Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1914, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.05.1914, Blaðsíða 6
V SKINFAXI 62 einum kaupanaut sínum. Sá maður fékk Jóh. fulla heimild til að taka að láni 1000 kr. á eign sina og skyldi það ganga upp i skuld til þriðja manns. Jóh. fekk ekki lánið, og þinglýsir þá, að veðið sé sin eign og er nú talið að svo sé. Sigra sína í kaupum og lántökum á Jóh. að þakka ósvífni sinni. Hann talar og Iýgur með afli góðrar sannfæringar; hann þykist eiga námur í Austursíðu, sem brátt munu seljast og gera sig auðugan. Hann lifir í sífeldu sukki og vínæði. Hann hefir á vetrum dansleiki og þjórsamkvæmi fyrir nábúa og gesti. Stundum lætur hann heimafólk sitt leika sjónleiki(I) fyrir héraðsbúa. Stöðug venja er að gefa kaffi og vín öllum kirkjugestum sem vilja. Sér* stök ánægja er honum að ginna unglinga, sem í bindindi eru, til að drekka. Þar kemur fram alment lyndisatriði, sem finna má hjá allra þjóða illmennum, að þykja mest gaman að svívirða þá sem hrein- ir eru, og draga þá niður í saurinn. Ná- búar hans virðast helst til margir álíta þessa greiðsemi hans einskonar manngöfgi. En þeim mun gjaldast grimmilega laun þeirrar barnalegu trúgirni, þegar bank- arnir gera þá eignalausa fyrir ölvímulof- orð þeirra við Jóh. á Grund. Enginn vafx er ó, að Jóhann er stór- bi’otamaður ó siðferðislega vísu. Hann hefir verið um nokkurt skeið einn af skað- ræðismönnum þjóðar sinnar, sem hvergi hefir gi'ætt mein, eða bætt, heldur blettað og óvirt með návist sinni. Filistearnir er ræningjar nútímans. Riki þeirri er undir, ofan og utan við lög og landsrétt. Móti þeim er aðeins til eitt læknisráð: Boycolt, útskúfun úr öllum félagsskag og viðskiftum. Meðan á því stendur sér enginn þá eða heyrir. Menn láta eins og þeir séu ekki til. Þeir hafa engum um að kenna nema sjálfum sér. Þeir hafa runnið út í auðnina, orðið að siðferðisleguni villimönnum. Og hvers- -vegna skyldi heimurinn ekki viðurkenna þessa sérstöðu þeirra, og breyta við þá eins og þeir biðja, uns þeir koma í mann- heim aftur? En þeim sem þykir þessi varkárni of mikil, mun gjaldast eflir viti og vei'knaði, því að þeir verða sauðirnir i hjörð filisteanna. Hrólfsbær. Rúðuborg stendur við Sygnu, að mestu norðan árinnar, mitt á milli Parísar og sjávar. Alt um kring eru lágir ásar með smádölum á milli, líkt og á heiðinni vest- an við Mývatn. T dalverpunum er alt akur- lendi, en skógarbelti hér og þar í Iilíðun- um, og hylja þau stundum meira en til hálfs sveitabæina og þorpin. Sygna liðast í vestui-- átt, í ótal bugðum, milli þessara hæða. Þær eru einna hæstar norðan við Rúðu, og gengur þar lokað dalverpi inn á milli hlíð- anna, og þar stendur borgin, hlý og sól- brend, með skjólvegg móti norðri og ána lygna, tæra og djúpa í suðri, með sí-opna leið út á haf. Hvar sem er afdrep festir skógurinn rætur, í stöllunum í hlíðinni, meðfram vegunum, á árbökkununx og hólmanum í nxiðri ánni. Nú er vormorg- un og nxikið um dýrðir í Rúðu, því að Frakkar minnast þá með rniklu hátíðahaldi 1000 ára norrænnar bygðar þar í landinu. Alstaðar er kvikt af fólki, heimamönnum og gestum, frændum norðan úr löndum. Mesta eftirtekt vekja þó fáeinir ungir Norð- menn. Þeir eru kornnir alla þessa löngu leið heiman úr Noregi á opnum bát, litlu víkingaskipi sern flýtur við árbakkann. Átta- vitalausir hafa þeir róið og siglt suður tit Frakklands, til að sýna, að enn sé kyn- þáttur Hrólfs með fullu fjöri. í marga daga gengur ekki á öðru en margbreytt- um skemtunum, veislum og ræðuhöldum, og smá innbyrðis deilum milli frændanna urn, hvaðan Hrólfur hafi verið upprunn- inn. Nöfn liðsmannanna eru gleymd, og

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.