Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.01.1929, Qupperneq 16

Skinfaxi - 01.01.1929, Qupperneq 16
16 SKINF-'AXl Sviss, stutt erindi, sögð gömul þjóðsaga með skugga- myndum, leikin Kvöldvakan í Hlíð, sem er þáttur úr sögunni „Maður og kona“, og loks var stiginn dans. Auk félaga úr Velvakanda voru þarna rúml. 200 félagar utan af landi, og fór skemtunin vel úr hendi, öllum til ánægju Næsta gestamót heldur félagið 23. febrúar, og verð- ur það með líkum hætti. Guðbjörn Guðmundsson (ionn. Hsb. U. M. F. Kjaiarnessþ.) Ungmennafjelögin í Önundarfirði hjeldu samkomu laugardaginn 29. desember s. 1., til minningar um 20 ára starfsemi ungmennafjelagsskapar- ins í Önundarfirði. Aö samkomunni varð hinn besti mannfögnuður, og verður nánar getið. tJpplýsingar og orðsendingar. Hjeraðssamböndin. Hsb. Urnf. Vestfjarða, Umf. Borg- firðinga, Umf. Kjalarnessþings, Skarphjeðins og Umf. Byfirðinga hafa nú sent skýrslur fyrir árið 1927. Hin hjeraðssamb. eru enn mint á að láta sem fyrst frá sjer heyra. Skýrslurnar fyrir 1928 er og beðið um eins íljótt og ástæður í hverju hjeraðssamb. leifa. Ungmennafjelögin. sem hjer eru talin, hafa gefið svar við orðsendingum í 5. tbl. Skinfaxa (nöfn form., tölu fjelaga o. s. frv.): Umf. „Árvakur“, Umf. „VorbIóm“i Umf. „Bifröst", Umf. „Önundur", Umf. Mýrarhrepps, Umf. „Þróttur", (í Hsb. Vestfjarða), Umf. Biskups- tungna, Umf. Eyrarbakka, (í Hsb. „Skarphjeðinn"), Umf. „Velvakandi“, (I Hsb. Umf. Kjalarnessþ.), Umf. Akureyrar og Umf. „Árroðinn" (í Hsb. Umf. Evja- fjarðar). Aðeins 10 fjelög. — Önnur fjelög eru enn mint á, að vanrækja ekki lengur þessa auðveldu og sjálfsögðu fyrirgreiðslu. Guðm. J. frá Mosdal. Prentsmiðja Vesturlands, ísafirði.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.