Morgunblaðið - 08.09.2008, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2008 15
MENNING
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
ÞEGAR farið er um hlið vestan
við kirkjuna á Þingeyrum, inn á
malarveg milli Hópsins og Húna-
vatns sem stangveiðimenn nota
einkum, finna gestir fjölbreytileg
listaverk á sandinum og í móan-
um. Eru verkin unnin á staðnum
og gjarnan notaður forgengilegur
efniviður sem þar er að finna. Í
mosa má sjá myndir hvítra hrafna,
grjótvarða minnir á dagsverk fyrri
tíma og vébönd, í japönskum anda,
eru bundin um steina. Eru þetta
verk sex þýskra listakvenna og
eins íslensks listamanns, sem hef-
ur verið búsettur í Þýskalandi í
tvo áratugi.
Að sögn Jóns Thors Gíslasonar
vann hópurinn á svokölluðu nátt-
úrlistaþingi á Þingeyrum í Húna-
þingi í tvær vikur og eru þessi
verk, og fleiri, afrakstur þeirrar
vinnu. Þingið kölluðu þau Líkt og
vængjablak, rétt eins og þegar
listafólkið safnaðist síðast saman á
Þingeyrum, en það var fyrir tíu
árum, þá eins og nú í boði Ingi-
mundar Sigfússonar, fyrrverandi
sendiherra í Þýskalandi. Í fyrra
skiptið voru þrír aðrir íslenskir
listamenn með í hópnum, en nú
komu þátttakendurnir allir frá
Þýskalandi, frá Köln og nágrenni,
utan ein sem er búsett í Tókýó.
„Okkur langaði að endurtaka
leikinn, tíu árum síðar, og þetta
var afar ánægjulegur og gefandi
tími,“ segir Jón Thor.
„Síðast unnum við á stærra
svæði en nú eru verkin þéttari og
þægilegra fyrir gesti að skoða af-
raksturinn; það tekur um klukku-
stund. Verkin eru vel merkt. Öll-
um er velkomið að skoða.“
Landið opið og glæsilegt
Jón Thor segir algengt á meg-
inlandi Evrópu að hópar lista-
manna vinni saman á þennan hátt
og eigi um leið í skapandi um-
ræðum um listina. Þau leituðu að
verkunum sem þau unnu fyrir ára-
tug við Þingeyrar en fundu ein-
ungis tvö í nokkuð góðu ásigkomu-
lagi. Hin höfðu tíminn og náttúran
fjarlægt.
Þýsku listakonurnar segja afar
mismunandi hvernig hvert og eitt
þeirra nálgaðist verkefnið, þær
létu staðinn hafa áhrif á sig og
smám saman tóku hugmyndir á
sig mynd. Jón Thor var einn um
að koma með fyrirfram skapaða
hugmynd á staðinn, einskonar
„svartan kassa“ eins og er í flug-
vélum, nema þessi skráir tímann í
náttúrunni.
„Tíu ár eru langur tími. Ég var
búin að gleyma hvað landið er op-
ið á Þingeyrum og útsýnið glæsi-
legt,“ segir Ulrike Oeter. Hinar
taka undir það og segja að norræn
sköpunarsaga, sögur af landnámi
landsins og margt fleira, eins og
gróðureyðing og gamlar heyrúllur,
hafi haft áhrif á verkin sem þær
sköpuðu.
„Við sköpuðum fleiri verk sem
voru eins og uppákomur og gjörn-
ingar,“ segja þær. Ljósmyndir
bera vitni um ljóðræna sápukrossa
sem leystust upp í vatni og
plastjakka að klæðast í vindi.
Listamennirnir dásama að vinna
í náttúrunni á þennan hátt og
segja það afar gefandi. „Þetta er
óvenjuleg og óvægin náttúra, und-
ursamleg í raun,“ segir ein þeirra.
„Verkin eins og vefast inn í hana,
á náttúrulegan og eðlilegan hátt,
og eru upp á miskunn náttúruafl-
anna komin.“
Þau segjast þegar hlakka til
næsta náttúruþings á Þingeyrum
– og þess að sjá hver verkanna
hafi þá staðist tímans tönn.
Undursamleg og óvægin náttúran
Þingmenn Þátttakendur á náttúrulistaþinginu á Þingeyrum: Alexa Daerr, Viola Kramer, Margret Schopka, Ulrike
Oeter, Maria Schatzmuller, Maria Uhlig og Jón Thor Gíslason. Þingeyrakirkja sést í bakgrunni.
Landgangur Ulrike Oeter hafði í verkinu
Landgöngu landnám Íslands í huga og gerði
einskonar landgang nærri Hópinu.
