Morgunblaðið - 08.09.2008, Page 16
|mánudagur|8. 9. 2008| mbl.is
Í húsakynnum Klifurhússins í Skútu-vogi æfa efnilegir klifrarar sig á ólík-um klifurleiðum í mismiklum halla.Reynist leiðin of erfið þegar hátt erkomið er í lagi að láta sig falla á gólf-
ið því þar tekur þykk og mjúk dýna á móti
manni. Strákarnir sem blaðamaður hitti létu
þó smá mótvind ekkert á sig fá, þeir settu
einfaldlega meira kalk á hendurnar og
reyndu aftur, enda allir mjög áhugasamir.
Sá fljótt árangur
„Ég var alltaf að klifra í trjám en hafði
aldrei prófað að klifra inni,“ segir Níls
Nowenstein. Það breyttist þó fyrir ári þegar
vinur hans, Matthías Tryggvi Haraldsson,
kynnti Níls fyrir Klifurhúsinu og hafa þeir
félagar verið duglegir að mæta síðan. Að-
spurður hvað hann fái út úr klifrinu stendur
ekki á svörum: „Adrenalín. Svo er þetta líka
mjög góð æfing.“
Níls segist hafa fljótt séð árangur en
hann hefur lært nokkrar gerðir af klifri, t.d.
þar sem notuð eru mjög lítil grip sem reyna
mikið á fingurgómana auk annarrar gerðar
sem leggur áherslu á að klifrarinn noti ekki
sérstök grip heldur þyngdina til að skipta
milli hægri og vinstri. Níls og Matthías eru
sammála um að eitt það erfiðasta við klifrið,
fyrir utan að komast á toppinn, sé þegar
þeir finni fyrir bruna í höndunum og fái
blöðrur og sigg. Það hafi þó aðallega gerst
þegar þeir fyrst byrjuðu að klifra.
Hróðmar Helgason byrjaði í klifrinu fyrir
fjórum árum eftir að frændi hans hafði próf-
að og mælt með því. „Þetta er svo öðruvísi
en allt hitt og styrkir allan líkamann,“ segir
Hróðmar en sjálfur segist hann finna mik-
inn mun á sér. Í upphafi hafi hann verið
mjög grannur og kraftlítill og það tekið
hann dálítinn tíma að komast vel af stað í
klifrinu en á fjórum árum hafi hann styrkst
mikið.
Hróðmar nefnir að sérstaklega sé gaman
að klifra úti við en það gerði hann oft meðan
hann bjó vestanhafs. Þar fékk hann einnig
sín fyrstu klifurmeiðsl en hann sleit liðamót
löngutangar hægri handar á klifurmóti.
Dagur Benedikt Reynisson var að mæta í
fyrsta skipti á æfingu sem skráður korthafi
í Klifurhúsinu en að eigin sögn hefur hann
mætt þarna fjölmörgum sinnum áður – en
alltaf bara til að taka þátt í æfingu með
skátunum. Hann hafi hinsvegar alltaf langað
að læra þetta og keypti sér því kort til að ná
betri færni. Hann segir skemmtilegast að
fara æ erfiðari leiðir og finna hvernig hann
verður betri og betri.
„Í upphafi náði ég bara fyrstu þremur
kubbunum áður en ég datt en nú á þessu ári
er ég byrjaður að ná eiginlega öllum leið-
unum mjög hátt.“
Gott grip Klifrarar festa á sig poka af kalki sem þeir nota til að ná góðu taki á gripunum.
Morgunblaðið/Kristinn
Stökk Dagur kemst ekki hærra upp og bregður því á það ráð að stökkva niður á mjúkar dýn-
urnar. Hann segist nýlega byrjaður að komast mjög hátt upp á klifurleiðunum.
Reynt að klifra
í hæstu hæðir
Á haustin fer í gang margskonar íþróttastarf fyrir börn og unglinga.
Klifur er ein íþróttanna í boði og leit Ylfa Kristín K. Árnadóttir inn
í Klifurhúsinu til að kynnast sportinu og iðkendunum.
Fimur Níls klifrar erfiða leið í miklum halla en sportið reynir á allan líkamann.
Í Klifurhúsinu er stærsti klifursalur landsins.
Þar geta klifrarar spreytt sig á svokallaðri
grjótglímu sem er eitt afbrigði klettaklifurs.
Húsið er rekið af Klifurfélagi Reykjavíkur. Um
250 manns eiga kort þar, en að auki mæta um
450 manns í hverjum mánuði til að prófa að
klifra. Aldur klifrara er frá tveggja til 70 ára.
Límböndin við gripin og fótstigin tákna mis-
munandi leiðir. Neðst eru skráðar erfið-
leikagráðurnar svo klifrararnir viti nokkurn
veginn hversu erfiða leið þeir eru að velja sér.
Kristján Þór Björnsson þjálfar 13-16 ára ung-
linga en sjálfur byrjaði hann að klifra í Klif-
urhúsinu. „Stundum eru krakkarnir á æfingu
látnir velja sínar eigin leiðir en stundum þurfa
þeir að fara eftir fyrirfram ákveðnum leiðum.“
Hann segir klifrið njóta vaxandi vinsælda en
spurður hvað það sé sem fólk fái út úr klifrinu
segist hann ekki vita nákvæmlega, nema ein-
faldlega að það sé svo gaman að klifra. Margir
hafi byrjað sem börn á að klifra í trjám en fært
sig yfir í Klifurhúsið eftir því sem þeir urðu
eldri. Á sumrin er boðið upp á leikjanámskeið
fyrir 8-12 ára krakka en fyrir fullorðna eru
námskeiðin útivið þar sem klifrað er í línu,
fólki kennt að tryggja o.fl.
Nýtur ört vax-
andi vinsælda
Morgunblaðið/Kristinn
Þessa leið Leiðirnar eru merktar með mis-
munandi lituðum límböndum.
www.klifurhusid.is
daglegtlíf