Skinfaxi - 01.05.1914, Síða 14
70
SKINFAXI
bráðlega rafhitaðir og lýstir, Og það er
stórmikil framför. Enginn getur sagt hve
mikla nauð híbýlakuldinn gerir þjóðinni,
einkum í sveitum, og þangað verða kolin
tæplega flutt nokkurntíma. I öðru lagi
verður þá steinhætt að brenna áburðinum,
túnræktin vex og nýbýlum fjölgar. Afal-
mennri notkun rafmagns í bæjum og
sveitum mundi leiða fjölmargar menning-
arbætur.
Fjármál.
Þrir merkir menn rituðu um fjármál
íslendinga í Isafold nú í vetur. Sveinn
Björnsson sagði: Við þurfum útlent fé
til framfara í landinu. Við verðum að
fá það frá stórþjóðunum og best er að fá
bingað enskan eða franskan fjármála-
mann til að þekkja okkur og opna heppi-
'legar fjárfangaleiðir. Guðm. Hannesson
kvað mesta þörf á að fara gætilega, spara
•og nota vel það fjárafl sem til er í land-
inu. Garðar Gíslason sagði: Við höfum
ilt orð á okkur fyrir prettvísi erlendis, hér
um bil eins ilt orð og hægt er að hugsa
sér. Við getum aldrei öðlast traust og
trú annara þjóða, nema okkur fari fram
í drengskap og heiðarleik.
Allir þessir menn vildu vel, sögðu satt,
komu hver með þá hlið, sem næst var
lífareynslu þeirra. Við þurfum útlent fé.
Það mun próf. G. H. viðurkenna (sbr.
hina ágætu grein hans í Skírni um engja-
rækt og nýbýli). Hinsvegar hefir versi-
unarsiðgæði þjóðarinnar þótt allmikið á-
bótavant, og kveður svo ramt að þvi, að
sum þýsk verslunarhús neita að skifta við
Island, sökum margendurtekinnar óreiðu.
En þetta mein er svo djúpt að enginn
mun enn þykjast fær um að benda á ör-
ugg ráð.
Nú tökum við lán okkar hjá Dönum,
íif því enginn annar vill lána okkur. Við
•erum þeim skuldugir um nokkrar miljónir.
Þett.a má ekki svo til ganga. Við fáum
|jar of lítið fé, og of dýrt. Danir fá það
frá Frökkum og taka allhátt milliliðsgjald.
En einn útlendur fjármálamaður getur
ekki breytt áliti annara þjóða að mun.
Við þurfum að útbreiða sanna þekkingu
meðal stórþjóðanna um land okkar, gæði
þess og framtíðarvegi. Japanar gera það
hið sama um sitt land. Þeir gefa út stórt
tímarit á ensku, þrefalt stærra en Skírni,
um Japan og allar ástæður landsins.
Slíkt er okkur ofvaxið. En við ættum
að stofna sérstakt embætti fyrir mann, sem
skrifaði um ísland í ensk og frönsk tíma-
rit. Annaðhvort verðum við að ala upp
til þess mann, sem lærði i enskum og
frönskum háskólum, eða við fengjum ein-
hvern af frönsku háskólakennurunum, sem
dvelja hér um stund, þekkja okkur og
kunna mál okkar til hlítar. Og svo vel
vill til, að heita má að báðir þeir menn
sem hér hafa verið séu jafnvígir á ensku
ogfrönsku. Ef hagstofan, Bún.fél. ogein-
stakir menn gæfu slikum manni nauðsyn-
legar upplýsingar, mundu greinar hans
geta gert okkur ómetanlegt gagn.
Þlngmaður um nýbýll.
Hr. Sk. Th. hefir bæði á þingi i sumar
og nú í blaði sínu, Þjóðviljanum, vakið
máls á nýbýlamálinu, og á hann þakkir
skilið fyrir. Vill hann með löggjöf tryggja
sem hest rétt leiguliða gagnvart landsdrotni,
og að öll ábúðverði lífstíðarábúð. Ennfrem-
ur að reisa megi nýbýli, þar sem land-
kostir leyfa og stofnuð verði sérstök láns-
stofnun til að lána landnemunum fé með
afarlöngum gjaldfresti til að rækta og
byggja jarðirnar. Því miður á mál þetta
enn langt í land, bæði af þvi, að bændur
eiga bágt með að skilja hugmyndina, og
þá ekki síður af því, að fé fæst ekki nú
um sinn.
Borgifl Skinfaxa.