Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.01.1922, Qupperneq 2

Skinfaxi - 01.01.1922, Qupperneq 2
2 SKINFAXI ur, sem menning er þar meiri. Víða eru félögin nú búin að læra af reynslunni, hvernig bezt verður hagað störfunum, svo að vel farnist, það urðu þau eðlilega að gera. Þau hafa því hægfara tekið nokkrum breytingum í ytra útliti, verða ætíð að gera það, ella myndi þau brátt daga uppi, en andinn er sami, stefn- an hefir ekki breyzt. Þess hefir orðið vart, að einstöku menn, hafa talið það merki um afturför- ef fél. hafa, á fundum sínum, jafnframt því, er þau sinna alvarlegu störfunum, varið nokkr- um tíma til skemtana og gleðileika. En þeir menn, sem ekki skilja það, að ung- mennafélögin eiga, og verða ætíð, að vera heimkynni gleðinnar, að gleðin er æskunni jafn nauðsynleg, sem lífinu ljós sólarinnar, þeir menn eru vissulega of gamlir í anda, til þess, að taka þátt í ungm.fél. hvaða ár sem þeir nú annars eru fæddir í þenn- an heim. Þá hafa heyrst einstakar raddir um það, að á síðustu árum séu strjálli fundahöld og minni verklegar framkvæmdir í sumum fél. en áður tíðkaðist og að það beri vott um deyfð og hnignun. En þetta er, al- gerlega röng ályktun, sem stafar beinlínis af þekkingarleysi á félögunum, og aðstöðu þeirra, og algerðu skilnings- leysi á erfiðum hag þjóðfélagsins. Þeir menn, sem kunnugir eru sveitum landsins, eða þekkja staðháttu alla og örðugleika þá, sem óhagstætt veðurfar, dýrtíð og mannfæð, hefir valdið hin síðustu árin, þeir undrast ekki né æðrast, þótt ungmenna- félögin leitist við, að fara hyggilega að ráði sínu, og sparlega með tíma og fé. Heill og heiður hverjum þeim, er hefir þroska til þess. Astæður sveitanna hafa víða gerbreyzt á síðustu árum, en ef dæma skal af nokk- uru viti um menn, eða málefni, þarf vit- anlega til þess gætni og fulla þekkingu á því sem dæma á. Ungmennafélögin hafa útbreiðst, jafnt og stöðugt, hröðum skrefum, hin síðustu IO árin, þau lifa góðu lífi í sveitunum, þótt vera kunni, að þau hafi lægra, en þau höfðu sín fyrstu ár. Nú hafa þau myndað sér sæmilegan farveg og freyða því ekki lengur út yfir bakkana. Ungm.fél. munu eflast og blómgast á komandi tím- um landi og lýð til blessunar. Skinfaxi hefir verið, og hlýtur einnig framvegis að verða, einn af nauðsynlegustu máttarviðum félaganna. Vegna samgöngu- örðugleika og strjálbygðar landsins, er blaðið þeim lífsskilyrði. Þaö á að vera fararskjóti fagurra framtíðardrauma og göf- ugra hugsjóna, sem þróast í instu afdöl- um, og beina þeim flug um breiðar lands- ins bygðir, til yztu andnesja. Það er heitasta ósk Skinfaxa, að fá að flytja orku og æskugleði uppvaxandi kyn- slóðar, milli hinna fjarstu félagsdeilda. En til þess, að hann fái þá ósk sína uppfylta, verða félagsmenn að bera umhyggju fyrir honum og senda honum við og við fregn- ir af því, sem þeir hugsa, sjá eða fram- kvæma fegurst og bezt En þeir veröa einnig aö greiða götu hans víöa vegu, með ötullegri útbreiðslu. Loks þurfa þeir að muna þaö, aö sannur ungmennafélagi finnur það eina af sínum heigustu skyld- um, að gjalda hverjum það er ber, og standa í skilum við alla. Skinfaxi treystir því, eð enginn ung- mennafélagi gleymi þessum skyldum, mun hann því hefja för sína á nýárinu, ókvíð- inn og öruggur, um góðar viðtökur, hjá vinum og vandamönnum sínum. Óskar hann öllum ungm.fél. gleðilegs nýárs og þakkar liðnu árin. Samkvæmt óskiftum vilja síðasta sam- bandsþings U. M. F. í. mun sambands- srjórnin kappkosta, að gera Skinfaxa sem bezt úr garði eftirleiðis. Hún hefir þegar trygt blaðinu stuðning nokkurra ágætis- manna, er munu rita í það framvegis, um áhugamál ungm.félaganna. En sam-

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.