Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1916, Blaðsíða 5

Skinfaxi - 01.04.1916, Blaðsíða 5
SKINFAXI 37 senda á fjórðungs eða héraðsþingin kynn- ast þar áhugasömum samherjum sínum úr öðrum sveituni, kynnast af þeim starfsemi annara félaga. Eykst þeim við það áhugi og þekking á störfum félaganna, sem kem- ur að góðu þeim er heima sitja. Þetta er mikils virði. En því hafa þau félög ekkert af að segja, sem aldrei geta sent fulltrúa á héraðsþingin sakir ókleifs kostn- aðar. Það er skaði að félögin í Skaftafells- sýslu skuli enn ekki hafa neitt af þessum fjörauka að segja, en sem önnur félög njóta árlega. Þar eru nú 8 félög í sambandinu og 3 utan þess. Þau munu sennilega öll verða með að stofna félagssamband samkvæmt tögum samb. U. M. F. í., ef til kæmi. í þessu væntanlega héraðssambandi yrðu þá 11 félög með 330—350 meðlimum. Árs- tekjur þess (skattur og Samb.tillag) mundu verða ca. 150 krónur. Gerum nú ráð fyrir að þessi 11 félög styrktu hvert einn mann til náms á íþrótta- námskeiðið í Reykjavík. Ekki mundi þá sem færu muna um minna en 50 króna styrk — hvern. Það yrðu namtals 550 krónur. En fyrir helming eða jafnvel þriðjung þess fjár mætti halda sæmilegt íþróttanámskeið innan sýslunnar og nem- endurnir yrðu engu ver haldnir að sækja mámskeiðið þar styrklausir, heldur en þó að þeir væru styrktir með 50 krónum til Reykjavíkur. Innan sýslu ætti félögunum ekki heldur að vera um megn að senda fulltrúa á héraðsþingin. Sýslusamb.stjórninni mundi veitast sýnu hægar að ná til félaganna; hún mundi þekkja þau betur, sjá hvar skórinn kreppir mest að, hvers þau þarfn- ast mest í það og það sinn, eiga hægra með að rétta þeim örfandi hönd, ef þau væru að dofna eða dragnast upp, heldur en stjórn sem situr i Reykjavik. Ekki fæ ég séð að henni yrði torveldara að útvega fyrirlestramenn með aðstoð sambandsstjórn- ar í Reykjavík, heldur en stjórn Sunnlend- ingafjórðungs, né heldur að þau gætu það ekki kostnaðarins vegna. I sjóð Sunn- lendingafjórðungs renna ekki aðrar tekju- lindir en tillög félaganna og sambands- tíeyringarnir. Skaftfellingar hafa ekki enn sem komið er notið þeirra fremur en að réttri tiltölu, nema síður sé, og mundu heldur ekki framvegis hirða um að lifa á öðrum. Nú er svo komið i Yestur-Skaftafellsýslu að auk fjórðungssambands Sunnlendinga- fjórðungs er þar nýstofnað annað sam- band, sem nefnist: Samband ungmenna- félaga í Vestur-Skaftafellssýslu. Sýslusam- bandið og fjórðungssambandið eiga svo þegna sina hvort í annars garði — sum félögin teljast til þeirra beggja. Bæði hafa samböndin sömu stefnuskrá, sömu áhuga- mál, heimta bæði skatt af félögunum. En hljóta þau ekki að sundurdreifa hvort fyrir öðru? Geta félögin þjónað tveimur herr- um ? Það er ólán, að sýslusambandið skuli hafa orðið til, ef það verður ofan á að sýslusamband undir yfirstjórn sam- bandsstj. U. M. F. í. geti ekki orðið Skaft- fellingum nóg. En geti það orðið þeim nóg — og eg er þeirrar skoðunar — þá er stofnun sýslusambandsins heillavænleg og réttmæt rás viðburðanna, er eigi verður hindruð og — þá verður fjórðungssam- bandið að víkja. Jón Kjartansson. Til næturinnar. Hjarta mitt friðaðu hljóða, kyrra nótt, huggaðu barn þitt meðan alt er rótt. Vefðu mig fast með vinarörmum þínum, vertu mér stoð í öllum raunum mínum. Gefið mér hefirðu gull i drauma mína, guðlegan frið i hug mér léstu skína,

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.