Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1916, Blaðsíða 8

Skinfaxi - 01.06.1916, Blaðsíða 8
72 SKINFAXT. um hana og lét þá ósk uppi, að eg mætti verða á stofnfundi héraðssambands með þeim, ef þeir gætu komið því \ið. Jafn- framt skrifaði eg ungmennafél. í Öræf- og bað þá að athuga hvort þeir gætu eigi orðið með að mynda sambandið og óskaði eftir að fulltrúi frá þeim mætti verða mér samferða austur yfir Breiðamerkur- sand. Þetta gekk alt vel, og þó eigi alt að óskum. Ungm.fél. Máni tilkynti hinum félögnm sýslunnar komu mína væntanl. Um það leyti var Jón Pálsson kennari frá Svina- felli austur á Mýrum við kenslu. Bjóst hann nú til heimferðar og var því beðinn að ná tali mínu um leið og eg færi aust- ur hjá. Hann kvað félögin staðráðin i að mynda samband, en teldu vandkvæði á, að gera það fyr en í júnímánuði, vegna harðinda, vildu þó gera það, ef eg legði sérstaklega áherslu á það. Eg sá að þeim var þetta kunnara en mér, og þegar eg frétti, að á Mýrum og í Nesjum gengi veikindi (kvefsótt og lungnabólga) þá gat eg ekki hvatt til fundar. Jón Pálsson leið- beindi mér, sem bróðir um ýmislegt og hann gladdi mig með því að segja mér, að á síðasta fundi i ungm.fél. þar í Ör- æfum hefði verið samþykt að fél. yrði með um myndun héraðssambands. Þótti mér þetta góðs viti. Eg kom austur í Nes að kveldi 6. maí. Þar var þá, eins og alstaðar á austurleið gaddharka. Var það ilt, og hitt þó verra, að 2 stjórnendur í „Mána“ voru veikir, og formaður — reyndar heilbrigður, sem bet- ur fór, og heima hjá sér — en langt í burtu og — eins og eg komst síðar að raun um — gat ekki komið til viðtals; forfaliaður af öðrum ástæðum. Töldu ýmsir varhugavert, eins og á stóð, að hvetja til samkomu (Ioft kalt, rykugt og veikindi í sveitinni). Var þó boðað til fyr- irlestrar í fundarhúsi hreppsins 8. maí kl. 2 síðdegis. Kom þangað 17 manns og hélt eg þar 1 fyrirlestur. Þá urn kveldið fór eg að Hoffelli að finna fornrann fél., Hjalta Jónsson. Dvaldi eg þar i 2 nætur og hélt 2 fyrirlestra. Þann 10. varð eg samferða Hjalta Jónssyni og öðru fólki frá Hoffelli, sem var að fylgja til grafar ungum bónda á Mýrum að Einholtskirkju. Hélt þá fyrirlestur um kveldið í kirkjunni yfir 60 áheyrendum. Var þar með form. félagsins „Valur“, Kristján Benediktsson og nokkrir ungmennafél. aðrir. Boðaði form. þá til fyrirlestrar og fundar næsta dag. Hélt eg þá 2 fyrirlestra fyrir 34 á- heyrendum, en á milli fyrirlestranna var haldinn fundur. Um kveldið fór eg að Kálfafellsstað í Suðursveit og hélt þar % fyrirlestra í kirkjunni þann 12., fyrir 54 áheyrendum. Var þar fundur á eftir í ungmennaféb Fór þá undir Breiðamerk- ursand að Hala til Steinþórs Þórðarsonar formanns ungm.fél. í Suðursveit. Þann 13 yfir Breiðamerkursand. Daginn eftir hélt eg 2 fyrirlestra í kirkjunni á Hofi í Öræfum fyrir 89 áheyrendum. Var hald- inn fundur á milli fyrirlestra. Formaður í fél. er Þórhallur Jónsson, Fagurhólsmýri. Austur-Skaftafellssýsla er einkennileg og víða fögur og tilkomumikil. Þar er lang- mesta eyðimörkin á alfaravegi þessa lands, Skeiðarársandur, lengsti sandvegur, Breiða- merkursandur. Þar er mesta jökulbreiðan fast að bygðum, með öllum sínum skrið- jöklum, sem eru víða herfilega fallegir, ef eg má komast svo að orði; hæsti jökul- tindur landsins, Hvannadalshnúkur á Ör- æfajökli; mesti vatnaklasinn og „aurarnir endalausu11. Þar eru yndislega fagrir skóg- ar: Gilið hjá Skaftafelli, gildrögin hjá Svínafelli, og að sögn, hinn nafnkunni Bæjarstaðaskógur. Fjallahringurinn, af Mýrum sunnanverðum er skínandi fagur og síðastan ekki sístan má telja Hornafjörð- með öllum sínum dáfögru eyjum. Og v skjóli þessarar auðnar, tignar og fegurðar blómgast hin hreina, látlausa, elskulega, íslenska gestrisni, þar sem jafnvel óþekt- um manni finst hann vera heima hjá sérr

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.