddink bar sérstakt lof á Drog-
ba sem skoraði sem fyrr segir sig-
urmark Chelsea í leiknum. Theo
Walcott hafði komið Arsenal yfir í
leiknum og Florent Malouda jafn-
að fyrir Chelsea.
„Hann er ótrúlegur. Hann skil-
ar gríðarlega miklu til liðsins á
þriggja til fjögurra daga fresti.
Maður kann alltaf að meta mörkin
sem framherjarnir skora en hann
er að vinna svo mikið fyrir liðið
allt. Ég hef ekkert getað kvartað
undan honum síðan ég kom til liðs-
ins.“ eirikur@frettabladid.is
United tekur ekki alla titlana
Það verða Everton og Chelsea sem mætast í úrslitum ensku bikarkeppninnar.
Chelsea sló Arsenal úr leik á laugardaginn og í gær sá Everton til þess að
Manchester United vinni ekki alla titlana sem í boði eru fyrir félagið í ár.
HETJAN
Phil Jagielka
var ískaldur á
vítapunktinum og
kom Everton í úrslit bikarsins
eftir að Tim Howard hafði varið
tvær vítspyrnur Manchester Unit-
ed. NORDIC PHOTOS/AFP
TVEIR Á TOPPNUM Frank Lampard lagði upp bæði mörk
Chelsea gegn Arsenal um helgina og Didier Drogba skoraði
sigurmarkið. NORDIC PHOTOS/AFP
SKÍÐI Björgvin Björgvinsson varð
um helgina fjórfaldur Íslands-
meistari í alpagreinum á Skíða-
móti Íslands sem fór fram á
Akureyri. Hann fagnaði sigri í
svigi, stórsvigi, alpatvíkeppni
og samhliðasvigi.
Björgvin náði bestum tíma
allra keppenda í sviginu en fjöl-
margir erlendir keppendur voru
á mótinu. Í stórsviginu náði Fre-
drik Nordh frá Svíþjóð bestum
tíma allra og Luka Zajc frá Sló-
veníu varð annar. Björgvin varð
þriðji en náði bestum tíma Íslend-
inganna.
Íris Guðmundsdóttir varð tvö-
faldur Íslandsmeistari en hún
fagnaði sigri í stórsvigi og sam-
hliðasvigi. Systir hennar, María,
varð einnig tvöfaldur meistari en
hún bar sigur úr býtum í svigi og
alpatvíkeppninni.
Elsa Guðrún Jónsdóttir vann
fjóra Íslandsmeistaratitla í skíða-
göngu - sprettgöngu, göngu með
frjálsri aðferð, göngu með hefð-
bundinni aðferð og í tvíkeppni.
Andri Steindórsson bar sigur
úr býtum í sprettgöngu karla
og í tvíkeppninni. Sævar Birgis-
son varð hlutskarpastur í 10 km
göngu með hefðbundinni aðferð
og Brynjar Leó Kristinsson í 15
km göngu með frjálsri aðferð.
Sveit Ísafjarðar fagnaði sigri
í boðgöngu kvenna en A-sveit
Akureyrar í boðgöngu karla.
- esá
Skíðamót Íslands fór fram á Akureyri:
Björgvin vann allt
BJÖRGVIN BJÖRGVINSSON Vann allt
sem í boði var á Akureyri.
Umspil í N1-deild karla
ÍR - Stjarnan 27-25
Eftir framlengingu. Staðan í einvíginu er jöfn, 1-1.
Afturelding - Selfoss 26-22
Afturelding vann einvígið, 2-0, og mætir annað
hvort Stjörnunni eða ÍR í einvígi um eitt laust
sæti í N1-deild karla.
Norska úrvalsdeildin
Álasund - Start 1-1
Rosenborg - Odd Grenland 1-1
Árni Gautur Arason lék allan leikinn í marki Odd.
Sandefjord - Bodö/Glimt 1-1
Kjartan Henry Finnbogason var á varamannabekk
Sandefjord.
Stabæk - Molde 2-3
Pálmi Rafn Pálmason lék í fremstu víglínu
Stabæk og lagði upp síðara mark liðsins.
Strömsgodset - Lyn 1-1
Indriði Sigurðsson og Theodór Elmar Bjarnason
léku báðir allan leikinn í liði Lyn.
Vålerenga - Brann 1-1
Ólafur Örn Bjarnason, Kristján Örn Sigurðsson,
Gylfi Einarsson og Birkir Már Sævarsson léku allir
allan leikinn fyrir Brann. Ármann Smári Björnsson
var á varamannabekk liðsins.
Ítalska úrvalsdeildin
Atalanta - Reggina 0-1
Emil Hallfreðsson lék allan leikinn í liði Reggina
sem vann sinn fyrsta sigur í deildinni síðan í
nóvember. Liðið er þó enn á botni deildarinnar
með 23 stig, fjórum stigum frá öruggu sæti.
ÚRSLIT