Hópur þýskra listamanna og einn íslenskur unnu á tveggja vikna náttúruþingi á Þingeyrum
Afraksturinn er tugur margbreytilegra útilistaverka á svæði vestan við Þingeyrarkirkju
Í HNOTSKURN
» Listamennirnir sem unnuútilistaverk á náttúrulista-
þinginu Líkt og vængjablak á
Þingeyrum eru Viola Kramer,
Margret Scopka, Ulrike Oeter,
Maria Schätzmüller-Lukas,
Alexa Daerr, Maria Uhlig og
Jón Thor Gíslason.
» Verkin gefur að líta ásvæði vestan við Þingeyra-
kirkju í Húnaþingi.
» Listamennirnir unnueinnig á náttúrulistaþingi
á Þingeyrum fyrir tíu árum.
» Forgengileiki og efnifundin á staðnum ein-
kenna verkin, en listamenirnir
vinna alla jafna í ýmsa miðla.
Varða Maria Schätzmüller lagði á sig drjúga
vinnu við verkið Dagsverk og hafði erfiðis-
menn fyrri tíma í huga.
Skráning Jón Thor Gíslason steypti ramma
og notar gler í verk sem er einskonar „svart-
ur kassi“ til skráningar á náttúruöflunum.
Hrafnar Í verki Margret Schopka, Krumma-
vísur II, er eins og hvítir mosaskuggar hrafna
svífi í móanum.
BJÖRG Þórhallsdóttir opnaði
um helgina myndlistarsýn-
inguna „Komin heim“ í listhúsi
Ófeigs á Skólavörðustíg 5. Í til-
kynningu segir að Björg sé
söluhæsta grafíklistakona
Noregs og sé nú að opna sína
fyrstu sýningu á Íslandi.
Á sýningunni vefji hún ís-
lenskan uppruna sinn örmum.
Björg hefur haldið meira en 40
einkasýningar um allan heim
en auk grafíklistar hefur hún myndskreytt fjöl-
margar bækur og hún vinnur einnig að því að
opna og reka listaskóla í Gambíu árið 2010.
Sýningin stendur 1. október.
Myndlist
Björg sýnir í fyrsta
sinn á Íslandi
Listhús Ófeigs við
Skólavörðustíg.
FÉS og fígúrur – kynjamyndir í
íslenskri náttúru, er yfirskrift
sýningar á ljósmyndum Ellerts
Grétarssonar sem nú stendur yf-
ir í Fótógrafí við Skólavörðustíg.
Á sýningunni eru yfir 20 myndir
sem sýna hinar fjölbreyttustu
kynjamyndir sem orðið hafa á
vegi ljósmyndarans í gönguferð-
um hans í íslenskri náttúru, „alls
kyns kynjaverur, tröll, skessur
og þursar, kynngimagnaðar for-
ynjur og margvísleg furðufés“, eins og segir í til-
kynningu. Ellert starfar sem ljósmyndari og blaða-
maður hjá Víkurfréttum á Suðurnesjum og á að
baki fjölda einka- og samsýninga.
Ljósmyndun
Tröll, skessur og
þursar náttúrunnar
Ljósmynd eftir
Ellert Grétarsson.
GUÐJÓN Erlendsson arkitekt
heldur fyrirlestur um borg-
arhönnun í Listaháskóla Ís-
lands á morgun. Guðjón er með
bakgrunn í borgarfræðum og
starfar í London. Guðjón stofn-
aði Nekton Design ásamt Jeff-
rey Turko árið 1999, rannsókn-
arstúdíó í hönnun sem síðan
hefur þróast út í verkefnavinnu
í arkitektúr og borgarhönnun.
Hann hefur kennt borgar- og
kerfisfræði við Háskólann í Lundi en er staddur
hér á landi til að halda námskeið í borgarhönnun
innan LHÍ. Fyrirlesturinn verður í stofu 113,
Skipholti 1, og hefst kl. 12.
Hönnun
Fyrirlestur um
borgarhönnun
Húsnæði LHÍ,
Skipholti 1.
BLÚSGÍTARLEIKARINN Pete
Allen lést í síðustu viku. Allen var í
hópi bestu og eftirsóttu gítarleik-
ara blúsborgarinnar Chicago.
Pete Allen var þekktur fyrir sam-
starf sitt við Magic Slim & the Tear-
drops, sem voru gestir á Blúshátíð í
Reykjavík í vor, og með söngkon-
unni Zoru Young, sem hefur tvisvar
sungið á Blúshátíð í Reykjavík.
Hann spilaði líka með Artie „Blues
Boy“ White, Buddy Guy, Lurrie
Bell og Piano C. Red og fleirum.
Halldór Bragason blúsgítarleik-
ari spilaði með Pete Allen á Blúshá-
tíðinni í Chicago 2006, en Dóri
Braga var þar í boði Zoru Young.
Pete Allen
látinn