Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.1929, Blaðsíða 13

Skinfaxi - 01.01.1929, Blaðsíða 13
SKINFAXI 13 staur. Hún var eftir Johanties Fossheiin í Sunnfirði (ef ekki er misminni). Önnur hálfhlið slaursins, óunnin, varð grunnur. — Það voru „Drykkjulætin": Fjórir drykkjumenn í barsmíðum með hnefum og hnifum, fimti virtist dauður liggja, og sjötti undir tunnukrananum. En á hinum tunnuendanum sat fjandinn sjálfur og spilaði á hörpu! Allur brjálæðishátturinn var þarna eins og lif- andi uppmálun! Þó að hjer sje nú eitt og annað talið sem heimilisiðnaðardeildin tók yfir, gefur að skilja, að það er aðeins fæst eitt af öllum fjöldauum. Fjölmargt var fleira, bæði fagurt og vænt, og á margan hátt mæti- legt. Guðm. Jónsson trá Mosdal. Frá fjelögum og fjelagsvegum. Hjeraðssamb. Skarphéðinn. Héraðsmótið fórst fyrir að mestu, sökum óveðurs. í stað þess var höfð samkorna í hriplekri, gríðarstórri tjaldbúð, sem Ólafur ísleifsson átti: Þar voru ræðuhöld og fimleikasýning. Voru það piltar úr íþróttaskólahum, hraustir og myndariegir. Það var eftir ástæðum- ótrúlega góð sýning. Svo lét Jón frá Hofstöðum uminælt. —' Félögin „Dagsbrún" og „Þórsmörk" höfðu leikmót 30. júní. U. A*. F. Hrunamanna hefir altaf samkomu á Álfaskeiði í ágústmánuði, þar sem fram fara ræðuhöld, söngur og einhverjar íþróttir o. s. frv. Álfaskeiðssam- koman er altaf vel sótt. Þar eru oft ágætir ræðumenn. T. d. Magnús Helgason skólastjóri, Guðm. Finnaboga- son prófessor o. fl. Söngur er þar góður, því að Hreppa- menn eru söngmenn góðir. U. M. F. Biskupstungna tíélt útisamkomu við Geysi í sumar, sem var mjög vel sótt. Sama félag fékk leyfi til þess að selja happdrættismiða til ágóða fyrir hússjóð sinn. Það bygði í hitteðfyrra

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.