Skinfaxi - 01.04.1916, Síða 7
SKINFAXI.
39
klefann að næturþeli og því stolið. Sama
segir form. U M. F. R., aS ómögulegt sé
að búa svo um klefana við Iþróttavöllinn,
að þeir séu ekki jafnharðan sprengdir upp
og tæmdir af öllu smávegis. Fróða-friður
á enn langt í land með okkar þjóð.
Baunltfg’in.
Erfilt gengur að koma þvi inn í með-
-vitund þjóðarinnar, að það sé ósæmilegt
að sjást ölvaður á götum úti, enda er lítt
gert hér af lögreglunni úr þeim fyrirmæl-
um, sem til eru í þessum efnum. Þykir
löggjöfum okkar óaðgengilegt að herða á
löggjöfinni í þessu efni, af þvi að ekki
séu fordæmi í dönskum lögum, en nauð-
syn að samræmi sé í löggjöf Norðurlanda.
En það samræmi höfum við nú að minsta
kosti brotið með bannlögunum, enda er
litil eftirsjón í þeirri tegund blindrar eftir-
hermu. I Bandaríkjunum liggur hegning
við að sjást ölvaður á almannafæri. Eitt
sinn kom íslenskur vesturfari á land í
New York. Hann vildl halda landgöngu
sína hátíðlega á þjóðlegan hátt og drakk
sig út úr fullan. Jafnskjótt og hann sást
slagandi á göturmi, gripu lögregluþjónar
hann og hneptu i varðhald. Fékk hann
siðan að velja um 20 dollara sekt eða 20
daga fangelsisvist og kaus hið síðara. Það
er beinlínis hneykslanlegt að fullum mönn-
um skuli Ieyfilegt að vera á almannafæri,
óátaldir, í bannlandi.
Harmsaga mannsandans.
(Hugleiðing út af grein dr. S. Nordal í ,,Iðunni“).
Ilsebil vann sér til óhelgis með frámuna-
legri heimtufrekju. Og eftir því, sem
Sigurður Nordal segir, sver þó þessi heimtu-
frekja sig í ætt við það göfugasta í manns-
sálinni, hina hvíldarlausu framsóknarþrá.
Og svo sýnist mér. En það er framsókn-
arþráin vansköpuð. Alt af var Ilsebil
söm, hvort heldur hún kúrði i kofanum
eða remdist í hásæti, sem hún sjálf hafði
ekki hreyft legg eða lið til þess að reisa
sér. Endalok hennar hlutu að verða þau
sem urðu, ekki vegna þess, að hún vildi
verða eins og guð almáttugur, heldur vegna
hins, að hún vildi verða mikil, án þess að
hreyfa sig. Framsóknarþrá hennar var
úrkynjuð. Og þetta er ein af þyngstu harm-
sögum mannsandans. Mörg eru þau ágæt
efni, sem að engu hafa orðið, sakir þess-
arar úrkynjuðu framsóknarþrár. Hve margir
unglingar hata vaxið upp á íslandi, gegn-
sýrðir af lestri um afreksverk feðranna og
ENSKUBÁLKUR:
Úr Friöþjófssögu.
'Three miles extended around the fields
of the homestead; on three sides
Valleys, and mountains, and hills, but on
the fourth side was ocean.
Birch wood crown’d the summits, but over
the down-sloping hill-sides.
Flourished the golden corn, and man-high
was waving the rye-field.
Longfellow þýddi.
Þrem megin hálsar og holt en hafið á
fjórðu hlið girti;
efst uppi hóll hver og hæð var hulið af
laufsælum björkum,
sáðlönd þar milli sem mar i mannsháum
gullöldum flutu;
háfell þar yfir með hlíð í heiðbjörtum
spegluðust vötnum.
Mattli. Jochunison þýddi.