Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1910, Blaðsíða 72
68
8. Tímaritið.
Það má telja sennilegt að um tímaritið verði gerð við-
líka ákvæði og á aðalfundinum í fyrra, og útgáfu þess því
haldið áfram; þess heldur sem hin endurskoðuðu lög
sambandsins telja útgáfu tímarits eitt af tilgangsatriðunum.
Pó tímaritið hafi, hingað til, alls eigi unnið ætlunar-
verk sitt eins og æskilegast hefði verið, munu menn
samt almennt viðurkenna, að það hafi talsvert nálgast
ætlunarverkið, og vilji því ekki láta það detta úr sögunni.
Það lá í augum uppi, þegar i útgáfuna var ráðizt, að
mörg skilyrði vantaði fyrir góðum árangri og þess yrði
langt nokkuð að bíða, að þar raknaði sæmilega fram úr.
F*að var eigi kostur á vel hæfum ritstjóra; það var hætt
við því, að fá’r yrðu til þess, að senda ritinu ritgerðir,
og frjettir, skyrslur og anhað efni; að útsalan gengi tregt,
fyrirtækið gæti alls eigi borið sig reikningslega. Reynslan
hefir líka, að miklu leyti, orðið sú sem við var búizt, enn
sem komið er. En, hún virðist einnig ætla að staðfesta hitt,
sem jafnframt vakti fyrir hvatamönnunum: að samvinnu-
fjelagahreifingin væri orðin fjölda manna, hjer á landi,
svo mikið áhugamál, að fulla nauðsyn bæri til þess, að
halda uppi sjerstöku riti, er hefði þess konar mál fyrir
aðalumtalsefni. Nú eru það nær því öll samvinnufjelög
landsins —þó eigi sjeu þau öll í sambandsfjelaginu — sem
vilja fá meira og minna af ritinu. Hefir Sláturfjelag Suð-
urlands, t. d., í áformi að kaupa talsvert mörg eintök til
útbýtingar meðal fjelagsdeilda. Ressa aðferð hafa mörg
fjelög tekið upp. Föstum áskrifendum, utan fjelaganna
hefir nokkuð fjölgað.
í fyrirtæki þetta þurfti að ráðast, það hefir sýnt sig-
Einhver varð að fást til þess að brjóta ísinn, í þeirri trú:
að þegar |fram liðu stundir, eða eptir nokkur ár, færi
leiðin að sækjast betur, ef þolgæði, áhugi og traustið á
góðum málstað Ijeti hvergi undan síga, þó efnaskortur
reyndist talsverður fyrsta skeiðið. Nú er þeim mönnuin