Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.1929, Blaðsíða 14

Skinfaxi - 01.01.1929, Blaðsíða 14
14 SKINFAXI mjög myndarlegt samkomuhús, með þeiui allra uiyndar- iegustu sem til eru i sveit. Annars var þess getið I „Skin- íaxa“ i fyrra. Tungnafélagið er öflugt og myndarlegt. t>eir eiga marga ágæta félaga, enda er samkomuhús bygging þessi mikið starf. — Garðyrkju- og matreiðslu- kona ferðaðist hér í sumar um héraöið og leiðbeindi mönn- um. Seinnipart sumars hélt hún námsskeið á ýmsum stöðum, til þess að kenna að matreiða kál o. fl. Var mjög vel af þeim iátið. Eitt þeirra var hér á Eyrarbakka, nem. 15. Eg get borið um það, að þar var kent margt nýtt og nytsamlegt. bessa starfsemi styrkir héraðssam- bandið okkar að nokkru leyti. Af einstökum fjelagsmönnum er Sigurður Greips- son langfremstur að dugnaði. Hann er búinn að velta þungu hlassi á þessu ári, þar sem stofn- un og bygging fþróttaskólans í Haukadal er, enda er maðurinn hugaður vel, og drengur hinn besti. Við ung- mennafélagar hér væntum mikils góðs af starfi Sigurðar. Ungmennafél. Eyrarbakka hefir starfað likt í ár og und- anfarið, starfrækt samkomuhúsið, sent mann I Þingvalla- vinnu, bætt við bókasafnið o. fl. Tvent nýtt höfum við gert I ár: Ræktað ca. 500 □ m. kálgarð, sem við skift- um í ca. 20 □ m. reiti, og létum svo nokkra félags- menn fá þessa smáreiti til meðferðar, — og haldið tré- skurðarnámsskeið núna í nóvember. — Námsskeiðið stóð yfir í 14 daga. Kennarar voru þeir Marteinn Guö- mundsson, lærisveinn Rlkharðar Jónssonar, fyrstu 9 dagana, og svo Rikharður það sem eftir var. Nemendur voru 15, þar af 5 utan Eyrarbakka. Voru það menn á ýinsutn aldri, alt frá 12 ára strákum upp að fimtugum frúm. Unnu menn þar af áhuga mikium, með ágætri til- sögn. Siðustu dagana var samkoma haldin til ágóða fyrir námsskeiðið. Voru þar sýndir smiðisgripirnir. Rlk- harður talaði þar um heimilisiðnaðinn islenska og þýö- ingu hans fyrir islenska þjóð o. fl. — Þar var lika staddur Sigvaldi Indriðason kvæðamaður, og skemtu þeir Ríkharður með kveðskap, tvísöng og gamanvisum.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.