Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.06.1916, Qupperneq 13

Skinfaxi - 01.06.1916, Qupperneq 13
SKINFAXI 77 Þegnskyldan og ungmennafélögin. í aprilblaSi Skinfaxa skrifar sambands- stjórinn grein með þessari fyrirsögn. Hefir hann aS líkindum ætlast til, að þar væri skýrð til fulls afstaða ungmennafélaganna til þessa máls. Eg átti von á þessari grein fyrir löngu, enda var heunar full þörf, þar sem afstaða ungmennafélaganna til þegnskyldunnar hefir verið misskilin á báða bóga, eins og Guðmundur tók fram. Það er að vísu rétt, að U. M. F. í. hefir aldrei tekið þegnskyldumálið formlega á stefnuskrá sína. En bæði sambandið sem heild (á sambandsþingum) og einstakir hlutar þess hafa hvað eftir annað sýnt á ýmsan hátt, fullan vilja á þvi að vinna að framgangi málsins. Sárfáar raddir hafa heyrst andmæla. Hin umrædda tillaga síðasta sambands- þings var svona: „Þingið átelur nefndina, sem kosinvar á siðasta sambandsþingi i þegnskyldu- vinnumálið, fyrir það, að hafa ekki skilað neinu um það mál. Hinsvegar telur þingið þegnskylduvinnumálið of mikið vandamál til þess að ungmennafélögun- um einum sé treystandi til þess að bera það fram til sigurs, og heitir á alla þá menn,erlögumráðahér á Iandi, aðstuðla að því, að hugmyndin um þegnskyldu- vinnu falli ekki um sjálfa sig að órann- sökuðu máli. En því skýtur þingiö til ungmennafélaganna, hvort þau sjái sér ekki fært að koma á hjá sér innbyrðis einum samvinnudegi, t. d. við heyskap, skógrækt, vegagerð eða þvíumlíkt". Þessa tillögu segir Guðmundur þess efnis, „að ungmennafélögin sæu sér ekki fært að vinna fyrir niálið framvegis“. Eg get ekki hugsað mér ákveðnari ósk um framgang málsins, en felst í tillögu þess- ari, og því engin átylla gefin til þess, að um- ræðum um það skyldi vera lokið innan ungmennafélagsskaparins. Eg get ekki hugsað mér, að nokkrum manni hafi dottið í hug, að ungmennafélögin ein gætu borið rnálið fram til sigurs, þar sem ætlast var til, að um löggjafarmál væri að ræða. í þeim orðum felst því ekkert af- sal. Því síður í nokkrum öðrum orðum í tillögunni. Og til hvers var þingið að vita nefndina fyrir aðgerðarleysi, ef það var vilja þess, að ekkert væri aðhafst í málinu ? Það er að mínu áliti rangt hjá Guðmundir er hann segir það misskilning. að líkja megi störfum ungmennafélaganna við þegnskyldu. Framkvæmd þeirrar þegnskyldu, sem til tals hefir komið að lögleiða hér á landi á að verða „sprottin af innri hvöt til þess að láta gott af sér leiða, en ekki af utan að komandi þvingun eða lagaboði. G. D. virðist líta á öll lög sem þving- unarvaldboð. En hann ætti aðgeta séð mun- inn á því, að þvinga menn til einhvers með lögum, eða jsetja lög til að tryggja reglu við framkvæmd starfs, sem unnið er með Ijúfu geði. Ungmennafélögin eiga að undirbúa jarðveginn. Rækta hugarfar þjóðarinnar, svo engum verði óljúft, að inna þegnskylduna af nendi. Það er áreiðanlega samboðið stefnuskrá þeirra. Mér liggur við að segja að þau hljóti að gera það, hvort sem þeim er það ljúft eða leitt, svo framarlega sem þau bregðast ekki stefnuskrá sinni. Og eg get ekki talið frelsishugsjón ungmennafélaganna full- nægt, fyr en þjóðin þorir að leggja á sig hvaða löghelsi sem er, þegar þess er gætt að hún leggur það á sjálf. Eg er viss um að röksemdaleiðsla sambandsstjórans um þetta atriði, er sprottin af athugaleysi. Þá er enn eitt atriðið. Það atriðið, sem átti mestan þáttinn í því, að eg hreyfði andsvörum. Sambandsstjóri kemur tví- vegis í greininni með þá röksemdaleiðslu, að fyrst ungmennafélögin ráði ekki yfir úrslitum og framkværnd málsins, þá sé fylgi þeirra til einskis. Hefir sambands- stjórnin heimild til að segja, að engar til-

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.