Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1914, Blaðsíða 11

Skinfaxi - 01.05.1914, Blaðsíða 11
SKINFAXI 67 Eftir að álit nefndarinnar hafði verið samþykt í einn hlj. kom fram svohlj. til- laga, sem var samþ. í einu hlj. „Fjórðungsþingið álítur heppilega leið til eflingar íþróttum, að sérstakir íþrótta- flokkar séu myndaðir innan ungmenna- félaga fjórðungsins, og skorar á þing- fulltrúana og félagsstjórnirnar að beita sér fyrir því.“ 5. Heimilisiðnaður. I málinu samþ. í einu hlj. svohlj. till.: „Fjórðungsþingið samþykkir, að fjórð- ungurinn láti prenta verðlauna-eyðublöð til verðlauna við iðnsýningar í félögum fjórðungsins.“ 6. Trjárœkt á heimilum. Þessi tillaga samþ. í einu hlj.: „Fjórðungsþing U. M. F. Yestfjarða, heitir að verðlauna fegurstu blómgarða og trjágarða á sambandssvæðinu að tveim árum liðnum.“ 7. Tóbaksnautn. Svohlj. till. samþykt með öllum greiddum atkv. „Fjórðungsþing U. M. F. Vestfjarða skorar á fulltrúana að styðja að út- breiðslu tóbaksbindindis i félögunum, og utan þeirra, sérstaklega meðal æsku- lýðsins. Og skorar jafnframt á félög sambandsins, að banna algerlega reyk- ingar á fundum sínum.“ 8. Stjórnarkosning. Stjórnin var end- urkosin með lófaklappi: Forseti Björn Guðmundsson kennari, Núpi, Ritari Jón Eyjólfsson Valþjófsdal, og Gjáldkeri Torfi Hermannsson frá Fremstuhúsum í Dýrafirði. J varastjórn: Forseti: Kristján Jónsson, ritstj. ritari: Jón A. Guðmundsson, búfr. Þorfinnsstöðum, gjaldkeri: Kristján Davíðsson, Bakka, Dýrafirði. 9. Fulltrúakosning á sambandsþing V. M. F. /.: 1. Björn Guðmundsson með 6 atkv. 2. Geir Jón Jónsson, kennari með 6 atkv- Varafulltrúar: Krislján Jónsson og Þorv. Stephensen. Alls voru 20 mál rædd á þinginu. Þessi þingútdráttur sendist hér með tit birtingar í „Skinfaxa“ samkvæmt sam- þykt þingsins. Þorv. Stepliensen, Jón Eyiólfsson, frá Holti i Önf. frá Valþjófsstað i Önf. Skógræktarnámskeiði verður komið á fót í byrjun júnímánaðar í Þrastaskógi íÁrnessýsIu. Guðm. Davíðs- son veitir því forstöðu. Fimm menn geta fengið þar fimm daga tilsögn hver, um sitthvað er að trjárækt lýtur. Styrk fá þeir krónu á dag hver um sig. Þó getur einn maður fengið slíka tilsögn um hálfs- mánaðartíma með krónu styrk á dag, gegn því, að hann takist á hendur eftirlit með Þrastaskógi og girðingunni um skóg- lendið, en þeim starfa fylgja 25 króna árs- laun úr sambandssjóði U. M. ;F. I. — Umsóknir sendist Guðmundi Davíðssynir Frakkastíg 12 í Reykjavík, fyrir 1. júní n. k. Skíðaskógur allstór og álitlegur þótti í kringum þing- húsið á Breiðumýri í Reykjadal síðustu daga bændanámsskeiðs, er þar var haldið- um mánaðarmótin mars og apríl; þar var samankomið um 300 manns, flest á skið- um, og gerðu aðkomumenn sér að skyldu,. að stinga skíðunum niður á hælana, er gengið var af þeim og voru talin þannig standandi í einu 250 pör. Mönnum kom saman um að fyrir 5—10 árum hefði vart hálfur þessi mannsöfnuður getað sótt fund þennan fyrir skíðaleysi og ungmenna- félögunum væri það að þakka, hve íþrótta- hugur, einkum skíðahugur, væri vaknaður í sveitinni.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.