Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.1916, Side 15

Skinfaxi - 01.04.1916, Side 15
Félagsmál SKINFAXI 47 Gnðjón JDaTÍðsson búfræðingur, sá er sótti íþróttanámskeið SunnlendingafiórSungs í haust, kendi siðan á iþróttanámskeiði, sem] haldið var að til- hlutun Vestfirðingaf]órðungs á Isafirði í vetur. Námskeið þetta stóð 3 vikur, nemendur 10. Síðan hefir Guðjón kent íþróttir í tveimur félögum U. M. F. Vorblóm og U. M. F. Mýrahrepps. Guðjón er maður öt- ull og áhugasamur. Má því vænta góðs af þessari starfsemi hans. Stefán Hannesson kennari fer nú í vor fyrirlestraferð um Skaftafellssýslur. Búist er við að för hans verði til að flýta fyrir stofnun héraðssam- bands í Austur-Skaftafellssýslu, og væri það mjög æskilegt, að það tækist sem fyrst. Fyrirlestrar í Sunnlendingafjórðungi hafa verið flutt- ir með flestu móti í vetur, a. m. k. tveir í hverju félagi. Hefir fjórðungsstjórnin yfirleitt verið mjög ötul og áhugasöm í starfi sínu. Kristján Sig'urðsson smiður á Akureyri sem dvalið hefir f Noregi i vetur, m. a. til að kynna sér skíðagerð Norðmanna, er nú kominn heim og lætur vel yfir för sinni. 1 næsta blaði kemur grein eftir hann um skíðaíþróttina í Noregi o. fl. Páll Jánsson kennari á Hvanneyri keypti i vetur Ein- arsnes og fer að búa þar í vor, en mun þó jafnframt halda áfram að kenna við Hvanneyraskólann. Einarsnes er mesta kostajörð; hún er við Borgarfjörð norðan- verðan, milli Borgarness og Hvanneyrar. Leysingjaháttur. Til eru menn, sem altaf þurfa að skamm- ast sín. Ef einhver kemur fram með nýja hugsum í áheyrn þeirra, þá eru þeir eins og á nálum út af því slysi, að þeir skyldu vera viðstaddir. Hugsjónir eru þeim við- urstygð, og ekkert er þeim síður lagið en að leggja fyrstir á vaðið, hvað sem i húfi er. Bersýnilega eru þessir menn versta illgresi í hverju þjóðfélagi, og illa er sú þjóð komin og vesaldarlega skapi farin, sem hlustar á hugleysisskraf þeirra. Það má nú nærri geta, að fátt er þessum mönnum ver gert en að bendla þá, þótt ekki sé nema óbeinlínis, við framkvæmd stórmáls, sem enn þá hefir átt fremur erfitt uppdráttar, víðast hvar f heiminum. Það má svo sem nærri [geta, að þeir skammistsín fyrir aðflutningsbannið, kunni illa við sig á undan öðrum, enda er því miður ekki fátftt að heyra hróp um, að bannlögin séu íslandi til skammar, að Island sé til athlægis öllum heim- inum. Lesari góður! Þá heyrir þú til eins af þessum leysingarsonum, sem aldrei dirfast að stíga út úr fótsporum þeim, sem aðrir hafa troðið á undan þeim, og stöð- ugt eru að brjóta lieilann um það, hvað öðrum muni finnast. _ _ Félög: er sent hafa skýrslu og skatt til fjórð- stjórnar Sunnlendinga. U. M. F. Afturelding — „— íslendingur — „— Brúin — Eldborg — „— Biskupstungna1) — Skeiðamanna1) — Dagsbrún í Miklaholtshreppi — „— Dagsbrún i Landeyjum1) — „— Meðallendinga — „— Óðinn

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.