Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1915, Síða 4

Skinfaxi - 01.05.1915, Síða 4
52 SKINFAXI Grimsby og Hull lausar við alt menningar- gildi. Stafa.hins vegar talsverð sýkingar- hætta af, að dómi lækna. Þetta eru einungis fáein dæmi þar sem fiskimenskan stendur lakar að vígi, menn- ingarlega, en flestir aðrir atvinnvegir. En þar sem sjórinn lykur um landið, og fiski- menska mun verða hér stunduð meðan ís- land er bygt, þá skiftir mestu að finna bjargráðin, bœta kjör sjómannanna, fá þá og aðra til að liugsa um að ástand- ið er óviðunandi eins' og það er nú. Menn þurfa að skilja að sjávarútvegurinn er eitt hið allra flóknasta velferðarmál þjóð- arinnar. Það þarf allrar aðgæslu við at- vinnuveg, sem dregur fólk til sín meira en góðu hófi gegnir, en sem gerir flesta fá- tæka, sem drepur meira en styrjöld, sem sundrar fjölskyldum, sem gerir menn hirðu- litla um lífsnauðsynlegustu sjálfsvarnar- samtök, sem hneigir fólk til iðjuleysis og æsandi nautna, til að nefna fáein dæmi. Þetta er bitur sannleikur, og mun verða misvirtur af mörgum, sem heldur kjósa fagurgala og óheil sléttmæli en hreinskilni. Verður hver að virða sem hann heíir vit og drengskap til. Þó að málið sé ennþá lítt rann- Xokkur sakag eru pg fáin úrræði, sem urræoi. ,r auðsætt virðist að beina huga þjóðarinnar að: 1. Landbúnaðurinn er i eðli sinu holl- ari atvinnuvegur hverjum einstökum starfs- manni og þjóðinni í heild sinni heldur en fiskimenska. Þess vegna þarf að opna landið fyrir öllum þeim íslendingum sem þar vilja vinna og lifa, og landbúnaður að vera máttarstoð þjóðarinnar á komandi tíma. 2. En þeir sem vilja vera fiskimenn eða verða að vera það, eiga heimting á að alt sé gert sem unt er til að tryggja líf þeirra eg atvinnu. 3. Manntjónið, druknanirnar verða að minka stórkostlega. Þingið getur skerpt eftirlitið með útbúnaði skipa. Með því að halda uppteknum hætti að styðja mótor- bátahafnir, gerir þingið ágætt verk. En mest af endurbótaverkinu verður þó að gerast af sjómönnum sjálfum, og kemst fyrst í lag með því að bæta uppeldi og lífs- kjör þeirra. 4. Ábyrgð, skyldulífsábyrgð allra sjó- mann er skilyrðislaus lífsnauðsyn. Sjá menn ekki live fráleytt er að vanrækja að tryggja mennina á skipum og hátum, en tryggja fleytnna sjálfa, eins og hún væri dýrmætari. Tryggingin hjálpar að vísu ekki þeim dána, en hún hjálpar þeim, sem hon- um stóðu næstir. 5. Það þarf að hafa skóla og náms- skeið fyrir sjómenn, eins og fyrir bændur, kenna þeim verklega og bóklega það sem lýtur að starfi þeirra og framtíð. Byrja í smáum stíl, en færa sig upp á skaftið eftir því sem áhugi og skilningur vex. 6. Fræða fiskimenn um samvinnu i verslun. Reyna að koma á meðal þeirra heilbrigðum verslunarsamtökum. 7. Gera sjómönnum auðveldara að fá Iandskika til ræktunar, og dreifa sjómanns- býlunum meira, svo að rúmbetra verði uift hverja fjölskyldu. 8. Leggja stund á að gera vistlegra í sjóþorpunum, hafa trjágarða við húsin. Hafa bókasöfn, lestrarstofur, taflstofur, íþróttaskóla og leikvelli til að hressa og gleðja sjómennina, þegar þeir eru aðgerð- arlitlir heima, eða í verstöðum. Ensku hermennirnir æfa knattspyrnu í vetur bak við skotgrafirnar. Hvers vegna geta ekki iðjulausir sjómenn stytt sér stundir á þann hátt, fremur en við sumt annað, sem hér er algengara? Það er alveg óhugsandi að til sé sá maður hér á landi, er að öllu þessu at- huguðu vill neita að viðreisn fiskimensk- unnar sé vanræktur víngarður. Og það liggur vitanlega næst ungu kynslóðinni að hefjast handa’ Æskumenn annara landa,. helst til margra, fórna nú lífi sínu fyrir sanna og ímyndaða hagsmuni þjóða sinna^

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.