Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1910, Blaðsíða 11
7
En, samt sem áður er Sambandskaupfjelagið eigi enn
þá nema lítill vísir þess sem vera á og maður getur
vænst eptir. Fjelagið er sannarlega á barnsaldrinum enn.
En undir því eru þrif kaupfjelaganna komin, hjer á landi,
það er mín trú, að þessi vísir nái að dafna, og hafi frið
og aðhlynning til að ná eðlilegum þroska, en verði ekki
látinn frjósa í hel í sundrungarinnar og athugaleysisins
kulda.
Eg vænti þess samt, að eigi líði mörg ár, hjeðan af,
þar til sambandsfjelagið getur af alvöru farið að vinna
að hinu stóra hlutverki sínu: sameiginlegum vörukaup-
um fyrir fjelögin.
Það munu nú vera nálægt því 40 ár, sem þetta mál:
stórkaupaverzlun, hefir staðið á dagskrá hjá þjóðinni.
Menn hafa vænst þess, að kaupmannastjettin myndi
hrinda því máli áfram til sigurs, enda hafa verið gerðar
einhverjar tilraunir í þá átt. En hefir þá þetta takmark
nokkuð nálgast fyrir tilverknað kaupmanna? Eg held það
megi frekar segja að það hafi fjarlægst hin síðari árin,
og ef þetta hlutverk blasir við nokkurum af kaupmanna-
stjettinni, þá er það fyrir þeim mönnum eða miljónafje-
lögum, sem ekki er ástæða til að óska eptir eða treysta á.
Hvernig er þá, með sanngirni, hægt að ætlast til þess
að kaupfjelögin hjer á landi hafi, enn sem komið er,
ráðist í stórkaupasamvinnu?
Pað er eðli samvinnufjelagsskaparins að þróast hægt,
1 þvl liggur hans þróttur, en ekki í snöggum byltingum
eða breytingum, sem þjóðirnar eru nú yfirleitt farnar að
sjá að eru sjaldnast hagfelldar, en hafa optast meira eða
minna apturkast í för með sjer.
Sem dæmi þess, hversu hægfara sum mestu áhugamál
samvinnufjeiaganna eru, má nefna, að dönsku fjelögin
hafa nú í 16 ár haft á dagskrá sinni stofnun banka
(Andelsbank) sem á að annast um peningaviðskipti fje-
laganna. Petta er ekki enn komið í kring. f*ó vita allir
einlægir fjelagsmenn að þetta er eitt hið mesta nauðsynja-