Skinfaxi - 01.05.1914, Blaðsíða 10
66
SKINFAXI.
Sambandsþing
U. M. F. I.
Það verður í Reykjavík og hefst föstu-
-daginn 12. júní n. k. kl. 12 á hádegi.
Meðal þeirra mála, er þar verða rædd
og teknar ákvarðanir um, eru þessi: Breyt-
ingar á fyrirkomulagi sambandsins og á
sambandslögum. Fjárlög næstu þriggja
ára. Iþróttamál. Skógræktarmál. Þrasta-
skógur, land það er Tryggvi bankastjóri
Gunnarsson gaf. Sambandsmerki. Þegn-
skylduvinna. Þingvellir þjóðgarður.
Fleiri munu málin verða, og munu þau
þá auglýst síðar. En reynt verður að
hafa þau sem best undirbúin. Skemur en
Jþrjá daga stendur þingið ekki, en rétt þyk-
ir að ákveða ekki lokadaginn að svo stöddu.
Guðbrandur Magnússon.
við þó fylt þá með bjarkarilm og reynis-
Ængan bæði dag og nótt alt vorið og sum-
arið. Það er hverjum hugsandi manni í
sjálfsvald sett. Gróðrarstöð við fundar-
húsið, trjálundur við bœinn er eitt af
boðorðum ungmennafélagsskaparins. A
þann hátt sýnum við trú okkar í verk-
inu. Látum ekki kreddur, bygðar á mis-
skilningi, aftra okkur frá góðu verki. Skóg-
■ur þrífst nú í nærfelt öllum sýslum lands-
ins, og hrekur með tilveru sinni allar kenn-
ingar um, aö hér sé of kalt fyrir skóg. Með
jafn miklum rétti mætti halda fram, að
aldrei gæti verið mannabygð á Islandi, af
því að háfjöllin okkar verða aldrei hæf til
mannabygðar.
Skattar
Tóbaksbindindisfél. í Gagnfræðaskólanum
Á Akureyri og í kennaraskólanum hafa
þegar sent gjaldkera T.HB. I. skatt fyrir
þetta ár.
Helstu gerðir fjórðungsþings
U. F. M, Vestijirða 1914.
Á fjórðungsþingi U. M. F. Vestfjarða,
er háð var á Isafirði, þann 1. og 2. apríl
1914, mættu 8 fulltrúar, frá 4 ungmenna-
félögum.
Helstu gerðir þingsins voru þessar.
1. Aðflutningsbannsmálið. Svohljóð-
andi tillaga samþykt með öllum greiddum
atkvæðum.
„Með því að fjórðungsþingið álítur
aðílutningsbannslög áfengis ein af þýð-
ingarmestu lögum, sem samþykt hafa
verið á síðustu árum, skorar það á full-
trúana, að vera hvervetna á verði gagn-
vart því, að þau lög verði skert eða
afnumin.“
2. Blómsýningar. Svohlj. till. samþ. í
einu hljóði:
„Fjórðungsþingið skorar á fulltrúa
sína, og stjórnir ungmennafólaganna
innan sinna vébanda að sjá um að
ungmennafélögin verðlauni trjá- og
blómrækt eftir megni“.
3. Fjórðungaskifti. Svohlj. till. samþ.
með öllum greiddum atkv.
„Að gefnu tilefni lýsir fjórðungsþing
U. M. F. Vestfjarða því yfir, að það
álítur fjórðungssvæðið eigi of stórt, og
er eindregið á þeirri skoðun, að takmörk
fjórðungsins haldist óbreytt.“
4- Iþróttir og fyrirlestrar. Nefnd sú
er kosin var til að athuga og koma fram
meS tillögur um íþróttakenslu og fyrir-
lestra á fjórðungssvæðinu næsta vetur,
lagði til að reynt væri að fá mann er
gæti kent íþróttir og jafnframt haldið fyr-
irlestra. Færi svo að ekki væri hægt að
fá mann, er framkvæmt gæti þetta hvort-
tveggja, leggur nefndin til, að fenginn
verði fyrirlesari U. M. F. í til að flytja
fyrirlestra hér á fjórðungssvæðinu næsta
vetur. Ennfremur ætlar fjórðungurinn að
styðja væntanlegt sundnámsskeið í Dýra-
firði á komandi sumri.